Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2013, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2013, Blaðsíða 28
28 Sport 4.–6. október 2013 Helgarblað Toppliðin geta slitið sig frá öðrum liðum n Arsenal nálgast met yfir flesta útisigra n Manchester United mætir botnliðinu Viðsnúningur United S jöunda umferð ensku úr- valsdeildarinnar fer fram um helgina og má segja að þetta sé umferðin þar sem toppliðin geta slitið sig frá öðrum liðum deildarinnar. Arsenal, Liverpool, Tottenham og Chelsea eru í fjórum af fimm efstu sætunum og ættu þau öll að geta landað þremur stigum um helgina. Manchester City, sem situr í 7. sæti, mætir hins vegar Everton, sem situr í 4. sæti, og er óhætt að fullyrða að það sé stórleikur umferðarinnar. City óstöðvandi heima Umferðin hefst í hádeginu á laugar- dag þegar City og Everton mæt- ast. City-vélin hefur hikstað í byrj- un leiktíðar og átt sérstaklega erfitt á útivelli. Á heimavelli hefur City þó verið óstöðvandi þar sem liðið hefur unnið alla þrjá leiki sína og er með markatöluna 10–1. Everton hefur komið á óvart og er liðið þegar komið með 12 stig. Liverpool hefur byrjað tímabilið af miklum krafti og situr í 2. sæti fyrir umferðina með 13 stig. Liðið mætir nýliðum Crystal Palace á An- field á laugardag og ætti að landa þægilegum sigri. Palace er í 19. sæti deildarinnar með 3 stig og hefur liðið tapað fimm af fyrstu sex leikj- um sínum á leiktíðinni. Moyes á skilorði Manchester United hefur verið í tómu tjóni í deildinni en David Moyes og lærisveinar hans ættu að geta snúið taflinu sér í hag þegar United heimsækir botnlið Sunder- land. United er með 7 stig úr fyrstu 6 leikjunum og er liðið í 12. sæti fyrir umferðina. Paolo Di Canio var rekinn úr stjórastóli Sunderland á dögunum og voru ákveðin bata- merki á liðinu í tapleiknum gegn Liverpool um liðna helgi. Sunder- land er eina liðið í deildinni sem enn hefur ekki unnið leik og kemur ekkert annað en sigur til greina hjá United. Stuðningsmenn liðsins eru margir orðnir óþreyjufullir vegna afleits gengis í síðustu leikjum. Lundúnaslagur Tottenham, Chelsea og Arsenal verða í eldlínunni á sunnudag. Chelsea heimsækir Norwich sem vann góðan útisigur gegn Stoke um síðustu helgi á meðan Chelsea gerði jafntefli við Tottenham á White Hart Lane. Chelsea er í 5. sæti deildarinnar með 11 stig en Norwich í 14. sæti með 7 stig. Tottenham og West Ham mæt- ast í Lundúnaslag og ætti Totten- ham að geta haldið áfram góðu gengi sínu í deildinni. Liðið er í 3. sæti deildarinnar með 13 stig, sama stigafjölda og Liverpool en lakara markahlutfall. West Ham hefur byrjað tímabilið illa og er í 17. sæti með 5 stig og án sigurs síðan í fyrstu umferðinni. Átta útisigrar í röð Einn af athyglisverðustu leikjum umferðarinnar fer fram á The Hawthorns þegar WBA tekur á móti toppliði Arsenal. WBA vann verðskuldaðan sigur á Manchest- er United á Old Trafford um liðna helgi og virðast Steve Clarke og hans menn geta unnið hvaða lið sem er á góðum degi. WBA er þrátt fyrir það í 10. sæti deildarinnar með 8 stig en liðið hefur fengið sjö stig af níu mögulegum í síðustu þrem- ur leikjum sínum. Arsenal hefur að sama skapi unnið síðustu fimm deildarleiki sína og hefur liðið nú unnið átta útileiki í röð. Arsene Wenger og hans menn eru tilbúnir í titilbaráttuna. n Laugardagur Man. City - Everton 2-2 „Everton hefur farið vel af stað en City ekki alveg jafn vel. Þeir eru samt traustir en það er einhver meðbyr með Everton og þeir ná þarna góðu stigi. Ég gæti trúað að City verði í smá basli í vetur. Það er eitthvað sem segir mér að núna sé tækifæri Arsenal, Liverpool og Tottenham að blanda sér af fullum krafti í titilbaráttuna.