Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2013, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2013, Blaðsíða 4
Rau›arárstíg 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is Opnun föstudaginn 4. október kl. 20 Trúðmálverk og trúðleikur Nikhil Nathan Kirsh 4. –13. október GALLERÍ FOLD LanghoLtskirkja á barmi gjaLdþrots n Safnaðarheimilið mögulega tekið upp í skuldir n Margar kirkjur í sömu stöðu L angholtskirkja á í miklum fjár- hagserfiðleikum og ef fram fer sem horfir er útlit fyrir að safn- aðarheimili kirkjunnar verði selt til að greiða upp skuldir, en húsnæði safnaðarheimilisins er afar skuldsett. Hluti af ástæðunni er fjöldi úrsagna úr Þjóðkirkjunni síð- ustu ár, en með færri sóknarbörnum fær kirkjan sífellt minna fyrir sinn snúð. Þetta staðfestir Guðbjörg Jó- hannesdóttir, sóknarprestur í Lang- holtskirkju, í samtali við DV. Jöfnunarsjóði sókna er heimilt að taka veð í fasteignum, svo og öðrum eignum, ef ástæða þykir til, en ekki er heimild fyrir því að veðsetja kirkjurn- ar sjálfar með þessum hætti. Kirkj- an sem slík verður því ekki tekin af söfnuðinum ef í harðbakkann slær, en svo gæti farið með aðrar eignir kirkjunnar að þær verði teknar upp í skuldir. „Við verðum bara að flytja í kirkjuna ef í hart fer,“ segir Guðbjörg í samtali við DV. Leiga gæti hækkað Guðbjörg segir alvarlegan fjárhags- vanda Langholtskirkju að hluta til sprottinn úr bankahruninu, þegar skuldir stökkbreyttust svo að segja á einni nóttu: „Allar okkar áætlanir brustu algjörlega.“ Hún segir að reynt hafi verið að beita miklu aðhaldi á síðustu árum en að það hafi ekki dugað til. „Það er búið að skera mik- ið niður bæði í starfsemi og rekstri, en við erum í sjálfu sér ekki í neinni aðstöðu til þess að auka tekjur okkar með neinum hætti.“ Hún segir skuldsetningu safnað- arheimilisins afar mikla og ekki sé útséð hvort kirkjan muni hafi efni á afborgunum. Ýmsir hópar hafa leigt safnaðarheimilið út fyrir starfsemi sína, en svo gæti farið að leigan muni hækka á næstu misserum. Guðbjörg segir þó að lítið svigrúm sé til hækk- ana. „Þar eru ákveðin þolmörk, ef þú hækkar of mikið þá hættir fólk bara að koma þannig að við höfum í sjálfu sér ekki getað hækkað það mikið.“ Hún segir leiguna ekkert hafa hækk- að í nokkur ár, enda sé kúnnahópur- inn í svipaðri stöðu og kirkjan sjálf, fólk geti einfaldlega ekki greitt meira. Fleiri kirkjur í vanda Fleiri kirkjur á höfuðborgarsvæðinu eru í sama vanda. Mörgu af starfsfólki söfnuðanna hefur verið sagt upp á síðustu árum en það hefur ekki dug- að til þess að halda fjármálum kirkn- anna réttum megin við núllið. „Hér, rétt eins og hjá mjög mörgum öðr- um söfnuðum, er gríðarlegur fjár- hagsvandi,“ segir Guðbjörg og bæt- ir við að ástæðan sé meðal annars sú að kirkjurnar hafi ekki fengið sóknar- gjöldin óskert frá hruni. Hún segir stöðuna langversta hjá stórum kirkj- um á höfuðborgarsvæðinu: „Þar sem eru stór húsnæði og hár rekstrar- kostnaður.“ Búið sé að segja upp þónokkuð af starfsfólki hjá Langholtskirkju á síð- ustu árum: „Ég hugsa að það sé búið að segja upp starfsfólki í öllum söfn- uðunum í borginni, og það er ekkert öðruvísi hér.“ Ríkissjóður innheimt- ir sérstök sóknar- og kirkjugarðsgjöld fyrir Þjóðkirkju Íslands og greiðir inn í tiltekna sjóði á vegum kirkjunnar. Kirkjur fá síðan sóknargjöld greidd eftir því hversu margir einstaklingar innan Þjóðkirkjunnar eru skráðir í sókn þeirra. Ríkisvaldið ákvað í kjöl- far bankahrunsins að skerða sóknar- gjöldin tímabundið en sú skerðing er ennþá til staðar þó minni sé en áður. Trúir á upprisuna Þjóðkirkjan hefur legið undir miklu ámæli síðustu ár en það hefur leitt til fjölda úrsagna úr kirkjunni. Hluta ástæðunnar fyrir fjárhagsvanda kirknanna er að finna þar. Guðbjörg segir úrsagnir úr Þjóðkirkjunni engu breyta um yfirstjórn kirkjunnar sem fái fjármagn sitt úr öðrum sjóðum heldur komi þær helst niður á eins- taka kirkjusóknum. „Þegar fólk seg- ir sig úr kirkjunni vegna þess að það er ósátt við eitthvað sem biskup- inn segir, þá hefur það enginn áhrif á biskupsembættið, heldur einung- is á söfnuðinn þar sem viðkomandi er skráður. Það hefur verið svolítið vandamál.