Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2008, Blaðsíða 6
föstudagur 10. október 20086 Fréttir
Sandkorn
n Sigmundur Eyþórsson,
fyrrverandi slökkviliðsstjóri
Brunavarna Suðurnesja, hefur
fengið nýtt starf hjá Reykja-
nesbæ en hann mun verða
sérlegur tækniráðgjafi bæjar-
félagsins.
Sigmundur
tók með-
al annars
þátt í fundi
umhverfis-
og skipu-
lagsráðs
Reykjanes-
bæjar þar
sem hann kynnti dagsekta-
ferli varðandi ólöglega gáma
í sveitarfélaginu. Sigmund-
ur sagði starfi sínu lausu hjá
Brunavörnum Suðurnesja
eftir að upp komst að hann
hafði veitt völdum fjölmiðlum
aðgang að tetra-kerfi slökkvi-
liðsins.
n Frá Sigmundi yfir í silíkon.
Kristrún Ösp Barkardóttir,
fyrrverandi
kærasta
knattspyrnu-
kappans
Dwights
Yorke,
gekkst undir
lýtaaðgerð
nú á dög-
unum en
hún lét uppfæra brjóst sín um
nokkrar skálastærðir. Aðgerðin
var framkvæmd í Keflavík en
Kristrún Ösp er að eigin sögn
mjög sátt við útkomuna. Hún
mælir reyndar með lýtalækn-
inum Ottó á blogginu sínu
og segir hann mjög góðan.
Hún gefur líka upp nákvæma
stærð á fyllingunni en hún er
hvorki meira né minna en 375
grömm.
n Sparisjóðir landsins hafa
ekki farið varhluta af ástand-
inu á Ís-
landi.
Sparisjóður
Keflavíkur
er með-
al þeirra
sem nú
glíma við
hin ýmsu
vandamál
en ljós hans í myrkrinu reynist
vera bæjarfélagið sjálft. Árni
Sigfússon, bæjarstjóri Reykja-
nesbæjar, segir bæjarfélag-
ið leita allra leiða til að koma
Sparisjóði Keflavíkur til hjálp-
ar. Sparisjóður Keflavíkur hef-
ur staðið dyggilega við bakið
á bænum að undanförnu en
bankinn borgaði meðal annars
eina veglegustu flugeldasýn-
ingu í manna minnum á sjálfri
Ljósanótt. Þannig að þjóðnýt-
ing virðist ekki blasa við spari-
sjóðnum en hann gæti hins
vegar orðið bæjarnýttur.
20 % afmælisafsláttur
af öllum hefðbundnum
myndatökum og stækkunum
í október.
Nú er um að gera að panta stax
Mynd - ljósmyndastofa í 25 ár.
MYND
Bæjarhrauni 26, Hafnarfirði
S: 565 4207 www.ljosmynd.is
Tvær þýðingarmestu útflutnings-
vörur Íslands eru ál og sjávaraf-
urðir. Fram kom í nýjum tölum frá
Hagstofu Íslands í upphafi mán-
aðarins að útflutningsverðmæti
áls það sem af er árinu er komið
yfir 100 milljarða króna. Af heild-
arútflutningi Íslands er hlutur áls
39 prósent, en sjávarafurðir fylgja
fast á hæla þess með 37 prósenta
hlut. Í ágúst var flutt út ál fyrir 15,4
milljarða króna sem reyndist 90
prósenta aukning frá sama mán-
uði í fyrra.
Halda sínu striki
„Reksturinn hér hjá okkur geng-
ur bara mjög vel og við erum bjart-
sýn. Við höfum enn sem komið
er ekki merkt nein áhrif þess sem
hefur verið að gerast og höldum
okkar striki,“ segir Erna Indriða-
dóttir, framkvæmdastjóri samfé-
lags- og upplýsingamála hjá Alcoa
Fjarðaáli. Álfyrirtæki hafa verið að
koma vel út undanfarið og Fjarða-
ál blómstrar við erfiðar aðstæður
hér heima.
Jákvæð gengisþróun
Erna segir sveiflurnar á gengi
krónunnar ekki hafa haft teljandi
áhrif hjá Fjarðaáli. „Tekjur okkar
eru í dollurum og stærstu kostn-
aðarliðir okkar einnig þannig að
gengissveiflur íslensku krónunnar
gagnvart dollaranum skipta okkur
þannig séð ekki miklu máli, en eru
kannski heldur jákvæðar ef eitthvað
er þegar gengi dollarans hækkar hér
á landi,“ segir Erna.
Álverð er í dag um 2,200 doll-
arar fyrir tonnið en hefur verið að
lækka undanfarið. Hæst fór það
í 3,000 dollara fyrir tonnið, sem
þótti óvenju hátt, en eins og Erna
bendir á var álverðið 1,600 dollar-
ar tonnið þegar ákvörðun var tek-
in um að reisa álverið fyrir austan.
Verðið sé því enn hærra en það var
þá.
80 milljarðar á ári
„Við flytjum út 6,500 tonn af áli
á viku en framleiðslugeta álvers-
ins er 346,000 tonn á ári. Tekjurnar
af þeirri framleiðslu eru áætlaðar
um 900 milljónir dollara. Með fyr-
irvörum um breytingar á verði og
gengi dollarans má ætla að þetta
séu 70-80 milljarðar króna á ári,“
segir Erna. Jákvæð áhrif álversins á
samfélagið fyrir austan hafa löng-
um verið tíðrædd en Alcoa hefur
ráðið um 450 manns til starfa. Um-
svifin eru því mikil.
