Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2008, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2008, Qupperneq 10
föstudagur 10. október 200812 Helgarblað Partíið er búið. Í þenslunni, góðærinu og útrásinni leyfðu auð- menn og fyrirtæki á Íslandi sér ómældan munað í skjóli framúrskarandi afkomu og gegndarlauss gróða. Almenn- ingi sveið óhófið á meðan þotuliðið notaði einkaþotur eins og leigubíla, borgaði heimsfrægum skemmtikröftum fúlgur fjár fyrir að troða upp í einkasamkvæmum og ók um á tugmilljóna króna bifreiðum. Nú er tíðin önnur og teitinni er lokið. DV rifjar upp lúxusinn sem almenningur í land- inu gat aðeins látið sig dreyma um. Almenningur hefur setið á hlið- arlínunni undanfarin misseri og fylgst með auðmönnum íslensku útrásarinnar og viðskiptabankanna njóta góðs af gegndarlausum gróða sínum. Mörgum virtist sem menn þyrftu að leggja sig sérstaklega fram við að finna nýjar leiðir til að spreða seðlunum í stórum stíl. Allt frá einkaþotuflugi til veisluhalda, hvergi var til sparað hjá góðæris- gróðamönnunum. En einhvern tíma tekur allt enda og nú hefur gamanið kárnað svo um munar. Almenningur hefur ekki gleymt milljónunum sem auð- menn notuðu til að slá um sig hér á landi og sérstaklega ekki nú þegar kreppir að í þjóðfélaginu. DV rifjar hér upp helstu atvikin sem vöktu undrun og reiði almennings í góð- ærinu. Veislan er búin og þoturnar hafa þagnað. Einkaþoturnar þagna Íslensk fyrirtæki og auðmenn komust fljótlega að þeirri niður- stöðu í góðærinu að hefðbund- ið áætlanaflug væri viðskiptalega óhagstætt í hröðum heimi við- skiptanna. Einkaþotur eru farar- máti fjármálaheimsins og þegar íslenska útrásin stóð sem hæst, og allir græddu á tá og fingri varð varla þverfótað fyrir einkaþotum á flug- völlum þjóðarinnar. Íslensk fyrir- tæki og auðmenn greiddu hundruð milljóna og jafnvel milljarða króna fyrir þann lúxus sem einkaþot- an er. Þeir sem oftast eru nefndir í sömu andrá og einkaþoturnar eru Björgólfur Thor, Hannes Smára- son, Jón Ásgeir Jóhannesson og Bakkavararbræður, svo einhverjir séu nefndir. Auðmennirnir og fjár- málafyrirtækin notuðu einkaþot- urnar eins og leigubíla. Þá vakti það talsverða athygli fyrr í sumar þeg- ar Róbert Wessmann kvaðst vera á hrakhólum með Hawker-einkaþot- ur fjárfestingafélags síns, Salt In- vestments. Vildi hann tvö þúsund fermetra flugskýli undir gripina, ekki seinna en strax. Flottasta einkaþota landsins í dag er í eigu Bakka- varar- bræðranna Ágústs og Lýðs Guðmundssona, en hún er af teg- undinni Gulfstream og er metin á um fjóra milljarða króna. Í góðær- inu blómstraði einkaþotubransinn hér á landi, en í dag er talið að átta einkaþotur séu í eigu einstaklinga. Svo mikill var ágangur einka- þotnanna orðinn á flugvöllunum að íbúar í nágrenni við Reykjavík- urflugvöll sáu sig tilneydda til að kvarta yfir hávaðamengunni í sí- auknum mæli undir lok ársins 2007. Við lendingu gefa einkaþot- urnar frá sér meiri hávaða en hefð- bundnar farþegarflugvélar, enda láta auðmenn taka eftir sér þeg- ar þeir snerta til jarðar. Nú virðist þotugnýrinn hafa þagnað um sinn. Óhóf í afmælisveislum Af mörgu er að taka þegar