Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2008, Síða 16
Sjómann eða stökkkeppni
Vinum Jóns ber saman um að
hann sé mjög kappsamur. Það stað-
festir Jón Baldvin og segir að íþrótta-
mennska hans hafi stundum haft
áhrif á framvindu pólitískra mála.
„Þegar við vorum að mynda ríkis-
stjórnina 1987, svokallaða ríkisstjórn
Þorsteins Pálssonar, var tekist harka-
lega á um mannaforráð. Ég var fjár-
málaráðherra og lagði áherslu á að
formaður fjárlaganefndar væri mað-
ur sem ég gæti unnið vel með. Okkar
kandídat var Sighvatur Björgvinsson.
Íhaldið vildi annan mann og þetta
var járn í járn.
Að lokum var þetta spurning um
það hvort málið ætti að leysa með
sjómanni eða stökkkeppni. Niður-
staðan var sú að haldin yrði stökk-
keppni til að skera úr um málið. Í rík-
isstjórnarherberginu var borð sem
náði manni upp á mitt læri. Það þótti
of lágt svo við settum tvö bindi af
lagasafninu ofan á borðið. Svo voru
tveir fengnir til að stökkva; Jón fyr-
ir Alþýðuflokkinn og Friðrik Soph-
usson fyrir Íhaldið, en hann hlóp í
skarð Steingríms Hermannssonar
sem var meiddur á ökkla,“ útskýrir
Jón Baldvin. Friðrik stökk fyrstur en
hann sparkaði efra bindinu af laga-
safninu af borðinu. Við það féll hann
aftur fyrir sig en lenti í höndum fé-
laga sinna sem forðuðu honum frá
meiðslum. „Svo stökk Jón og gerði
það glæsilega. Hann stökk upp á efra
bindið og kom heill niður. Þess vegna
varð Sighvatur Björgvinsson formað-
ur fjárlaganefndar,“ fullyrðir hann.
Ómetanleg reynsla
Jón Baldvin bendir á að reynsla
Jóns gæti reynst dýrmæt til bjargar
íslenska efnahagskerfinu. „Hann er
þrautreyndur sem forstöðumaður
Þjóðhagsstofnunar í hagfræðigrein-
ingu og stefnumótun. Ásamt því
að hafa í ellefu ár verið aðalbanka-
stjóri Norræna fjárfestingarbank-
ans, á mjög miklum umrótstímum í
alþjóðavæðingu. Árangur bankans
þessi 11 ár er óviðjafnanlega góður. Í
því starfi kynntist hann persónulega
öllum óperatorum í bankastarfi Evr-
ópu sem þarf að þekkja. Hann þekk-
ir alla helstu forstöðumenn í banka-
heiminum á Norðurlöndum og í
lykilstofnunum Evrópusambands-
ins. Það er ómetanleg reynsla og allt
annað en að vera heimalinn lögfræð-
ingur,“ segir Jón Baldvin ákveðinn að
lokum.
Mikill keppnismaður
Sighvatur segir að þeir Jón hafi alla
tíð haldið góðu sambandi, þó stund-
um hafi verið vík á milli vina, vegna
náms eða starfa. „Á meðan hann var
í störfum utan pólitíkur sótti ég oft
til hans ráð. Eftir að hann kom inn í
þingflokk Alþýðuflokksins unnum við
mjög náið saman,“ segir hann.
Hann er sammála Jóni Baldvini
um að Jón sé ákaflega kappsamur
maður. „Ég man eftir því að við fór-
um eitt sinn akandi að haustlagi vest-
ur á Patreksfjörð. Þetta var 1986 eða
87. Á leið okkar til baka, eftir fundinn,
ákváðum við að skjóta nokkrar rjúp-
ur,“ segir hann en þá var Jón ráðherra
og Sighvatur formaður fjárlaganefnd-
ar, eftir stökkkeppnina frægu sem Jón
Baldvin lýsti að framan.
