Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2008, Side 15

Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2008, Side 15
föstudagur 10. október 2008 15Helgarblað hans sé alls ekki gallalaus, þó vinnu- samur sé. „Hann getur verið mjög háðskur og sposkur. Hann á mjög erfitt með að þola fífl í kringum sig. Stjórnmálamenn þurfa auðvitað að umgangast fullt af fávitum,“ seg- ir hann glettinn og bætir því við að þeim sem gerir miklar kröfur til sjálfs sín hætti stundum til að gera jafn miklar kröfur til annarra. Þá sé voð- inn vís. „Hann er oft ónærgætinn í orðavali. Sumir, sem ekki hafa þykk- an skráp, verða sárir. Hann er mjög orðheppinn og getur verið svo bein- skeyttur að undan svíður,“ segir Jón Baldvin og tekur dæmi: „Í einhverri krísunni var hann mættur sem ráðgjafi í útvarpsþátt. Þar mætti hann í rökræðum Dav- íð Scheving Thorsteinssyni, sem þá var forsvarsmaður iðnrekenda. Dav- íð er dugnaðarforkur og mætur mað- ur. Hann talaði geyst og fór mikinn í þættinum. Honum varð það á að segja að þjóðhagsspáin væri tóm froða. Því kunni Jón illa og svaraði um hæl: „Það mátt þú náttúrulega best vita, Davíð minn, ert þú ekki allur í froðunni?“ en Davíð framleiddi á þeim tíma ávaxta- froðu og var frumkvöðull í framleiðslu á ávaxtasöfum á Íslandi. Ritgerðin brann Þrátt fyrir að Jón sé bæði orðhepp- inn og beinskeyttur er hann bæði dul- ur og feiminn að sögn Jóns Baldvins. „Jón Sigurðsson, hin opinbera per- sóna, er allt annar en strákurinn sem ég þekkti í sveitinni. Hann er tilfinn- inganæmur, greiðvikinn og má ekkert aumt sjá. Þar að auki er hann rómant- ískur og skáldmæltur. Hann fer hins vegar mjög leynilega með það,“ segir hann um vin sinn. Jón Baldvin segir að nafni hans hafi aldrei mátt vera að því að vera í skóla. Hann hafi þó eitt sinn tekið sér hlé frá störfum til að sækja sér há- skólagráðu. „Hann skrapp til Lond- on og tók MA-gráðu á mettíma. Hann átti svo mikinn afgang af mastersrit- gerðinni að hún hefði hæglega dug- að til doktorsprófs,“ segir Jón Baldvin. Sagan segir að á heimleiðinni hafi öll búslóðin hins vegar brunnið. „Þar á meðal drögin að doktorsritgerðinni,“ segir hann en tekur það þó fram að hann taki enga ábyrgð á þessari sögu. Æskufélagar Sighvatur K. Björgvinsson, fyrr- verandi alþingismaður og ráðherra, hefur þekkt Jón frá barnæsku. Eitt ár skilur þá félaga að. Sighvatur segir að Jón sé einstaklega vandaður mað- ur. Hann sé mjög vel að sér og hóf- stilltur. „Hann er frjálslyndur jafnað- armaður þannig að okkar skoðanir hafa farið mjög vel saman. Hann er mjög vinnusamur og vandar sig mjög vel við öll verk sem honum eru falin. Lætur ekkert frá sér fara nema það sé alveg hundrað prósent. Ég get ekki annað en gefið honum mín bestu meðmæli. Hann er mjög fast- ur fyrir en er samt góður í samstarfi. Ég þekki satt best að segja enga nei- kvæða hlið á Jóni Sigurðssyni,“ segir hann. Bjargvættur Bankanna Framhald á næstu síðu Jón Sigurðsson í hringiðu fjármála- kreppunnar „Nú mæðir mjög á Jóni vegna stóraukinna verkefna fjármála- eftirlitsins. Hann hefur verið nefndur sem hugsanlegur arftaki seðlabanka- stjóra.“ Mynd SigtRygguR ARi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.