kem- ur að afmælisveisluóhófi auð- mannanna á góðæristímabilinu. Frægt varð þegar Björgólfur Thor Björgólfsson fékk rappstjörnuna 50 cent, auk Jamiroquai og Ziggy Marl- ey, son Bobs Marley, til að skemmta í fertugsafmæli hans sem haldið var á Jamaíka árið 2007. Dagblað- ið The Jamaica Observer greindi frá því að skipuleggjandi afmælis- veislu Björgólfs Thors hafi fengið allt að þremur milljónum dollara til að skipuleggja veisluna. Hún skyldi vera sem glæsilegust og ekkert til sparað. Herflugvélar hringsóluðu yfir herlegheitunum, enda gesta- listinn metinn á milljarða. Ólafur Ólafsson, stjórnarfor- maður Samskipa, sparaði heldur ekki krónu þegar hann hélt upp á fimmtugsafmæli sitt í frystigeymslu Samskipa við Vogabakka 20. janúar árið 2007. Hinn heimsfrægi tónlist- armaður Elton John var þar á með- al skemmtikrafta sem héldu hita á veislugestum. Með frostrósir á fingrunum spilaði goðsögnin í um klukkustund fyrir viðstadda. Elton John var ekki ókeypis, Fréttablað- ið sagði á þeim tíma að upphæðin væri ein milljón dollara. Stórskota- lið íslenskra tónlistarmanna hlýjaði einnig mannskapnum í veislunni. Björgvin Halldórsson og Bubbi Morthens þar á meðal. Áramótaveislur fyrir allan peninginn Í lok ársins 2006 greindi DV frá því að Hannes Smárason, þá nýkjörinn maður ársins hjá Markaðin- um, hygðist halda veg- lega áramótaveislu fyr- ir vini og velunnara á Hótel Búðum. Áætl- anir gerðu ráð fyrir að kostnaðurinn fyrir ríf- lega fimmtíu manna gestalistann yrði um 15 milljónir króna. Áramótin 2007- 2008 voru glamúrpoppararnir í Duran Duran fengnir til að leika nokkur lög í árlegri einkaáramótateiti Ár- manns Þorvaldssonar, forstjóra Kaupþings í London. Veislan var haldin í glæsilegum salarkynnum Hampton Court Palace. Talnafróð- um reiknaðist til að kostnaðurinn við veisluna hefði ekki verið undir 35 milljónum króna. Ármann hefur verið stórtækur í að halda flottustu veislurnar því áramótin áður en Duran Duran steig á svið fyrir forstjórann, hafði Tom Jones leikið í áramótaveislu hans. Sú veisla var einnig talin hafa kostað tugi milljóna. Bandaríkjaforseti og bíladella Fjórir Íslendingar tóku þátt í Gumball 3000-kappaksturskeppni ríka og fræga fólksins sumarið 2006. Hannes Smárason, þáverandi for- stjóri FL Group, settist undir stýr- ið á forláta Porsche-bifreið. Ragn- ar Agnarsson þandi BMW M5, á meðan Jón Ásgeir Jóhannesson og félagi hans Guðmundur Ingi Hjart- arson óku Bentley-bifreið. Voru fjórmenningarnir í ágætis félags- skap þar sem frægir einstaklingar á borð við Pamelu Anderson, Hugh Hefner og Snoop Dogg voru sagð- ir meðal þátttakenda. Þátttökugjald fyrir hvern og einn keppanda er tal- ið nema allt að fimm og hálfri millj- ón. Danska fréttastofan Ritzau hafði heimildir fyrir því í maí árið 2006 að Baugur Group hefði fengið Bill Clinton, fyrrverandi Bandaríkjafor- seta, til að halda fyrirlestur á ráð- stefnu fyrir viðskiptavini og starfs- menn Baugs í Tívolí. Bill Clinton tekur mikið fyrir viskumolann, en árið 2001 tók hann 10 milljón- ir íslenskra króna fyrir ráðstefnu í Kaupmannahöfn. Bankarnir bjóða Glitnir hélt tvö ár í röð glæsilega galakvöldverði fyrir sína