Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2008, Page 26
FÖSTUDAGUR 10. okTóbeR 200826 Fókus
u m h e l g i n a
LandsLög HugLeiks
Hugleikur Dagsson opnar sýningu sína Landslög á morgun, laugardag, klukkan
fjögur. Sýningin fer fram á Laugavegi 15 þar sem áður var til húsa spilaverslunin
Hjá Magna. Auk fallegra landslagsmynda eftir Hugleik verða síður bókarinnar
Jarðið okkur til sýnis en bókin er sú síðasta í „okkur“-bókaröðinni.
ný bók
Þorsteins
frá Hamri
Hvert orð er atvik nefnist ný ljóða-
bók Þorsteins frá Hamri, sú átjánda
með frumbirtum ljóðum hans. Bók-
in vísar í senn til sögu og fortíðar og
inn í samtíðina þar sem þessi heiti,
hreini skáldskapur á brýnt erindi
og krefst íhugunar og afstöðu, segir
í kynningartexta um bókina. Þor-
steinn hefur fyrir löngu tryggt sér
sess meðal fremstu ljóðskálda sem
ort hafa á íslenska tungu. Hann hef-
ur hlotið margvíslegar viðurkenn-
ingar fyrir skáldskap sinn, meðal
annars Íslensku bókmenntaverð-
launin árið 1992 fyrir ljóðabókina
Sæfarinn sofandi.
Með nóbels-
verðlauna-
höfum
Auður Jónsdóttir rithöfundur
er í góðum félagsskap Nóbels-
verðlaunahafa, vísindamanna og
kóngafólks í bók sem er nýkom-
in út á Spáni. Bókin heitir Lof
orðanna og inniheldur texta eftir
hundrað rithöfunda alls staðar
að úr heiminum. Þar á meðal eru
heimsfrægir höfundar á borð við
José Saramago og Paulo Coelho
og José Luis Rodrígues Zapatero,
forsætisráðherra Spánar. Í ritsmíð
sinni fjallar Auður um töfra skáld-
skaparins fyrir börn.
Listahátíðin Sequences 2008
real-time art festival verður
formlega opnuð á morgun, 11.
október, við hátíðlega opnun í
Nýlistasafni Íslands. Þetta er í
þriðja sinn sem hátíðin er haldin
hér á landi og stækkar hún með
hverju árinu.
Hátíðin sem samanstendur af
tímatengdum listaverkum stend-
ur yfir frá 11. október til 17. októ-
ber og hefur dagskráin aldrei verið
glæsilegri. Listamenn hvaðanæva
úr heiminum koma fram á há-
tíðinni í ár sem og íslenskir lista-
menn og má meðal annars finna
dansverk eftir Gunnlaug Egilsson,
kórgjörning eftir Elínu Hansdótt-
ur og Úlfar Hanson.
Ár hvert er listamaður heiðr-
aður og heiðurinn að þessu
sinni hlýtur listakonan Rúrí.
Hún mun standa fyrir gjörn-
ingnum Vocal IV ásamt Jóhanni
Jóhannessyni í Hafnarhúsinu á
sunnudaginn klukkan 20.
Yfir tuttugu verk verða sýnd á
meðan hátíðin stendur yfir og er
hægt að nálgast frekari upplýs-
ingar á heimasíðu hátíðarinnar
sequences.is. Dagskránni verð-
ur einnig dreift með Reykjavík
Grapevine sem finna má á öll-
um kaffihúsum bæjarins.
Opnunarveisla Sequences-
hátíðarinnar hefst klukkan 14 í
Nýlistasafni Íslands.
Listahátíðin Sequences 2008 real-time art haldin í þriðja sinn:
RúRí HeiðRUð
Seint á fjórða áratug síðustu
aldar komu fyllibytturnar Bill Wil-
son og Robert Smith, best þekktir
sem Bill og Bob, saman og mót-
uðu kerfi til þess að losa sjálfa sig
og aðra undan oki Bakkusar. Þeir
þróuðu 12 spora kerfið og tókst að
halda sjálfum sér og nokkrum öðr-
um drykkjusjúklingum edrú með
góðum árangri sem spurðist út
þannig að AA-samtökin Alcoholics
Anonymus mynduðust í kringum
þá. Árið 1939 kom svo AA-bókin út
en hún hefur í gegnum áratugina
verið leiðarvísir ótal alkóhólista
sem hafa tekið slaginn við óheil-
brigða áfengislöngun. AA-sam-
tökunum hefur vaxið fiskur um
hrygg í gegnum tíðina og sjálfagst
má finna AA-deildir í nánast flest-
um heimshornum í dag. Samtök-
in kynna lausn sína sem nánast þá
einu sem geti virkað til frambúðar
en árangurinn er þó upp og ofan
og drykkjusjúklingum hefur geng-
ið misvel að tileinka sér hana svo
ekki sé meira sagt.
Ekki ný AA-bók
Alkóhólistinn Orri Harðarsson
hefur nú árið 2008 skrifað bók um
eigin áfengisvanda og lausnina frá
honum, þar sem hann gefur ekki
mikið fyrir AA-lausnina sem hann
telur byggða á alls kyns úreltum
kreddum og beri of mikinn keim
af sértrúarsöfnuði. Orri segist hafa
drykkjuskjálfti
og kjánahrollur
klassík í kilju
Miðnæturbörn eftir Salman Rushdie
er komin út í kiljuklúbbi Forlagsins
Erlend klassík. Bókin er ein rómað-
asta skáldsaga
20. aldar og gerði
Rushdie heims-
frægan í einu vet-
fangi. Árið 1981
hlaut sagan hin
virtu Booker-
verðlaun og hef-
ur tvisvar fengið
viðurkenningu
sem besta Booker-verðlauna-
bók allra tíma. Í Miðnæturbörn-
um er sögð saga tveggja indverskra
drengja, Shiva og Saleem, sem
fæðast ásamt níutíu og níu öðrum
börnum á miðnætti 15. ágúst 1947,
á sömu mínútu og Indland öðlast
sjálfstæði. Öll börnin eru gædd sér-
stökum hæfileikum en drengjunum
tveimur er víxlað í fæðingu; annar
elst upp við fátækt en hinn við ríki-
dæmi.
Rúrí Heiðruð á listahátíð-
inni Sequences sem hefst
annað kvöld og stendur
yfir í viku.
Orri Harðarsson Fékk
nóg af vanmáttaráherslu
AA-samtakanna og
sigraðist á áfengisfíkn
sinni á eigin forsendum.