Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2008, Side 30
föstudagur 10. október 200830 Helgarblað DV
n óttastu hann undir einhverjum
kringumstæðum?
n er hann uppstökkur, skapbráður og/
eða fær bræðisköst?
n Verður hann auðveldlega reiður
undir áhrifum áfengis?
n reynir hann að koma í veg fyrir að
þú farir þangað sem þú vilt fara eða að
þú stundir vinnu, skóla eða áhugamál?
n fylgist hann með þér hvar og
hvenær sem er?
n Ásakar hann þig sífellt um að vera
sér ótrú?
n gagnrýnir hann þig, vini þína og/
eða fjölskyldu?
n Ásakar hann þig stöðugt – ekkert
sem þú gerir er rétt eða nógu vel gert?
n segir hann að „eitthvað sé að þér”,
þú sért jafnvel „geðveik”?
n gerir hann lítið úr þér fyrir framan
aðra?
n Hefur hann yfirráð yfir fjármálum
ykkar og krefst skýringa á hverri
krónu?
n eyðileggur hann persónulegar eigur
þínar af ásettu ráði?
n Hrópar/öskrar hann á þig eða
börnin?
n ógnar hann þér með svipbrigðum,
hreyfingum eða bendingum?
n Hótar hann að skaða þig, börnin eða
aðra þér nákomna?
n Þvingar hann þig til kynlífs?
n Hefur hann ýtt við þér, hrint þér,
slegið til þín eða slegið/barið þig eða
börnin?
Að meðaltali leita hundrað kon-
ur til Kvennaathvarfsins á ári hverju.
Það sem af er þessu ári hafa hins
vegar vel yfir hundrað konur leit-
að til athvarfsins. Sigþrúður Guð-
mundsdóttir, framkvæmdastýra
samtaka Kvennaathvarfsins, spjall-
aði við Kolbrúnu Pálínu Helgadótt-
ur um auknar heimsóknir kvenna í
athvarfið, breytingar á húsnæðinu
og margt fleira.
„Athvarfið fagnar tuttugu og sex
ára afmæli sínu í desember á þessu
ári,“ segir Sigþrúður Guðmunds-
dóttir, 41 árs framkvæmdastýra
Kvennaathvarfsins.
Sigþrúður sá starfið auglýst fyrir
rúmum tveimur árum og ákvað að
sækja um þar sem henni þótti það
mjög spennandi. „Ég sá þetta fyrir
mér sem draumastarfið.“
Sigþrúður segir athvarfið hafa
breyst mikið á þessum tuttugu og
sex árum sem það hefur haldið úti
starfsemi sinni. „Athvarfið hefur
breyst með samfélaginu og þróast
mikið síðustu ár.“
Fleiri konur leita sér hjálpar
Að meðaltali leita hundrað kon-
ur til Kvennaathvarfsins á ári hverju.
Það sem af er þessu ári hafa hins
vegar vel yfir hundrað konur leitað
til athvarfsins. „Við viljum trúa því að
aukningin stafi af því að konur séu
farnar að leita sér hjálpar í auknum
mæli en ekki að ofbeldið sjálft sé að
aukast.“ Sigþrúður segir konur sem
betur fer vera farnar að koma fyrr en
áður þekktist til athvarfsins. „Konur
sem búið hafa við ofbeldi í stuttan
tíma eru farnar að leita til okkar sem
er mjög jákvætt. Einnig fáum við
stóran hóp kvenna sem búið hafa
við ofbeldi stóran hluta ævi sinnar.
Þær konur sækja í styrk til að fara frá
maka sínum, sem oft getur reynst
þeim erfitt.“
Andlegt ofbeldi ekki
síður alvarlegt
Sigþrúður ítrekar að ofbeldi þurfi
ekki að vera líkamlegt til að vera kall-
að ofbeldi. „Andlegt ofbeldi er ekki
síður alvarlegt en það líkamlega en
því miður vill það oft gleymast.“ Að-
spurð hvort hún telji margar kon-
ur búa við andlegt ofbeldi án þess
að vera meðvitaðar um það segir
hún það því miður vera. „Skömm-
in situr allt of mikið hjá þolendum
ofbeldis. Makinn hefur talið konu
sinni trú um að allt sé ómögulegt í
hennar fari, að allt sem miður fer sé
henni að kenna og þar af leiðandi
sjálfstraust konunnar oft í molum.
Við höfum stundum fengið til okkar
konur sem telja sig vera á kolröng-
um stað vegna þess að þær hafa ekki
verið beittar líkamlegu ofbeldi. Það
er mikill misskilningur.“ Sigþrúður
segir að fyrsta stig konu sem leiti sér
hjálpar sé að skilgreina sjálfan sig
sem þolanda ofbeldis.
Algengara að konan
flytji með börnin
„Því miður er mjög algengt að
konur sem búið hafa við ofbeldi
þurfi að flytja með börnin af heim-
ili sínu og að makinn sitji eftir. Okk-
ar hlutverk er því að aðstoða þessar
konur við að koma sér fyrir ef þær
geta ekki leitað til ættingja. Við-
miðunarreglan okkar er sú að kon-
ur dvelji ekki mikið lengur en í fjór-
ar vikur hjá okkur en vissulega hafa
orðið undantekningar á því.“ Sig-
þrúður segir ástæðuna fyrir viðmið-
unarreglunni einfaldlega þá að ekki
sé hollt að dveljast á neyðarsam-
verustað of lengi. Einnig ættu fjórar
vikur að duga fyrir kerfið til að grípa
í taumana og aðstoða þolendur ef
þörf er á því.“
Betrumbætt húsnæði
Miklar breytingar eiga sér nú
stað á húsnæði Kvennaathvarfsins
og má búast við því að þeim ljúki
í lok ársins. „Við vorum búin að
leita lengi að stærra og betra hús-
næði en leitin bar lítinn árangur.
