Fréttablaðið - 14.01.2016, Síða 32
Förðunarlína Paltrow er framleidd
undir merkjum snyrtivöruframleið-
andans Juice Beauty en henni til-
heyra 78 vörur fyrir andlit, augu og
varir. Línan er afsprengi samstarfs
Paltrow og Karen Behnke, stofn-
anda og framkvæmdastjóra Juice
Beauty. Fyrirtækið hefur starfað
í tíu ár og framleitt ýmsar lífræn-
ar snyrtivörur en tók upp samstarf
við Paltrow í byrjun síðasta árs með
það fyrir augum að bæta förðunar-
línu við.
Tók Til sinna ráða
Paltrow lýsir tilurð línunnar svo:
„Ég hef þurft að nota mikið af förð-
unarvörum starfs míns vegna og
nú eftir fertugt nota ég þær í aukn-
um mæli hversdags,“ segir Palt-
row, sem heldur úti heilsuvefsíð-
unni Goop. „Í tengslum við hana
sökkti ég mér niður í rannsóknir á
eiturefnum í snyrtivörum og komst
að því að notkun þeirra er mjög út-
breidd. Ég hugsa mikið um það sem
ég læt ofan í mig og vil ekki síður
vera meðvituð um það sem ég ber á
mig. Ég fór því að prófa mig áfram
með náttúrulegar förðunarvör-
ur en fann engar sem stóðust kröf-
ur mínar hvað varðar áferð, end-
ingu og gæði.“
Paltrow ákvað því að taka til
sinna ráða og þróa og framleiða há-
gæða förðunarvörur án eiturefna.
Hún segist vel hafa getað gert línu
undir eigin nafni en ákvað í stað-
inn að efna til samstarfs við Juice
Beauty. „Þar á bæ voru menn að
leita að þekktu andliti til að styrkja
merkið og ég var að leita að þekk-
ingunni sem fyrirtækið hefur byggt
upp. Hefði ég farið út í þetta sjálf
hefði þróunarvinnan tekið
mun lengri tíma en auk
þess náðum við Behnke
mjög vel saman,“ útskýr-
ir Paltrow.
neyTendur
sífellT
meðviTaðri
Hún tók þátt í
vöruþróuninni frá
upphafi til enda
og er ánægð með
útkomuna. Hún
segir neytendur
sífellt meðvit-
aðri um hvað
þeir láta í sig
og á. „Ég spái því að áherslan á nátt-
úrulegar vörur muni bara aukast úr
þessu. Fleiri munu leggjast í rann-
sóknir sem gerir það að verkum að
verðið mun lækka og gæðin batna.“
viðráðanlegT verð
Stefna Juice Beauty er að bjóða
hreinar förðunarvörur á verði sem
almenningur ræður við en þær
kosta á bilinu 20-48 dollara eða um
það bil 2.600 til 6.300 krónur. Þær
komu á markað í Bandaríkjunum
en markið er sett á frekari út-
breiðslu.
Heimild: forbes.com
Sjá nánar á
JuiceBeauty.com
PalTrow með
förðunarlínu
Lífræn Leikkonan og heilsufrömuðurinn Gwyneth Paltrow kynnti nýja
lífræna förðunarlínu í byrjun vikunnar. Hún tók þátt í vöruþróuninni frá
upphafi og spáir því að fleiri muni velja hreinar vörur í framtíðnni.
Paltrow þarf að nota mikið af förðunarvörum starfs síns vegna. Henni blöskraði eiturefnanotkun í mörgum snyrtivörum. Eftir
að hafa prófað hreinni vörur komst hún að raun um að engar stóðust kröfur hennar um gæði. Hún tók því til sinna ráða.
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Verslunin Belladonna
Nýjar vörur
streyma inn
Stærðir 38-58
ALLAR HELGAR
365.is Sími 1817
Afinn sem allir elska og fjörugu vinkonurnar Skoppa
og Skrítla skemmta börnum og foreldrum á laugardags-
og sunnudagsmorgnum á Stöð 2.
HELGARFJÖR FYRIR FLOTTASTA FÓLKIÐ
14. janúar 20156 FóLk tíska
1
3
-0
1
-2
0
1
6
2
2
:3
8
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
8
2
6
-3
B
7
0
1
8
2
6
-3
A
3
4
1
8
2
6
-3
8
F
8
1
8
2
6
-3
7
B
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
6
4
s
_
1
3
_
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K