Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2013, Blaðsíða 42
Þ
egar ólýsanlega erfið sorg
nístir fjölskyldur er mis-
jafnt hvernig fólk tekst á
við missinn. Sorg getur
sameinað fólk en hún get-
ur líka sundrað og tætt upp sé hún
ekki gerð upp. Líf Heru Karlsdóttur
og fjölskyldu hennar breytist á
einu augabragði þegar eldri bróð-
ir hennar deyr af slysförum. Fjöl-
skyldumeðlimir takast allir á við
sorgina í sínu horni og mótar hún
líf þeirra. Hera er 12 ára þegar bróð-
ir hennar deyr og kennir sjálfri sér
um hvernig fór fyrir bróður sínum.
Hugarró finnur hún í þungarokki
og á sér þann draum heitastan
að verða rokkstjarna. Fjölskyldan
er nokkuð týpískt íslensk sveita-
fjölskylda á tíunda áratug síðustu
aldar. Fyrir utan auðvitað það að
dóttirin er af flestum talin snarbil-
uð enda gerir hún lítið annað en að
hlusta á þungarokk og gera allt vit-
laust í sveitinni. Henni er þó flest
fyrirgefið því þó ekki sé talað um
það þá vita allir hvað gerðist. Hin
mikla sorg litar líf þeirra allra og
hefur gert alveg frá því bróðirinn
féll frá.
Hera er leikin af Þorbjörgu
Helgu Karlsdóttur og ferst henni
hlutverkið afar vel úr hendi. Þetta
er ekki auðvelt hlutverk að túlka,
hálf geðveik rúmlega tvítug kona
sem er með þungarokk á heilan-
um og hagar sér yfirleitt eins og
asni. Ég hugsa að það hefði verið
mjög auðvelt að klúðra þessu hlut-
verki, ofleika það eða leika það illa
en Þorbjörg Helga gerir þetta full-
komlega. Maður finnur til samúð-
ar með henni en á sama tíma skil-
ur maður á tímabili ekki af hverju
enginn er búinn að koma henni
undir læknishendur. En Hera er
ekki eina persóna sögunnar sem er
áhugaverð. Reyndar er öll persónu-
sköpun afskaplega góð og sann-
færandi. Foreldrar Heru eru leiknir
af þeim Halldóru Geirharðsdóttur
og Ingvari E. Sigurðssyni sem
fara afar vel með sín hlutverk.
Aukaleikararnir standa sig líka vel
og þá finnst mér sérstaklega vert að
minnast á besta vin Heru, leikinn
af Hannesi Óla Ágústssyni, sem er
skemmtilega fyndin sveitatýpa.
Á heildina litið er myndin
virkilega góð og vel gerð. Hún er
í senn átakanleg og sorgleg en
líka mjög fyndin. Kvikmyndatak-
an sjálf fannst mér ótrúlega flott,
tónlistin sem var í höndum Péturs
Ben, rammaði vel inn myndina og
veitti henni aukna dramatík á köfl-
um auk þess að vera bara ótrúlega
vel gerð. Í myndinni er greinilega
vel pælt í öllum smáatriðum og
stemmingin skilar sér vel til áhorf-
enda.
Ef það er eitthvað sem ég hef
út á að setja þá fannst mér nokk-
ur atriði enda kannski heldur stutt-
aralega, sérstaklega í seinni hluta
myndarinnar og ekki nægilega vel
gerð grein fyrir af hverju hlutirnir
fóru svona (ég vil ekki segja of mik-
ið svo ég kjafti ekki frá mikilvægum
atriðum). En mér fannst það samt
ekki koma það mikið að sök að það
gengi ekki upp. Heilt yfir er þetta
með betri íslenskum myndum sem
ég hef séð og hvet ég alla til þess
að sjá hana í bíó. Reyndar spái ég
líka rokkæði meðal ungra stúlkna
á Íslandi. Ég fann allavega hjá mér
áður óþekkta löngun til þess að
hlusta á þungarokk og læra á bassa
eftir að hafa horft á þessa mynd. n
Bifreiða- og vélaverkstæði • Álhellu 8
Hafnarfirði • Sími 577 6670 • velras.is
Er bíllinn tilbúinn fyrir veturinn?
Allar almennar bílaviðgerðir – Gírkassa- og vélaviðgerðir.
Yfirförum, gerum við og förum með í skoðun sé þess óskað.
Fljót og góð þjónusta.
Metanbreytingar
HÁTÆKNIBÚNAÐUR
EINN VIRTASTI FRAMLEIÐANDI
METANBÚNAÐAR Í EVRÓPU
HRINGDU STRAX OG FÁÐU UPPLÝSINGAR
Sparaðu bensín!
Metanvæddu bílinn!
Málmhaus Hera
finnur huggun í
sorginni í þungarokki.
Málmhaus
Leikstjóri og handritshöfundur: Ragnar
Bragason
Aðalhlutverk: Þorbjörg Helga Dýrfjörð, Ingvar
E. Sigurðsson, Halldóra Geirharðsdóttir, Sveinn
Ólafur, Hannes Óli Ágústsson
Tónlist: Pétur Ben
Kvikmyndir
Viktoría Hermannsdóttir
viktoria@dv.is
Virkilega góð og vel gerð
„Hún er
í senn
átakanleg og
sorgleg en líka
mjög fyndin
42 Menning 4.–6. október 2013 Helgarblað