Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2008, Side 8
föstudagur 10. október 20088 Fréttir
„Það er ekki ljóst hversu mik-
il skerðingin verður en það stefnir
vissulega í að lífeyrir verður skertur
á fyrrihluta næsta árs,“ segir Hrafn
Magnússon, framkvæmdastjóri
Landssamtaka lífeyrissjóða.
Forsvarsmenn sjóðanna fund-
uðu með viðskiptaráðherra og for-
sætisráðherra í gærmorgun. Hrafn
vildi ekki gefa upp hversu mörg pró-
sent sjóðirnir myndu skerðast, að-
allega vegna þess að það er ómögu-
legt að segja til um framtíðina að
hans sögn. Vísir.is greindi frá því í
gær að skerðingin næmi að minnsta
kosti fimm prósentum. Athygli vek-
ur að lífeyrir ráðamanna þjóðarinn-
ar mun ekki skerðast þrátt fyrir þessi
tíðindi. Ástæðan er eftirlaunafrum-
varp sem var samþykkt 2003.
Stórtap lífeyrissjóða
„Staða síðustu áramóta var mjög
góð fyrir sjóðina. Núna blasir annað
við,“ segir Hrafn sem er áhyggjufull-
ur fyrir hönd sjóðsþega en ljóst er
að skerðingin mun taka strax gildi
snemma á næsta ári. Það þýðir að
ellilífeyrir eldri borgara mun skerð-
ast nokkuð.
Lífeyrissjóðir hafa tapað millj-
örðum í hræringum efnahagslífs-
ins undanfarnar tvær vikur en sum-
ir sjóðir áttu meðal annars talsvert
hlutafé í bönkunum sem nú hafa
verið þjóðnýttir. Við ríkisvæðing-
una tapaðist hlutafé, auk þess sem
sjóðirnir tapa miklu á gengismun-
inum með þeim afleiðingum að
eldri borgarar fá minni lífeyri á
næsta ári.
Fyrirhyggja ráðamanna
Aftur á móti þurfa ráðamenn
þjóðarinnar ekki að kvíða ellinni.
Umdeild eftirlaunalög, sem voru
samþykkt veturinn 2003, tryggðu
ráðherrum og þingmönnum fastar
eftirlaunagreiðslur beint úr ríkis-
sjóði. Það þýðir að eftirlaun þeirra
munu ekki skerðast um krónu. Al-
menningur mótmælti frumvarpinu
árið 2003 en það var engu að síð-
ur samþykkt rétt fyrir jól 2003. Al-
menningur taldi frumvarpið ósann-
gjarnt miðað við þau lífeyriskjör
sem tíðkuðust hjá hinum almenna
borgara. Nú er komið í ljós að ráða-
menn reyndust fyrirhyggjusamir
enda allar líkur á skerðingu lífeyris
fyrir alla landsmenn, nema ráða-
menn.
Hryllilegt ástand
„Ástandið er hryllilegt í einu
orði sagt,“ segir Margrét Margeirs-
dóttir, ellilfeyrisþegi og formaður
Félags eldri borgara, um þá válegu
stöðu sem eldri borgarar standa nú
frammi fyrir. Hún segir þann efna-
hagslega storm sem hefur geisað
um heiminn hafa hræðileg áhrif á
alla. Þá sérstaklega eldri borgara
sem hafa sparað alla sína ævi og
sjá nú ævistarfið hverfa í einu vet-
fangi. Hún segir það gefa auga leið
að líðan eldri borgara, auk annarra
þjóðfélagsþegna, sé verri en orð fá
lýst. Síðan er ekki á það bætandi, að
hennar sögn, að nú blasir við skerð-
ing á lífeyristekjum eldri borgara.
Grét í fangi dóttur sinnar
„Þetta er hræðilegt ástand sem
allir standa vanmáttugir gagn-
vart,“ segir Margrét en afleiðingar
þess bitna harkalega á eldri borg-
urum. Á vefsvæði Egils Helgasonar
fjölmiðlamanns mátti lesa bréf frá
dóttur 77 ára ellilífeyrisþega sem
hafði misst allt sitt í bönkunum.
Upphæðin var 36 milljónir króna
en það var ævisparnaður manns-
ins.
„Það er sorglegra en tárum
taki að vera með gamla vinnulúna
manninn í fanginu – grátandi,“
skrifaði konan um bugaðan föð-
ur sinn en sjálf segir hún að hann
hafi verið beittur blekkingum þeg-
ar hann lagði fé sitt inn á áhættu-
reikning en ekki öruggan spari-
fjárreikning.
Stóraukin eftirlaun ráðherra
- Núverandi og fyrrverandi forsætisráðherrar þurfa engu að kvíða. Eftirlaun þeirra
hækkuðu með eftirlaunalögunum 2003.
Davíð Oddsson Halldór Ásgrímsson Geir H. Haarde
fyrri lög: 470 þúsund krónur 549 þúsund krónur 549 þúsund krónur
Þessi lög: 862 þúsund krónur 862 þúsund krónur 862 þúsund krónur
MuNuriNN: 392 þúSuND kr. 313 þúSuND kr. 313 þúSuND kr.
Á meðan lífeyrisbætur eldri borgara verða skertar þurfa ráðamenn þjóðarinnar ekki að kvíða því réttindi
þeirra skerðast ekki um eina krónu. Samkvæmt umdeildu eftirlaunafrumvarpi fá þeir greitt beint úr ríkis-
sjóði. Með samþykkt frumvarpsins sýndu þeir talsverða fyrirhyggju, enda ellin tryggð. Á meðan þurfa líf-
eyrissjóðsþegar landsins að taka á sig að minnsta kosti fimm prósenta lækkun á lífeyri strax á næsta ári.
valur GrEttiSSON
blaðamaður skrifar: valur@dv.is
RÁÐAMENN HALDA
LÍFEYRINUM SÍNUM
„Það er sorglegra en tár-
um taki að vera með gamla
vinnulúna manninn í fang-
inu – grátandi.“
Eldri borgarar kreppan hitti eldri
borgara illa fyrir en dæmi eru um
mann sem tapaði öllum sínum
ævisparnaði. dóttir hans ritaði
magnað bréf þar sem hún sagði
föður sinn hafa grátið í fangi sínu.
Hrafn Magnússon framkvæmda-
stjóri Landssamtaka lífeyrissjóða segir
skerðingu á lífeyri sennilega verða í
byrjun næsta árs.