Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2013, Blaðsíða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2013, Blaðsíða 44
44 Lífsstíll 4.–6. október 2013 Helgarblað H vað er hægt að hugsa sér betra en að geta notið ís- lenska fjallaloftsins sem lengst eða sjávarlofts- ins sem er engu síðra? Lífsgæði sem svo sannarlega eru ekki alltaf sjálfgefin úti í hinum stóra heimi og við erum reglu- lega minnt á í fjölmiðlum varð- andi loftmengun ýmiss konar. Í löndum þar sem loftmengunin er hvað mest, er fólki jafnvel ráðlagt að halda sig innan dyra með klút fyrir vitum. Dögum og jafnvel vik- um saman, á sama tíma og horft er frá sömu löndum, jafnvel alla leið frá Kína, til hálendis Íslands öfundaraugum og þar sem sumir vilja byggja heilsuhæli. Tóbaksreykingar heilbrigðisógn Hvað sem öllum þessum vanga- veltum líður eru tóbaksreyk- ingar, beinar og óbeinar í okk- ar nærumhverfi, mjög alvarlegur mengunarvaldur á Íslandi í dag og telst einnig meðal mestu heil- brigðisógna framtíðar. Og gleym- um ekki að börn og unglingar sem erfa eiga landið, framkvæma fyrr eða síðar það sem fyrir þeim er haft í æsku. Reykingar snerta marga og eru ekki einkamál neins eins þegar upp er staðið. Tóbaksreykingar er tjörusvartur blettur á nútíma samfélagi sem tengist fíkn, sjúk- dómum og dauða af eigin völd- um. Stórum útgjaldalið í heil- brigðismálunum. Fíkn sem samt er ótrúlega auðvelt að sniðganga með réttu hugarfari. Í pólitíkinni og dægurþrasinu efumst við sí- fellt um hver hafi rétt fyrir sér og hvað skipti mestu máli í þjóðfé- laginu. Í lífinu sjálfu eru nokkr- ar einfaldar staðreyndir sem all- ir ættu að getað tekið mark á, sem kosta oft minna en ekkert. Hreyf- ing, tóbakslaust líf og hollt matar- æði, svo einfalt er það. Hreint loft Ekkert nema hreint loft kemur í veg fyrir flestu áunnu lungnasjúk- dómana í dag. Lungnateppan er algengust, þar sem samsvörun- in á ástandi lungnanna getur að lokum átt við slitinn svamp. Þótt hann haldi útliti sínu við fyrstu sýn, heldur hann ekki vatni. Í lungnaþembu, lokastigi teppunn- ar, eru lungun líka illa slitin inn- an frá og halda ekki nýju lofti til loftskipta. Nýtt súrefnisríkt loft í lungnablöðrur sem eru sundur- slitnar, í stað gamla loftsins sem erfiðara er að losna við. Teppa og þemba í lungum sem í dag tengist fyrst og fremst tóbaksreykingum. Spáð er að algengasta dánar- orsök mannsins á næsta ára- tug verði ásamt hjarta- og æða- sjúkdómum sem einnig tengjast tóbaksreykingum auk afleiðinga sykursýkinnar, langvinn lunga- teppa og þemba. Í þeirri tölu eru ekki taldar með afleiðingar lungnakrabbameinsins sem tengist tóbaksreykingunum síðan meira en nokkuð annað. Saman- tekt þriggja kannana árið 2012 á reyktóbaksneyslu Íslendinga sýna engu að síður að í aldurshópn- um 15–89 ára reykja rúmlega 14% og þar af tæplega 22%, 20–29 ára karlmanna. Lungnabilun fyrir aldur fram Í grein í Læknablaðinu fyrir rúm- lega ári birtust niðurstöður rann- sóknar Guðrúnar Dóru Clar- ke, heimilislæknis á Akureyri, og félaga um algengi reykinga og langvinnrar lungnateppu á Ís- landi. Af þeim sem voru með sögu um reykingar, höfðu hvorki meira né minna en 16% merki um langvinna lungnateppu og þar af voru 2/3 sem ekki vissu um sjúk- dóminn þegar hann var stað- festur með lungnamælingu. Það alvarlegasta í niðurstöðunum var þó sú staðreynd að um 70% af þessum hóp voru með sjúkdóm- inn á það alvarlegu stigi að hann stefndi í lungnabilun fyrir aldur fram eða um 65 ára aldur að með- altali sem leitt gæti til dauða fyr- ir 70 ára aldur. Vitað er hins vegar að líkurnar snarbatna ef strax er tekin ákvörðun um að hætta reyk- ingum, því fyrr því betra en sem aldrei er of seint. Endastigið getur verið öndunarvél Læknar þurfa að vera duglegri að spyrja um reykingar og fá jafn- vel alla fullorðna sem reykja til að mæta í lungnamælingu og athuga hvort þeir séu haldnir alvarlegum, en oft leyndum algengum lungna- sjúkdómi, lungnateppu. Þetta er hlutverk heilsugæslunnar, alveg eins og við reynum að leita ein- kenna annarra alvarlegra sjúk- dóma í tíma. Við öll í heilsugæsl- unni þurfum stöðugt að vera á verði og nota hvert tækifæri sem gefst til að benda á þær staðreynd- ir sem skipt geta öllu máli í lífinu síðar. Eina leiðin til að stoppa framgang lungnateppu og lungna- bilun síðar, sem og aðra alvarlega sjúkdóma tengda reykingum er að hætta í tíma. Endastigið getur að öðrum kosti verið öndunarvél heima í besta falli eða með súr- efniskút á bakinu fyrir aldur fram, áður en allt um lýkur. n Vilhjálmur Ari Arason Af sjónarhóli læknis „Tóbaksreykingar er tjörusvartur blettur á nútíma sam- félagi sem tengist fíkn, sjúkdómum og dauða af eigin völdum. Hvað mega reyk- ingar kosta okkur? 