Fréttablaðið - 14.01.2016, Page 56
Hvernig á að sigrast
á hvimleiðum
janúarkvillum?
Grænmetið oG hreina
loftið eru vinir í raun
„Þetta hefðbundna sem fólk gerir yfir
jólin er að borða of þungt þannig að
það þarf í rauninni að létta matinn,“
segir Kolbrún Björnsdóttir grasa-
læknir.
Upphaf nýs árs er oft sá tími sem
fólk notar til þess að taka til í mataræð-
inu eftir að hafa notið
margs yfir nýaf-
staðna jólahátíð.
„Það getur verið
gott að taka út
mjólkurvörur,
sykurinn og allt
hvítt. Hvítt hveiti,
ger og stundum
glúten, það á þó ekkert endilega við
um alla,“ segir Kolbrún og leggur
áherslu á að vera duglegur að bragða á
grænmeti.
„Bara borða hreinan mat, meira
grænmeti en minna. Ekkert endilega
sleppa kjöti en ekki borða of mikið af
því. Svo er gott að taka einhverjar jurtir
til þess að hjálpa til við að hreinsa,“
segir Kolbrún og mælir meðal annars
með Suttungamiði sem fæst í Jurta-
apótekinu. Að auki mælir Kolbrún
með því að skella sér út
í hreina loftið og sjúga í
sig súrefni.
Kolbrún skellir sjálf
oft í einfaldan drykk sem
hún deilir með lesendum ef þeir
vilja prófa og fá sér í eldhúsinu.
Sellerí
Gúrka
Sítróna
Vatn
Einnig er hægt að setja kletta-
salat í eða jafnvel spínat og svo
eru herlegheitin sett í blandara.
Hlutföllin fara eftir smekk hvers og
eins og tilvalið að prófa sig áfram.
Kolbrún mælir sérstaklega með
drykknum á morgnana þó hann
sé auðvitað góður til síns brúks
hvenær dags sem er.
Guðrún Ansnes
gudrun@frettabladid.is
Janúarmánuður er tæplega hálfnaður og fólk líklega
þegar búið að heyja eina orrustu eða tvær við þá fylgi-
kvilla sem þessum misvinsæla mánuði fylgja. Samfélagsmiðlarnir loga
til að mynda af síkveinandi nýsprottnum ræktardurgum sem mega
hafa sig alla við að standa ógrenjandi upp af klósettskálinni vegna
harðsperra, á meðan aðrir hafa sogið upp í nefið látlaust og mega
eflaust muna fífil sinn fegurri. Sumir lufsast jafnvel áfram með hið
alræmda janúarsamviskubit. Fréttablaðið tók saman nokkur grund-
vallaratriði til þess að komast eins vel frá janúarkvillunum og hægt er.
1 4 . j a n ú a r 2 0 1 6 F I M M T U D a G U r44 L í F I ð ∙ F r É T T a B L a ð I ð
Lífið
Skotheld flenSuráð
Janúarflensan heilsar upp á ansi
marga um þessar mundir, og
boðflennan sem hún er, gerir sig
heimakomna með sitt slen, slím,
hor og hitavellu. Hér eru nokkur
skotheld ráð sem fólk ætti að hafa
bak við eyrað ef það hefur ekki í
hyggju að leggjast í rekkju.
l Borða hollan mat.
l Sofa nægilega vel.
l Forðast streitu.
Nota bréfþurrkur til að byrgja
nef og munn við hnerra og henda
notuðum þurrkum í lokaðan poka
eða fötu, og þvo hendurnar vand-
lega á eftir.
Tíður og almennur handþvottur
er besta vörnin. Til handþvotta
þarf vel volgt vatn og sápu og
nudd á öll svæði beggja handa í
15-20 sekúndur, skola og þurrka
vel með hreinu handklæði eða
pappírsþurrku.
Ef skömmin nær hins vegar ból-
festu, er vissara að hafa eftirfar-
andi við höndina:
l Pappír,
og nóg af
honum.
l Nefúða eða
saltvatn
til að skola
stíflaðar nasir.
l Hálstöflur.
l Vatn. Fullt af því.
l C-vítamín.
l Hvítlauk.
l Afþreyingu í tonnavís,
svo sem sjón-
varpsþætti,
hnaus-
þykkar
bækur
eða kvik-
mynda-
mara-
þon.