Mikilvægi uppbyggingar
„Það skiptir máli í framleiðslu-
greinum að verið sé að framleiða,
selja og skapa gjaldeyri en við
finnum mikinn stuðning við þetta
verkefni og munum halda áfram að
vinna að því,“ segir Erna aðspurð
um nýtt álver á Bakka í Húsavík.
Margir hafa bent á að mikilvægt sé
að koma stórum álverum sem eru
í undirbúningi af stað við núver-
andi efnahagsástand.
Fall krónunnar bætir kjörin
Gengi krónunnar hefur áhrif
á kjör sjómanna eins og annarra
í greinum sem reiða sig á útflutn-
ing. En gengisfallið hefur ekki skil-
að sér inn í fiskverðið til þeirra
sjómanna sem eru að landa fiskn-
um, að sögn Hólmgeirs Jónsson-
ar, framkvæmdastjóra Sjómanna-
sambands Íslands. „Gengið hefur
vissulega áhrif á kjör sjómanna.
Við þekkjum það frá því krónan
var allt of sterk, þá rýrnuðu kjör
sjómanna og síðan lagaðist það
þegar krónan fór að veikjast. Ein-
hvers staðar er jafnvægið,“ segir
Hólmgeir. En hann segir gengis-
fallið ekki hafa skilað sér inn í fisk-
verðið. „Það hafa ekki orðið hækk-
anir á mörkuðum, ég veit svo sem
ekki af hverju, en það getur verið
að verð á erlendum mörkuðum sé
eitthvað að gefa eftir. En staðan hjá
sjómönnum er ekkert öðruvísi en
hjá almenningi almennt. Þeir eru í
sama limbóinu,“ segir Hólmgeir.
Umræða um kvótaaukningu
á villigötum
Guðni Ágústsson sagði í kvöld-
fréttum Stöðvar 2 á sunnudaginn
að hann teldi að auka ætti þorsk-
veiðikvótann um 40-50 þúsund
tonn. „Sjórinn er fullur af þorski,
segja sjómenn,“ sagði Guðni og
bætti við að taka yrði áhættuna.
Þessu er Hólmgeir ekki sammála
og telur allt tal um aukningu kvóta
hættulega. „Við erum að veiða
samkvæmt ráðgjöf Hafró til þess að
byggja fiskistofninn upp til fram-
tíðar. Og í þessum erfiðleikum get-
um við ekki sleppt því að horfa til
framtíðar þannig að mér finnst sú
umræða vera aðeins á villigötum,“
segir hann aðspurður um nánustu
framtíð í fiskveiðum þjóðarinnar.
Græða á útflutningi aflans
Það getur munað tugum, jafn-
vel hundruðum þúsunda króna,
í launaumslögum sjómanna eft-
ir því hvort landað sé fyrir innan-
landsmarkað eða til útflutnings,
miðað við dapurt gengi krónunn-
ar í augnablikinu. DV ræddi við
háseta á Vesturlandi sem sagði að
það væri að skila sér í mikilli tekju-
aukningu hjá þeim sem stund-
uðu útflutning á sjávarafurðum
við núverandi ástand. Hann segir
sjómenn hafa það almennt ágætt
um þessar mundir þrátt fyrir að
ástandið í landi væri ekki beisið.
Hásetinn, sem vildi ekki láta nafns
síns getið, vinnur sjálfur á bát sem
landar öllu á innanlandsmark-
að og þar hefði mönnum reiknast
til að þeir myndu fá umtalsverða
launahækkun með því að selja afl-
ann úr landi. Hann sagðist telja að
meirihluti sjómanna væri fylgjandi
því að þorskkvótinn yrði aukinn í
takt við það sem Guðni Ágústsson
talaði fyrir. „Við þurfum nánast að
forðast allan þorskinn þarna úti.
Þetta er vinnan okkar og við sjáum
hvað er að gerast með eigin aug-
um.“
„Við þekkjum það frá því krónan var allt of
sterk, þá rýrnuðu kjör sjómanna og síðan lag-
aðist það þegar krónan fór að veikjast.“
SiGUrðUr Mikael JónSSon
blaðamaður skrifar: mikael@dv.is
Blómstra
í kreppu
Útflutningsgreinar hafa notið góðs af lágu gengi krónunnar. Tvær þýðingarmestu útflutn-
ingsvörur Íslands eru ál og sjávarafurðir sem samanlagt eru um 75 prósent af heildarút-
flutningi þjóðarinnar. Fall krónunnar fer illa með almenning og heimilin í landinu en
stærstu útflutningsgreinarnar njóta góðs af því að einhverju leyti. DV varpar ljósi á tvær
greinar sem margir telja að verði máttarstólpar á erfiðleikatímunum fram undan.
Áliðnaður blómstrar
alcoa fjarðaál stendur vel að
vígi að sögn forsvarsmanna.
Mynd SiGtryGGUr
Meira fæst fyrir fiskinn
Veikt gengi krónunnar eykur tekjur
sjómanna ef aflinn er fluttur út.