Þar af leiðandi ákváðum við að ráð-
ast í stórar breytingar á húsnæðinu
og aðlaðga það okkar þörfum. Við
erum að bæta við fleiri herbergjum,
erum komin með nýja snyrtingu og
erum að stækka eldhúsið okkar svo
um munar. Það verður ljúft þegar
þetta er yfirstaðið,“ segir Sigþrúður
ánægð með breytingarnar.
Að lokum hvetur Sigþrúður
konur sem telja sig búa við ofbeldi
að kanna stöðu sína í samband-
inu, koma í viðtal hjá ráðgjöfum
Kvennaathvarfsins sér að kostnað-
arlausu eða hringja. „Það er aðeins
eitt lítið skref af mörgum að koma
eða láta í sér heyra. Það er fátt meira
gleðiefni en að sjá konur komast í
gegnum slíka erfiðleika sem heim-
ilisofbeldi er.“
HeimAlAgAður
AndlitsmAski
Þessi einfaldi heimalagaði andlitsmaski
virkar vel gegn þreyttri og þurri húð. tak-
ið eina eggjahvítu og bætið við örlitlum
sítrónusafa. bætið hægt og rólega ólífu-
olíu út í og hrærið þangað til blandan er
orðin kremkennd. berið á vel þvegið and-
litið og þvoið af eftir 15 mínútur.
umsjón: koLbrÚn pÁLÍna HeLgadóttIr kolbrun@dv.is
Ert þú beitt ofbeldi?
Á eitthvað af neð-
antöldu við um
maka þinn?
Skömmin
hjá þolendum
Framkvæmdastýran
sigþrúður guðmundsdóttir,
framkvæmdastýra samtaka
kvennaathvarfsins.
mynd kristinn
Hvað borðar þú í morgun-
mat?
„Ég borða ýmist Cheerios eða
ab-mjólk með múslí á morgn-
ana.“
Hver er uppáhalds drykk-
urinn þinn?
„Best er náttúrlega vatnið en
annars finnst mér kók frekar
gott.“
Hvar líður þér best?
„Mér líður hvergi betur en uppi
í sveit með mínum nánustu.“
Hvernig heldur þú þér í
formi?
„Með því að elta manninn,
börnin, hestana og hundinn. Er
reyndar að fara að byrja í pró-
grammi í ræktinni líka. Kemst
víst ekki lengur upp með að
sleppa því.“
Hvaða snyrtivörur notar þú
dagsdaglega?
„Ég nota frábærar vörur í nýju
húðsnyrtivörulínunni okkar
sem ber heitið NIMUE.“
Hvar kaupir þú helst föt?
„Ég kaupi mín föt iðulega er-
lendis. Svo er hún systir mín
ofboðslega mikil pæja þannig
að ég fæ stundum að nota fötin
hennar.“
Hvað gerir þú þegar þú vilt
dekra við sjálfa þig?
„Þá skrái ég mig í einhverja af
meðferðunum sem nemendur
Snyrtiakademíunnar hafa upp
á að bjóða.“
Hvert er þitt helsta
fegrunarráð?
„Hamingjan.“
Hver er þín fyrirmynd?
„Ég á mér margar fyrirmyndir
og hef reynt að nýta mér það
besta frá öllu því fólki sem ég
hef kynnst.“
L‘Occitane hefur í meira en þrjátíu ár framleitt
ilmkjarnaolíur úr fjölbreyttu plöntulífi Provence-hér-
aðs í Suður-Frakklandi. Ilmkjarnaolíur eru eimaðar,
annaðhvort með gufu eða kaldpressun. Olíunum,
sem eru fitulausar, er blandað saman á rannsóknar-
stofu L‘Occitane af mikilli nákvæmni til að ná fram
ákveðinni virkni og eiginleikum. Sérhver olía hefur
sína sérstöku eiginleika og henta þær sérstaklega
vel í hársnyrtivörur. Ilmkjarnaolíurnar sem notaðar
eru í Aroma-hárlínunni eru hreinar, náttúrulegar og
í hæsta gæðaflokki og veita bæði hársverðinum og
hárinu þá næringu sem heilbrigt hár þarfnast.
Nú hefur hársnyrtilínan verið endurbætt svo um
munar og inniheldur nú fimm ilmkjarnaolíur í stað
þriggja áður og gefur þar af leiðandi fjölbreyttari
og meiri virkni. Vörurnar eru framleiddar úr jurta-
freyðigrunni sem unninn er úr sykrum, kókos- og
sólblómaolíu ásamt sérstökum ilmkjarnaolíum sem
gera hárið bæði sterkara og fallegra. Vörurnar eru
sérlega mildar fyrir hárið og hársvörðinn því ekki eru
notuð nein gervilitarefni eða rotvarnarefni í þeim.
Vörurnar skiptast niður í þrjá flokka og ættu því
allir að finna eitthvað við sitt hæfi.
Uppbyggjandi
og ilmandi sprei
Byggir upp og lyktar vel
Þetta ilmandi sprei sem
inniheldur 5 ólíkar olíur og
hunang er einstaklega gott fyrir
þurrt og illa farið hár og kemur í
handhægum plastumbúðum.
Úðið í rakt og hreint hárið og
hreinsið ekki úr. einnig má nota
úðann í hárið ef reykingalykt
eða matarlykt sest í það.
Ko
guðrún möller, FrAm-
kvæmdAstjóri snyrti-
AkAdemíunnAr.
Elti manninn
til að halda mér
í formi
K
on
a v
iku
nn
ar