ekki Gráta yfir harðSperrunum
„Nei,“ segir Konráð Valur Gíslason, einkaþjálfari, þegar hann
er spurður um hvort mögulega megi komast hjá harð-
sperrum. „Sko, harðsperrur koma út frá vöðvavinnu, það
er þegar við gerum aðeins meira en við höfum verið að gera,
og þannig rifnar vöðvinn smá. Þannig verður hann sterkari
og við getum betur næst. Við ættum raunverulega að taka
harðsperrunum fagnandi.“
l Ekki láta það eftir þér að kyrrsetja þig, það er það versta.
l Auktu blóðflæðið, með léttri hreyfingu svo sem að labba upp létta
brekku eða lyfta létt.
l Borða prótein. Harðsperrur eru ekki annað en skemmd á vöðva, og þá
hjálpar að byggja sig upp svoleiðis.
l Létt nudd.
l Bólgueyðandi lyf eru ólíklega til að hjálpa í þessum aðstæðum.
l Heitt bað hjálpar sennilega ekki heldur.
l Taktu harðsperrunum fagnandi, það getur verið erfitt en með harð-
sperrunum aðlögumst við áreiti.
Skorpna
janúarhúð,
hypjaðu þiG!
Adda Soffía Ingvarsdóttir,
yfir förðunar- og fegurðarkafla
Glamour, segir fjölmargt hægt að
gera í þeim þurrki sem frostinu
fylgi. „Stærstu mistökin sem fólk
gerir er að hreinsa húðina ekki
almennilega, eða
nota bara vatn
og þvottapoka
til að þvo
hana. Að nota
hreinsiklúta er
sömuleiðis eitt
það versta sem
fólk býður húðinni
upp á. En það alversta sem hægt
er að gera, er að sofa með farða á
andlitinu, það bókstaflega býður
þurrkinum heim.“
1 Þekktu muninn á hvort húðin
þurfi fitu eða raka. Ef hana
vantar raka finnst þér hún vera
stíf og strekkt. Ef hana vantar
fitu er hún meira eins og sand-
pappír viðkomu
2 Hreinsun er númer eitt, tvö og
þrjú bæði kvölds og morgna.
Notaðu hreinsimjólk eða
hreinsiolíu til að fjarlægja farða
og hreinsa húðina.
3 Það er ekki nauðsynlegt að
skipta út dagkreminu, heldur
oft nóg að bæta við rakaserum
undir.
4 Rakamaski er nauðsyn fyrir allar
húðgerðir. Ef húðin er mjög þurr
skaltu ekki láta þér bregða þótt
þig svíði örlítið fyrst, það er eðli-
legt.
5 Notaðu varasalva og handáburð
áður en þú ferð út til að vernda
varir og hendur. Skiptu púðrinu
út fyrir fljótandi eða krem-
farða eða BB krem. Það verndar
húðina fyrir frosti.
6 Vatn getur þurrkað húðina svo
styttu bað- og sturtuferðir.
janúarSamviSkubitið látið lönd oG leið
Mörg hver þjáumst við af janúarsamviskubitinu, þar sem
allnokkur pressa er á fólki að taka rækilega til í lífinu
strax á nýársdag með betri útgáfum á alla kanta. Tara
Margrét Vilhjálmsdóttir hjá Líkamsvirðingu segir lykil-
atriði í þessari holskeflu líkamsræktarátaka landsins að
fyrst og fremst hlusta á líkamann. „Ef við horfum í fréttir
þar sem talað er um að fleiri sæki líkamsræktarstöðvar nú
en á sama tíma fyrir ári, sjáum við að markaðurinn er greini-
lega að stækka, svo mér sýnist öfgarnar vera meiri en í fyrra. Við verðum
að passa okkur á að vera gagnrýnin á skilaboðin og hlusta á okkur sjálf.“
1 Færir það sem þú ert að gera þér vellíðan á meðan?
2 Ekki horfa endalaust á kílóafjölda og endapunkt.
3 Líður þér raunverulega vel á þessum kúr?
4 Gagnast þetta líkama þínum?
5 Það þarf ekki alltaf að vera að breyta líkamanum eða forma hann og
það þarf ekkert alltaf að fara yfir sársaukamörk í æfingum.
6 Hlustum á líkamann, hvenær hann er svangur, saddur og allt þar á milli.
Heilsufar er óháð holdafari.
1
3
-0
1
-2
0
1
6
2
2
:3
8
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
8
K
_
N
Ý.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
8
2
6
-7
1
C
0
1
8
2
6
-7
0
8
4
1
8
2
6
-6
F
4
8
1
8
2
6
-6
E
0
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
6
4
s
_
1
3
_
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K