Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2013, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2013, Blaðsíða 24
24 Fréttir 4.–6. október 2013 Helgarblað HENSON LAGERSALA Föstudaginn 4. okt. kl. 11-18 Laugardaginn 5. okt. kl. 11-16 Sunnudaginn 6. okt. 13-17 Mánudaginn 7. okt. kl. 11-18 Þriðjudaginn 8. okt. 11-18 STAÐSETNING: BRAUTARHOLT 24 Ó ttar Martin Norðfjörð og unnusta hans Elo Vázquez voru nýflutt heim til Íslands frá Spáni. Íslenskt samfélag fannst þeim skrýtið. „Mér fannst Ísland satt best að segja orðið frekar skrítið, ann- ar hver maður kaupandi hlutabréf eða fastagestur á fótboltaleikjum á Englandi. Ég spurði mig hvaðan all- ir þessir peningar kæmu.“ Hrunið hafði engin afgerandi áhrif á líf Óttars utan þess að það veitti honum jarðtengingu. „Það breyttist í raun lítið í mínu persónu- lega lífi, en mér fannst Ísland aftur ná jarðtengingu og ég fagnaði því. Þess vegna þurfti ég ekki að grípa til neinna sérstakra ráða. Ég hélt bara sama dampi, jafn skeptískur á bankana og viðskiptalífið og ég hef alltaf verið, fyrir sem og eftir hrun.“ Ruglið að byrja aftur Staðan er fín hjá Óttari í dag sem hefur valið að búa til skiptis á Ís- landi og Spáni. „Ég sé landið mitt því oft að utan, sem ég held að sé hollt.“ Honum fannst allt stefna í rétta átt fimm árum síðar en er hræddur um að ruglið sé að byrja aftur. „Mér fannst Ísland að mestu leyti á góðum stað nokkrum árum eftir hrun og allt stefna í rétta átt, en svo kaus almenningur aftur yfir sig hrunflokkana. Núna er ég svo- lítið hræddur um að einhver tegund af rugli sé að fara að byrja aftur. En það verður spennandi að sjá hvers kyns tegund af rugli.“ n kristjana@dv.is Jafn skeptískur og fyrir og eftir hrun„Svo kaus almenn- ingur aftur yfir sig hrunflokkana. Alltaf skeptískur Lítið hefur breyst í afstöðu Óttars fyrir og eftir hrun. Mynd RóbeRt Reynisson 29. september 2008 Tilkynnt er að Ríkissjóður Íslands muni greiða 600 milljónir evra til að kaupa 75% hlut í einkabankan- um Glitni (nú Íslandsbanki) til þess að koma í veg fyrir gjaldþrot hans. 6. október 2008 Hin svokölluðu neyðarlög taka gildi, en þau fólu í sér rót- tækar heimildir um inngrip stjórnvalda á fjármálamarkaði og tók Fjármála- eftirlitið yfir rekstur Landsbankans, Glitnis og Kaupþings fljótlega eftir setningu laganna. Sama dag ávarp- aði Geir H. Haarde, þáverandi for- sætisráðherra, þjóðina og endaði ræðu sína á orðunum Guð blessi Ísland sem síðan hafa orðið tákn- ræn fyrir efnahagshrunið og krepp- una sem fylgdi í kjölfarið. 7. október 2008 Fjármálaeftirlitið skipar skilanefnd sem tekur við öllum heimildum stjórnar Landsbankans. Rússar bjóðast til að veita Íslendingum lánafyrirgreiðslu; 4 milljónir evra. Sama kvöld kemur Davíð Oddsson, þáverandi seðlabankastjóri, fram í Kastljósi og segir að Íslendingar muni ekki borga erlendar skuldir óreiðumanna. 8. október 2008 Bresk stjórnvöld frysta eignir Landsbankans á Bretlandseyjum vegna greiðsluþrots netbankans Icesave og beita til þess lögum um varnir gegn hryðjuverkum. Upp frá því hefst hin svokallaða Ice save- deila sem síðar átti eftir að fara fyrir EFTA-dómstólinn þar sem íslenska ríkið var sýknað af öllum ákæruliðum. 15. október 2008 Búsáhalda- byltingin hefst. Að minnsta kosti sjö þús- und manns mót- mæla á Austur velli vegna efnahag- skreppunnar en mótmælin voru skipulögð af samtökunum Raddir fólksins með Hörð Torfason í farar- broddi og fóru fram að minnsta kosti vikulega fram til 14. mars 2009. 