„Við stoppuðum á hverri heiði og
gengum hvor í sína áttina frá bílnum.
Allt kom fyrir ekki, við fengum ekki
neitt. Síðasti viðkomustaður okkar
var á Hjallahálsi. Þar skildu leiðir eins
og áður. Þegar við komum að bílnum,
nokkru síðar, hafði ég slysast til að ná
einni rjúpu, en Jón hafði enga. Þegar
hann sá mig með rjúpuna sneri hann
við og óð af stað aftur, þó nærri hafi
verið komið svartamyrkur,“ segir Sig-
hvatur léttur í bragði en sú aukaferð
skilaði engu. „Hann var ekki sáttur
við að fá ekki neitt, fyrst ég hafði eina.
Hann er mjög þrautseigur og læt-
ur ekki hlut sinn. Hann er líka mjög
þægilegur og góðgjarn maður. Ég hef
alltaf metið hann mikils.“
Losaði um höft
Sighvatur segir þó að Jóni sé ekki
sama um það hvernig um hann er
talað. Hann taki gagnrýni nærri sér.
Jón er, eins og áður sagði, stjórnar-
formaður Fjármálaeftirlitsins. Það
hefur fengið nýja og aukna ábyrgð
sem felst í því að fylgjast með og taka
yfir rekstur stóru bankanna þriggja.
Sighvatur segist halda að Jón sé ekki
spenntur fyrir því. „Ég held satt að
segja að þetta sé ekki það verk sem
Jón hefði helst viljað taka að sér.
Hann er nú enginn ríkisforsjármað-
ur. Hann hefur hins vegar átt mik-
inn þátt í því að losa um ýmis höft og
bönd sem háðu íslensku viðskipta-
lífi áður og fyrr. Frjáls gjaldeyrisvið-
skipti, frjáls vaxtaákvörðun, frjáls för
fólks um lönd og fleira. Ég held það
séu mörg verk sem hann hefði frekar
viljað taka að sér, önnur en þessi. Það
er þó alveg ljóst að hann mun leysa
þetta vel af hendi. Það gerir hann
alltaf,“ segir Sighvatur að lokum.
föstudagur 10. október 200816 Helgarblað
jón sigurðsson
fyrrverandi viðskiptaráðherra og fyrrverandi
bankastjóri Norræna fjárfestingarbankans
sigurður
guðmundsson
bakarameistari og gjaldkeri
hallgrímur
benediktsson
stórkaupm. og alþm. í rvk.
benedikt
jónsson
bóndi á refstað
sólveig
húsfreyja á gautlöndum
séra jón
Þorsteinsson
ættfaðir reykjahlíðarættar
rebekka
jónsdóttir
húsfreyja í gufudal
sigrún
jónsdóttir
húsfreyja
jón sigurðsson
alþm. og bændahöfðingi á
gautlöndum. Ættfaðir
gautlandsdættar
rÁðherraÆtt jóns sigurðssonar
haraldur
guðmundsson
ráðh. og form. alþýðufl.
steingrímur
steinÞórsson
forsætisráðherra
kristjÁn
jónsson
ráðherra Íslands
Pétur
jónsson
ráðherra á gautlöndum
geir
hallgrímsson
forsætisráðherra
„Jón Sigurðsson, hin opinbera per-
sóna, er allt annar en strákurinn sem
ég þekkti í sveitinni. Hann er tilfinn-
inganæmur, greiðvikinn og má ekk-
ert aumt sjá. Þar að auki er hann
rómantískur og skáldmæltur.“
Ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar Jón
er fremstur hægra megin. sigur Jóns í
stökkkeppni við friðrik sophusson skar
úr um það hver yrði formaður fjárlaga-
nefndar. MYND GUNNAR G. VIGFÚSSON
Jón Sigurðsson, fyrrverandi
ráðherra og alþingismaður „Mér
liggur við að kalla hann undrabarn,“
segir náinn vinur Jóns.