“ Mikið hefur verið fjallað um það í þýskum fjölmiðlum á síðustu árum þegar kirkjur hafa verið seldar til þess að borga upp skuldir. Þannig hafa birst fréttir af gömlum kaþólsk- um kirkjum sem breytt hefur verið í pítsustaði eða líkamsræktarstöðvar. Þá vakti það mikla athygli þegar frétt- ist af kirkjum sem seldar voru á upp- boðsvefnum eBay. Guðbjörg segir málin eðlisólík að því leyti að engin hætta sé á að kirkjur hérlendis verði seldar upp í skuldir þar sem ekki megi veðsetja þær. Þá sé kirkjusókn hér- lendis með ágætum. Erfið fjárhagsstaða er þó stað- reynd og framtíð safnaðarheimilis- ins óljós. En Guðbjörg lætur stöðuna ekki buga sig, enda trúir hún því að almættið muni skerast í leikinn. „Við trúum á upprisuna hér í Langholtinu þannig að við hljótum að komast í gegnum þetta,“ segir Guðbjörg á létt- ari nótunum. n Slæm staða Guðbjörg Jóhannesdóttir, sóknarprestur í Langholtskirkju, segir fjárhagsstöðuna slæma. Jón Bjarki Magnússon blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is 4 Fréttir 4.–6. október 2013 Helgarblað Yfirveðsett Svo gæti farið að Langholtskirkja þurfi að selja safn- aðarheimili kirkjunnar til að greiða upp skuldir. Mynd SigTrYggur Ari „Við trúum á upprisuna hér í Langholtinu þannig að við hljót- um að komast í gegnum þetta Lögreglan leitar vitna Vegna málsrannsóknar lýsir lög- reglan á Suðurnesjum eftir bif- reið sem mun hafa verið ekið um Heiðmerkurveg við Rauð- hóla ofan Reykjavíkur, skammt frá Suðurlandsvegi, laugardags- kvöldið 21. september síðast- liðinn á tímabilinu frá klukkan 00.30 til 02.00. Talið er að bif- reiðin sé hvít eða ljósleit jeppa- bifreið, hugsanlega Toyota Land Cruiser 100. Bifreiðinni mun hafa verið ekið inn á útskot/bif- reiðastæði móts við Rauðhóla og hafi þá lýst upp rauða fólksbif- reið sem lagt var á malarslóða út frá útskotinu/bifreiðastæðinu. Lögreglan á Suðurnesjum þarf að ná tali af þeim sem þarna voru á ferð og biður þá að hafa samband við lögregluna á Suðurnesjum í síma 420 1700. Söfnunin gengur vel n dæmd til að greiða Agli Einarssyni samtals 900 þúsund krónur T æplega sólarhring eftir að söfn- un hófst á Facebook fyrir Ingi- björgu Lilju Hafliðadóttur hafði safnast fyrir allri upp- hæðinni. Hin tvítuga Ingibjörg Lilja var í fyrradag dæmd til að greiða Agli Einarssyni samtals 900 þúsund krón- ur í miskabætur og málskostnað og 30 þúsund krónur í sekt til ríkissjóðs, vegna meiðyrða. Ummæli sem hún lét falla á Facebook-hópnum „Gillz af forsíðunni – krefjum Monitor um afsökunarbeiðni“ í fyrra voru dæmd dauð og ómerk í Héraðsdómi Austur- lands á þriðjudag. Miðað við heildar- upphæðina sem Ingibjörg Lilja er dæmd til að greiða vegna meiðyrða- málsins má reikna út að hvert orð í hinum ómerktu ummælum hafi kost- að hana 34 þúsund krónur. Ingibjörg Lilja er vinkona Guð- nýjar Rósar Vilhjálmsdóttur sem kærði Egil og unnustu hans fyrir nauðgun en það mál var sem kunnugt er látið niður falla. Guðný Rós ákvað á miðvikudag að stofna Facebook-hóp þar sem hún biðlaði til netverja að styrkja vinkonu sína vegna dómsins. Í skilaboðum á Facebook-hópn- um segir Guðný Rós að hann hafi verið stofnaður klukkan 18 á mið- vikudag og útvöldum vinum boðið að taka þátt. „Núna kl 16.30 tæpum sólahring seinna var takmarki okk- ar náð og upphæðin var komin upp í 932.000 krónur Við erum orðlaus- ar af þakklæti. Þetta sýnir okkur hvað við getum ef við stöndum saman. […] Að segja takk finnst mér ekki vera nóg en ég segi HÚRRA fyrir okkur og takk öllsömul fyrir ómetanlegan stuðning.“ n Safnaði fyrir vinkonu sína Guðný Rós safnaði á einum sólarhring 900 þúsund krónum, vegna dóms yfir vinkonu hennar. Jón Ásgeir á ekki 365 Jón Ásgeir Jóhannesson, fjárfest- ir og eiginmaður eiganda 365, hafði samband við DV til að láta vita af því að hann væri ekki eig- andi fjölmiðlafyrirtækisins. Þessu var haldið fram í DV á miðviku- daginn. Óskaði Jón Ásgeir eftir leiðréttingu þess efnis þar sem eiginkona hans, Ingibjörg Pálma- dóttir, ætti fyrirtækið en ekki hann. Þetta leiðréttist hér með. Jón Ásgeir átti 365 sem kunnugt er þar til eftir hrunið 2008 en þá eignaðist eiginkona hans það og á fyrrtækið í dag að stærstu leyti.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.