Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2008, Síða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2008, Síða 18
Atvinnulífið er ótryggt Hvernig leggst kreppan í þig? „Hún hefur, sem betur fer, ekkert allt of mikil áhrif á mig. Ég hef auðvitað áhyggjur af ástandinu – ég er með lágt bílalán sem lítur, sem betur fer ekki illa út, nú þegar gengið var fryst en það hefur náttúrlega hækkað á síðustu mánuðum. Ég er ekki skuldugur íbúðarkaupandi, heldur á leigumarkaði, sem betur fer. Þannig að þetta hefur ekki beint mikil áhrif á mig sjálfa.“ Hvað hefurðu hugsað þér að gera í kreppunni? „Það er mjög lítið sem ég sem einstaklingur get gert. Ég ætlaði að fara til Danmerkur en hugsa að ég sé hætt við sökum gengisins. Það eina sem ég get gert er bara að bíða og vona það besta.“ Er skynsamlega að vera í skóla en vinnu núna? „Ég myndi halda að það væri skynsamlegra. Því minna af peningum sem þú átt því minni áhyggjur þarftu að hafa, þannig líður mér að minnsta kosti sjálfri sem námsmaður. Atvinnulífið er svo ótryggt.“ HElga lóa Kristjánsdóttir 21 árs nemi í Margmiðlunarskólanum föstuDAgur 10. október 200818 Helgarblað stjórnin geri eitthvAð Hvernig leggst kreppan í þig? „kreppan er ekkert allt of góð fyrir mig, ég er í blússandi skuldum eftir þessa kreppu. Ég fór til útlanda fyrir stuttu og þá var gengið í ruglinu, þar af leiðandi þurfti ég að taka miklu meiri yfirdrátt. Því meiri yfirdrátt sem ég er með þeim mun hærri vexti þarf ég að borga, ég er alveg stórskuldugur eftir þessa ferð. svo er ég með bílalán á bílnum mínum sem hefur hækkað um 800 þúsund, ég var að borga 18 þúsund krónur á mánuði fyrir bílinn en er núna að borga 33 þúsund.“ Hvað ætlar þú að gera á næstu mánuðum? „Ég er bara að bíða eftir að ríkisstjórnin græi þetta vesen sem er í þjóðfélaginu, maður verður bara að vinna í takt við hana. Það er voðalega lítið sem ég get gert sjálfur annað en að treysta á yfirvöld.“ langar þig ekkert að leita að tækifærum í útlöndum? „Nei, ég get ekki sagt það. Maður á einhvern tímann eftir að enda þar en það er ekkert sniðugt að fara út núna þegar gengið er í ruglinu.“ EbEnEzEr Þórarinn Einarsson 20 ára aðstoðarforstöðumaður Hraunsins tek með mér nesti til CostA del sol Hvernig hefur kreppan áhrif á þig? „Hún hefur nú ekki haft nein gífurleg áhrif á mig, enn þá. Þegar ég keypti mér gjaldeyri var gengið 40 krónum lægra en daginn áður. Ég fór í tvö útibú Landsbankans og þeir áttu ekki evrur þannig ég endaði á að fara í aðalbankann og dömurnar þar gátu bjargað mér.“ Hvað ætlar þú að gera á næstu mánuðum? „Ég ætla að skella mér til Costa del sol í viku með vini mínum og reyna að hafa gaman af lífinu. Að vísu er ekkert mjög skynsamlegt að fara til útlanda í þessu árferði en það var löngu ákveðið svo við gátum ekkert bakkað út úr því . Ég læt líklega mömmu smyrja nesti með mér fyrir þessa viku sem ég verð þar. Það kostar örugglega fáránlega mikið að fara út að borða eða að borga fyrir eitthvað með evrum.“ sérðu eftir því að hafa ekki farið í háskóla? „Ég veit ekki hvar ég væri staddur ef ég væri ekki að vinna.“ sKúli jón FriðgEirsson 20 árs knattspyrnumaður og bréfberi MEÐ NESTI TIL UTLANDA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.