10 mínútna eftirréttur n Hollur og fljótlegur eftirréttur sem auðvelt er að útbúa Þ egar gesti ber óvænt að garði er gott að geta skellt í auðvelt og fljótlegt góðgæti. Á síð- unni Oprah eru nokkrar slík- ar uppskriftir, til dæmis þessi réttur sem er bakaður í örbylgjuofninum og er ekki einungis fljótlegur heldur einnig hollur. Uppskrift: n 2 epli n 2 tsk. púðursykur n ½ tsk. múskat n 1 msk. mulinn kanill n 2 msk. rúsínur n 2 msk. hunang eða agavesíróp Leiðbeiningar Takið kjarnann úr eplunum og sker- ið þau í stóra bita. Setjið bitana í skál sem þolir örbylgju og stráið púðursykri, múskati, kanil og rús- ínum yfir. Dreifið svo hunanginu eða sírópinu yfir allt. Setjið lok yfir og í örbylgjuofninn í þrjár mínútur eða þar til eplin eru orðin lin. Leyf- ið þessu að kólna í nokkrar mín- útur áður en þessa er neytt. Einnig má toppa þetta með matskeið af hreinni jógúrt. n gunnhildur@dv.is Bökuð epli Með kanil, múskati, púðursykri og sírópi. Getur ekki klikkað. Nýtur friðhelgis í að vera skrýtin n Ætlar að standa á haus á nýjum stað á hverjum degi n Solla tekur þátt í Meistaramánuði S olla Eiríksdóttir, lífsstílsfröm- uður og margverðlaunaður hráfæðikokkur, tekur virkan þátt í Meistaramánuðinum. „Ég ákvað að gera þrjú atriði í þessum mánuði. „Ég ætla að standa á haus á hverjum degi, gera hné- beygjur þrisvar á dag og svo ætla ég að hugleiða tíu mínútur á dag,“ segir Solla milli anna í samtali við DV. „Ég kaus að gera þetta svona oft- ast nær á svona óhefðbundnum stöðum og þannig get ég ekki afsakað mig fyrir að hafa ekki tíma til að gera þessar æfingar heldur geri ég þær á þeim stað sem ég er á þá stundina,“ segir Solla glöð í bragði. Hún segist hafa lært að standa á haus í sér- stakri jógastöðu á námskeiði í Kaup- mannahöfn fyrir rúmlega 30 árum. „Jóginn sagði við okkur að ef það væri einhver ein æfing sem maður ætti að leggja rækt við þá væri það höfuð- staðan. Þá fer allt blóðflæði til heil- ans og þetta hjálpar sogæðum lík- amans og innyflin fá nudd í leiðinni,“ segir Solla um höfuðstöðuna. Uppátækið gleður nærstadda Hún segist hafa einsett sér að fara í höfuðstöðuna daglega í Meistara- mánuðinum og „Instagramma“ ljósmynd af uppátækinu hvern dag út mánuðinn bara upp á gamn- ið. „Fólk sem þekkir mig kippir sér ekki upp við neitt sem ég geri. Ég er með svona friðhelgi í að vera skrýt- in hjá mínum nánustu. En fólk sem þekkir mig ekki getur orðið svona ponsu feimið af því að það þekkir mig ekki,“ segir Solla sem segir að uppátækið veiti yfirleitt nærstödd- um bæði innblástur og gleði. „Það eru alveg tíu manns sem hafa haft samband til að fá leiðbeiningar um hvernig þetta er gert,“ segir Solla. „Ef þú getur ekki gert þetta frístand- andi á gólfinu þá er hægt að gera þetta uppi við vegg. Ég get gert þetta hvar sem er af því að ég er búin að gera þetta svo lengi, ég þarf bara eitthvað smá mjúkt, viskastykki eða eitthvað undir höfuðið. Þetta reyn- ir á magavöðvana, þú ert að fara svona hægt upp og niður með lapp- irnar. Maður notar rassvöðvana og lokar grindarbotnsvöðvunum, svona múltí æfing,“ segir Solla sem segist standa á hvolfi í sirka fimm mínútur að meðaltali. Fáránlega gott „Ég get alveg staðið í hálftíma en ég hef bara aldrei prufað að standa lengur,“ segir Solla sem er komin yfir fimmtugt og orðin amma. Að- spurð hvernig henni leið eftir hálf- tíma á hvolfi fór Solla að hlægja. „Ég var bara í stuði, þetta er svo Svala Magnea Georgsdóttir blaðamaður skrifar svala@dv.is Á haus á borðstofuborðinu Solla tekur Meistaramánuðinn með trompi og segist ætla að standa á haus á óvenjulegum stöðum daglega. Á haus á hárgreiðslustofunni „Ég get alveg staðið í hálftíma en ég hef bara aldrei prufað að standa lengur,“ segir Solla sem er komin yfir fimmtugt og orðin amma.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.