19. nóvember 2008 Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn sam- þykkir beiðni íslenska ríkisins um lán upp á tæpa 294 milljarða króna. Í kjölfar þess hefst vinna að áætlun um að koma á efnahagsstöðugleika á Íslandi. 8. desember 2008 Níu mótmælendur brjóta sér leið inn í Alþingishúsið og upp á þing- pallana. Þeir voru síðar ákærðir fyrir að rjúfa friðhelgi Alþingis og ógna öryggi þess sem og fyrir of- beldi gegn þingvörðum og lög- regluþjónum. 13. janúar 2009 Björn Bjarnason, þáverandi dóms- málaráðherra, skipar Ólaf Þór Hauksson, sýslumann á Akranesi, í embætti sérstaks saksóknara. Emb- ættinu var fyrst komið á fót í kjölfar bankahrunsins en enginn sótti um starfið þegar það var auglýst í des- ember 2008. 25. janúar 2009 Björgvin G. Sigurðsson viðskipta- málaráðherra segir af sér og segist þannig axla sína ábyrgð á banka- hruninu. 26. janúar 2009 Geir H. Haarde forsætisráðherra Íslands tilkynnir að stjórnarsam- starfi Sjálfstæðisflokks og Samfylk- ingar sé lokið. 1. febrúar 2009 Minnihlutastjórn Samfylkingar- innar og Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs tekur við. Stjórnin er varin vantrausti af Framsóknar- flokknum. 25. apríl 2009 Sögulegar alþingiskosningar fara fram. Samfylkingin og Vinstri hreyfingin – grænt framboð ná meirihluta á þingi og mynda stjórn. Sjálfstæðisflokkurinn bíður afhroð og þriðjungur þingmanna þeirra dettur út af þingi. 16. júlí 2009 Aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið hefjast form- lega. 5. ágúst 2009 Hollenskir innistæðueigendur til- kynna að þeir undirbúi lögsókn gegn Íslandi. 2. september 2009 Ólafur Ragnar Grímsson staðfest- ir lög um ríkisábyrgð vegna Ice- save-samninga við Hollendinga og Breta. 1. október 2009 Fjárlagafrumvarp er lagt fram á Al- þingi sem gerir ráð fyrir 87,4 millj- arða halla. 19. október 2009 Ríkisstjórn Íslands skrifar undir samning um greiðslur vegna tjóns af völdum Icesave. 30. desember 2009 Frumvarp ríkisstjórnarinnar um ríkisábyrgð vegna Icesave-skuld- bindinganna er samþykkt í at- kvæðagreiðslu á Alþingi. 5. janúar 2010 Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, neitar að skrifa undir lce- save-lögin. 6. mars 2010 Fyrri þjóðaratkvæðagreiðsla um Icesave fer fram. 93 prósent greiddra atkvæða eru á þann veg að lögin ættu að falla úr gildi. 9. desember 2010 Samninganefndir Íslands, Hollands og Bretlands komast að nýrri niðurstöðu og semja á ný. 16. febrúar 2011 Alþingi samþykkir lög sem heim- ilda fjármálaráðherra að staðfesta desembersamninginn. 20. febrúar 2011 Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, neitar að staðfesta lögin og vísar þeim til þjóðaratkvæðis. 7. apríl 2011 Baldur Guð- laugsson, fyrr- verandi ráðu- neytisstjóri í fjármálaráðuneytinu, er dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir að nýta sér innherjaupplýsingar. 9. apríl 2011 Seinni þjóðaratkvæðagreiðslan um Icesave fer fram. Lögunum er hafn- að með 60 prósentum atkvæða. 17. febrúar 2012 Gunnari Andersen, forstjóra Fjár- málaeftirlitsins, er sagt upp störf- um. 23. apríl 2012 Geir H. Haarde, fyrrverandi for- sætisráðherra, er sakfelldur fyrir eitt ákæruatriði í landsdómi. 28. janúar 2013 EFTA-dómstóllinn sýknar íslenska ríkið af öllum kröfum ESA í Ice- save-málinu. 27. apríl 2013 Alþingiskosningar eru haldn- ar. Tæpur helmingur þingmanna beggja stjórnarflokka dettur út af þingi. Ríkisstjórn Framsóknar- flokks og Sjálfstæðisflokks tekur við. Tímalína hrunsins
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.