stærstu við- skiptavini og lykilstarfs- menn árin 2006 og 2007. Í seinna skiptið fór veislan fram í Laugardalshöllinni og bar heitið Stefnu- mót við stjörn- urnar. Slíkt var óhófið í kringum þá veislu að Vil- hjálmur Bjarnason, formaður fjár- festa, gagnrýndi veisluna opin- berlega. Var það hans skoðun að hagnaður bankanna ætti að renna til viðskiptavina þeirra en ekki í dýrar veislur. Var fárið í kringum galaveislurnar slíkt að Glitnir ákvað að halda ekki slíka veislu í ár „vegna aukins umfangs veislunnar“ eins og það var orðað. Þá var það um miðjan september árið 2007 sem Landsbankinn bauð tvö hundruð völdum viðskipta- vinum bankans, ásamt mökum, í helgarferð til Ítalíu. Farið var á La Scala-óperuna með hópinn sem gisti á fimm stjörnu lúxushótelinu Principe Di Savoia í miðborg Mílanó. Það glæsihótel hef- ur hýst marga stórstjörn- una í gegnum árin. Flog- ið var til Mílanó í beinu leiguflugi. Var gestum boðið upp á veitingar í óperunni þar sem þeir fóru að sjá Don Kíkóta. Að því loknu var farið með hópinn á Four Sea- sons í veitingar. Á laug- ardegi reisunnar var slegið upp hátíðarkvöld- verði í Sforzesco-kastalan- um. Kaupþing í Lúxemborg munaði heldur ekki um að bjóða hátt í tvö hundruð við- skiptavinum sínum í lúx- uskvöldverð í Listasafni Reykjavíkur í septemb- er árið 2007. Mich- elin-kokkur frá einum dýrasta veit- ingastað Frakklands eldaði ofan í elítuna og gafst mannskapnum kostur á að skola kræsingunum niður með víni sem kostaði allt að hundrað þúsund krónur flaskan. Tjaldið fellur Nú þegar fokið er í flest skjól í fjármálaheiminum hafa öll fyrir- tæki þurft að rýna í bókhaldið og hagræða í rekstri sínum. Bankarn- ir hafa verið þjóðnýttir, fjárfest- ingafélög hríðfalla og eftir stendur almenningur og furðar sig á réttlæt- ingu þotuliðsins á bruðlinu í gegn- um árin. Áður óþekktu þenslu- og góðæristímabili á Íslandi er nú lok- ið. Enn á eftir að koma í ljós hvort einhverj- ir verði látnir svara fyrir hvernig fór, en þróunin hefur verið hröð, jafn- vel óvænt og jafn- hátt sem risið var þegar hæst stóð í draumaheiminum er fallið þeim mun lengra niður í raun- veruleikann. Þoturnar Þagna Sigurður MikaEl jÓnSSon blaðamaður skrifar: mikael@dv.is Blandar geði við goðsagnir Ármann Þorvaldsson fékk duran duran og tom Jones til að troða upp í áramótaveislum sínum. kostnaður- inn hljóp á tugum milljóna. Fallni prins útrásarinnar Hannes smárason reis fljótt til metorða í fjármála- heiminum. Lúxushýsi, einkaþotur og hraðskreiðir bílar voru daglegt brauð hjá fyrrverandi forstjóra fL group. Á hrakhólum með þoturnar róbert Wessmann kvartaði undan aðstöðuleysi fyrir tvær einkaþotur salt Investments á reykjavíkurflugvelli. Útrásarkonungur Jón Ásgeir Jóhannesson er oft nefndur í sömu andrá og einkaþotur og lúxuslíferni. borgaði fimm og hálfa milljón til að keppa í gumball 3000-kappakstrinum. Björgólfur Thor Björgólfsson frægt varð þegar björgólfur fékk rapp- stjörnuna 50 cent til að skemmta í afmæli sínu. gulfstream einkaþota Lýðs og Ágústs guðmundssona í bakkavör. Dassault Falcon 2000 einkaþota Jóns Ásgeirs Jóhannessonar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.