Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2013, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2013, Blaðsíða 29
Óskalisti Moyes Sport 29Helgarblað 4.–6. október 2013 D avid Moyes hefur átt erfiða daga síðan hann tók við liði Manchester United í sumar. Þó hann sé með sama leik- mannahóp, að megninu til, og forveri hans Alex Ferguson, hefur þessi reyndi knattspyrnustjóri átt í ba- sli. Hann var gagnrýndur harðlega eftir leikinn gegn Manchester City á dögun- um, þar sem liðið tapaði illa. Ekki tók betra við um síðustu helgi þegar liðið tapaði á heimavelli fyrir West Brom, 2–1. Liðsuppstilling Moyes og leik- skipulag hefur verið gagnrýnt í bresk- um fjölmiðlum en ljóst þykir að hann þarf að styrkja liðið í félagaskiptaglugg- anum í janúar. Vefsíðan Talksport hef- ur tekið saman lista yfir sex leikmenn sem gætu hjálpað Moyes og lærisvein- um hans að snúa genginu til betri vegar. Það þykir ekki ásættanlegt á Old Trafford að vinna tvo leiki af hverjum sex. 12. sæti er ekki eitthvað sem stuðn- ingsmenn félagsins geta sætt sig við. Ef gengið batnar ekki í næstu leikjum er ljóst að Moyes getur fátt annað gert en að opna veskið í janúar. Þessir leik- menn gætu verið efst á óskalistanum. Leighton Baines Staða: Bakvörður Félag: Everton Martin Hinteregger Staða: Varnarmaður Félag: Salzburg Andreas Iniesta Staða: Miðvallarleikmaður Félag: Barcelona Ander Herrera Staða: Miðvallarleikmaður Félag: Atletic Bilbao Andrea Pirlo Staða: Miðvallarleikmaður Félag: Juventus Daniele De Rossi Staða: Miðvallarleikmaður Félag: Roma Samningur þessa stórkostlega leikmanns við Barcelona rennur út árið 2015. Hann hefur verið bendlaður við bæði Manchester-liðin en hefur þó látið hafa eftir sér að hann myndi vilja vera áfram á Nou Camp. Hann gæti þó staðið frammi fyrir því að verða seldur í janúar ef Barcelona ákveður að reyna að fá góðan pening fyrir leikmanninn, sem verður þrítugur í vor. Ljóst er að Iniesta, sem er heimsmeistari og hefur þrisvar unnið meistaradeild Evrópu, yrði hvalreki fyrir hvaða lið sem er. Nemanja Vidic og Rio Ferdinand eru engin unglömb lengur og fyrirséð að innan fárra ára þurfi breytingar að eiga sér stað í hjarta United-varnarinnar. Phil Jones og Jonny Evans hafa staðið sig ágætlega á köflum en óvíst er hvort þeir muni skipa stöðurnar til framtíðar. Martin Hinteregger, sem þykir afburða efni og er í U-21 árs liði Austurríkis, hefur bæði verið orðaður við Arsenal og Liverpool auk þess sem Juventus hefur borið í hann víurnar. Manchester United var nálægt því að tryggja sér þjónustu þessa öfluga bakvarðar í sumar. Baines var sjálfur á því að fylgja Moyes til United en kaupin gengu ekki í gegn. Baines hefur spilað afbragðs vel á keppnistímabilinu og skoraði til að mynda tvö mörk úr aukaspyrn- um í 3–2 sigri á West Ham nýlega. Framtíð vinstri bakvarðarins Patrice Evra er óljós því auðkýfingarnir í Monaco hafa borið í hann víurnar. Annað tilboð í Evra er líklegt til að líta dagsins ljós. United bauð 12 milljónir punda í leikmanninn í sumar en því boði var hafnað. Líklegt verður að þykja, í ljósi þess að miðjan hjá Untied hefur verið gagnrýnd mikið í haust, að Moyes geri aðra tilraun eftir áramót. De Rossi er frábær alhliða miðjumaður sem myndi styrkja United mikið. Hann er þrítugur, fullur af orku og hefur mikla ástríðu fyrir leiknum. Ef til vill gæti De Rossi orðið lykillinn að bættu gengi Moyes og United. Samningur Pirlo við Juventus rennur út undir lok leiktíðarinnar. Hann gæti því komið frítt til United. Þó leikmaður- inn sé ekkert unglamb, 34 ára, gæti hann einmitt verið maðurinn til að fylla skarðið sem Paul Scholes skildi eftir sig á miðjunni. Yfirsýn hans á vellinum, leiðtogahæfileikar og afburða sendingageta er einmitt það sem Manchester United þarf á að halda nú um stundir – eða þar til framtíðarmaður finnst í stöðuna. Rauðu djöflunum mistókst að tryggja sér þjónustu þessa 24 ára miðvallar-leikmanns í sumar. Fréttir voru meðal annars sagðar af lögmönnum sem villtu á sér heimildir á meðan samningsumleitanir áttu sér stað. United bauð að sögn 30,5 milljónir punda í leikmanninn en af kaupunum varð ekki. Moyes og stjórnarformaðurinn Ed Wood- ward eru líklegir til að reyna aftur í jan úar. Herrera hefur lýst yfir áhuga sínum á því að ganga til liðs við Englandsmeistarana og gæti örugglega styrkt miðjuna hjá Moyes mikið. Baldur Guðmundsson blaðamaður skrifar baldur@dv.is Wenger boðinn nýr samningur Arsene Wenger, knattspyrnustjóra Arsenal, verður boðinn nýr þriggja ára samningur á næstunni. Skrifi hann undir mun hann fá einn og hálfan milljarð króna í árslaun. Wenger hefur verið í stjórastól Arsenal frá árinu 1996 og gengið í gegnum súrt og sætt á ferli sínum hjá félaginu. Eftir mögur ár virðist loks vera farið að birta til hjá Wen- ger og lærisveinum hans enda situr Arsenal á toppi ensku úrvals- deildarinnar þessa dagana. Stórlið vilja fá Januzaj Svo gæti farið að Adnan Januzaj, einn efnilegasti leikmaður Manchester United, yfirgefi fé- lagið á frjálsri sölu næsta sumar. Samningur leikmannsins við Eng- landsmeistarana rennur út næsta sumar og hafa viðræður um nýjan samning siglt í strand. Umboðs- maður kappans, Dirk De Vriese, segir að stórlið um alla Evrópu fylgist grannt með gangi mála og má í því samhengi nefna Juvent- us og Manchester City. Viðræður um nýjan samning hættu þegar Sir Alex Ferguson lét af störfum í vor, en forsvarsmenn liðsins eru von- góðir um að leikmaðurinn, sem hefur átt fína innkomu í lið United í haust, skrifi undir nýjan fimm ára samning á næstunni. Juventus vill Lukaku Ítalska stórliðið Juventus hefur áhuga á belgíska ungstirninu Romelu Lukaku leikmanni Chelsea. Lukaku er sem stendur í láni hjá Everton þar sem hann hefur skorað þrjú mörk í fyrstu þremur leikjum sínum. Breska blaðið Mirror greinir frá því að Juventus muni reyna að nýta sér þá staðreynd að umboðsmaður Lukaku sé hinn ítalski Mino Rai- ola. Raiola er einmitt maðurinn sem kom Paul Pogba, einum efni- legasta miðjumanni heims, til Juventus frá Manchester United á sínum tíma. n Miðjan hjá United gagnrýnd í haust n Moyes þarf að versla í janúar Erfitt Moyes hefur ekki byrjað vel með United.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.