“ Cardiff - Newcastle 2-1 „Newcastle-menn vilja kvitta undir tapið gegn Everton á mánudag en Cardiff- menn eru sterkir heima og vinna góðan heimasigur.“ Fulham - Stoke 0-0 „Þetta verður markalaust jafntefli fyrst þetta er Stoke. Þetta eru lið sem verða í baráttunni á botninum í vetur. Ég held að það sé alveg klárt.“ Hull - Aston Villa 2-0 „Steve Bruce, stjóri Hull, er flottur og hans menn klára þetta nokkuð sannfær- andi. Hann var góður leikmaður á sínum tíma og virðist vera góður stjóri.“ Liverpool - C. Palace 4-0 „Liverpool-liðið lítur mjög vel út og þeir vinna auðveldan sigur. Eigum við ekki að segja að Steven Gerrard komi sterkur inn og skori sitt fyrsta mark í deildinni.“ Sunderland - Man.United 1-3 „Ég held að Sunderland komist yfir í þess- um leik. Svo tekur Moyes hálfleiksræðuna og fer loksins að ná til sinna manna. Þarna verður viðsnúningur United á tímabilinu.“ Sunnudagur Norwich - Chelsea 0-2 „Chelsea-liðið verður klárlega í titilbar- áttu en þeir eru samt búnir að vera í smá basli. Þeir verða traustir með tímanum. Það verður annarra liða að taka titilinn af þeim.“ Southampton - Swansea 1-1 „Það er mikið undir hjá báðum liðum og þetta verður stál í stál.“ Tottenham - West Ham 3-0 „Meðbyrinn er með Tottenham og þeir vinna þarna 3–0. Gylfi skorar ekki að þessu sinni en Soldado með tvö mörk og Eriksen með eitt klára dæmið.“ WBA - Arsenal 0-1 „Arsenal-liðið lítur gríðarlega vel út. Þeir vinna þetta 1–0 en þetta verður erfitt í ljósi sigurs WBA á Old Trafford um síðustu helgi. Özil skorar þarna í öðrum leiknum í röð.“ „Það er mikið undir hjá báðum liðum og þetta verður stál í stál Einar Þór Sigurðsson blaðamaður skrifar einar@dv.is G rétar Sigfinnur Sigurðsson, leikmaður nýkrýndra Ís- landsmeistara KR, er spá- maður umferðarinnar að þessu sinni. Grétar segist vera hálf- gerð „liðahóra“ og ekki halda með neinu sérstöku liði. „Ég er upp- alinn Liverpool-maður en fór svo að halda með Chelsea þegar Eiður var þar og svo fór maður að halda með United. Ég veit ekki með það lengur. Ég horfi á allt en er fyrst og fremst KR-ingur,“ segir Grétar. Grétar Sigfinnur hefur haldið með Liverpool, Chelsea og United Vissir þú … … að ekkert lið hefur átt fleiri sendingar á tímabilinu (732) en Everton á síðasta vallarþriðjungnum. … að Romelu Lukaku hefur skor- að 14 mörk á árinu í úrvalsdeildinni. Aðeins Benteke (18), Sturridge (15) og van Persie (15) hafa skorað fleiri. … að Gareth Barry varð á mánudag 10 leikmaðurinn til að spila 500 leiki í úrvalsdeildinni. … að Everton hefur ekki tapað á mánudegi í úrvalsdeildinni síðan gegn Liverpool, 3–2, í apríl 2001. … að Aston Villa hefur nú fengið á sig 1.000 mörk frá stofnun úrvalsdeildar- innar. Aðeins Tottenham (1.068) og Everton (1.023) hafa fengið á sig fleiri. … að Daniel Sturridge hefur skorað 8 af síðustu 10 mörkum Liverpool í úrvals- deildinni. … að enginn leikmaður hefur farið í fleiri tæklingar en Aaron Ramsey hjá Arsenal, eða 33. … að Arsenal var síðast 8 stigum á undan Manchester United þann 11. maí árið 2005. … að Chelsea á metið yfir flesta útisigra í úrvalsdeildinni (11). Arsenal hefur nú unnið 8 í röð. Toppliðið Ekkert lið hefur leikið jafn vel og Arsenal á tímabilinu. Liðið er á toppnum en gæti átt erfiðan leik fyrir höndum gegn WBA um helgina.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.