Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2008, Page 36
föstudagur 10. október 200836 Helgarblað
Baddi Rugl
baddi rugl heitir réttu nafni baldvin samúelsson og er
einna þekktastur fyrir að vera einstaklega áberandi á
íslensku næturlífi sem ljósmyndari fyrir heimasíðuna rugl.
is en þaðan dregur baddi viðnefnið góða. Hann gerðist í
kjölfarið stjórnandi sjónvarpsþáttarins rugl.is. baddi sá um
að reka hina og þessa skemmtistaði og standi pliktina jafnt
bak við barinn og sem plötusnúður. Í þáttunum rugl.is
myndaði baddi og tökulið hans ofurölvi Íslendinga og tók
þá tali og skemmst er að geta þess að ekki voru allir jafn
ánægðir með þetta framtak badda.
Auðun Georg Ólafsson
auðun á kannski ekki alveg heima í þessum hópi, en hann
var samt sem áður frægasti maður á Íslandi í nokkrar vikur
en hefur ekki sést síðan og fær því að fljóta með. Það var í
marsmánuði 2005 sem var vart talað um aðra manneskju í
íslenskum fjölmiðlum en auðun georg. Þá var tilkynnt að
hann hefði verið valinn úr hópi umsækjenda um starf
fréttastjóra fréttastofu Úvarps sem flestir eða allir höfðu
meiri reynslu en hann af fjölmiðlastörfum. Margir héldu því
fram að ráðningin væri pólitísk vegna tengsla auðuns við
framsóknarflokkinn og hefð hafði verið fyrir því að
framsóknarmaður stýrði fréttastofunni. Þrátt fyrir hörð
mótmæli starfsmanna fréttastofunnar við ráðningunni
mætti auðun til vinnu 1. apríl. eftir að skellt hafði verið á
hann hurðum, og hann orðið tvísaga í viðtali við fréttamann
Útvarps, sagði auðun sig frá starfinu fyrir lok dags.
Hrafnhildur Valbjörnsdóttir
Hrafnhildur Valbjörnsdóttir leikkona lék gelluna í dalalífi árið
1984 og heillaði margan karlpeninginn upp úr skónum þegar
hún beraði á sér barminn í kvikmyndinni. Hrafnhildur hefur
síðan látið lítið að sér kveða í íslensku leiklistarlífi. síðast sást
til hennar í kvikmyndinni Þetta er ekkert mál árið 1996, mynd
um ævi kraftajötunsins Jóns Páls. Hrafnhildur hefur mikið
verið viðloðandi íslenska vaxtarrækt og sigraði meðal annars í
fyrsta vaxtarræktarmótinu sem haldið var á Íslandi árið 1982.
undanfarið hefur hún starfað sem einkaþjálfari við góðan
orðstír.
Frægir
í 15 mínútur
Einar Örn Einarsson
einar lék Manna í sjónvarpsþáttunum um Nonna og
Manna sem sýndir voru við miklar vinsældir víða um
Vesturlönd á níunda áratugnum og inn á þann tíunda.
Vinsældirnar voru gríðarlegar hér á landi en voru enn meiri
í Þýskalandi þar sem kumpánarnir voru jafnvel vinsælli en
david Hasselhoff og ódauðleg dægurlög strandvarða-
stjörnunnar. einar örn og garðar thór Cortes, sem lék
Nonna, voru elskaðir af tugþúsundum barna og unglinga
en svo hurfu þeir nánast eins og dögg fyrir sólu. óhætt er
að segja að garðar thór hafi átt glæsilegt kombakk sem
söngvari, en töluvert minna hefur farið fyrir einari erni.
Hann starfaði lengi sem sölumaður í herrafataverslunum
og sem flugþjónn, lærði svo leiklist úti í bretlandi og síðast
þegar fréttist var hann að leika hjá Leikfélagi akureyrar.
Það er því aldrei að vita nema hann meiki það að nýju á
leiklistarsviðinu.
Kristinn Björnsson
skíðakappinn kristinn björnsson varð óskabarn þjóðarinnar
á einni nóttu, eða á einni salibunu niður fjallshlíð, þegar
hann lenti í öðru sæti á heimsbikarmóti á skíðum árið 1997.
Með hinni glæsilegu frammistöðu sinni komst kristinn
fyrstur íslenskra skíðamanna á pall í heimsbikarnum. enginn
hefur náð að leika það eftir, og því miður fyrir kristin náði
hann heldur betur ekki að fylgja afrekinu eftir. Næstu
mánuði og ár horfði þjóðin með öndina í hálsinum á hann
skíða niður snævi þaktar brekkur heimsins, jafnvel fólk sem
fram að því þekkti ekki muninn á skíðum og trommukjuð-
um. ósjaldan endaði kristinn hins vegar á rassinum í miðri
brekku, nema þegar hann komst í mark á tíma sem hefði
kannski dugað honum í áttunda sætið á andrésar andar
leikunum.
Alda Björk Ólafsdóttir
alda björk skaust upp á stjörnuhimininn á Íslandi árið 1998
með laginu real good time. Lagið varð ekki aðeins vinsælt á
Íslandi heldur einnig í bretlandi þar sem það fór hæst í
sjöunda sæti á vinsældalistanum þar í landi. alda söng á
Wembley fyrir einhvern úrslitaleikinn í ensku knattspyrnunni,
næsta lag frá henni, girls Night out, komst inn á topp 20
listann en síðan þá hefur lítið til öldu spurst. samkvæmt
tonlist.is hefur hún búið í London frá árinu 1987 og hefur dV
ekki heimildir fyrir öðru en að hún búi þar enn.
Hemmi Gunn, Laddi, Björk, Madonna og Bill Clinton eru dæmi um fólk sem verður frægt alla ævi, hvernig
sem himintunglin og reikistjörnurnar snúa. aðrir hljóta þau örlög að vera frægir í fimmtán mínútur. sumir kalla
þá einstaklinga halastjörnur, one-hit-wonder, dægurflugur eða eitthvað þaðan af verra. dV rifjar hér upp nöfn
nokkurra Íslendinga sem voru frægir í takmarkaðan tíma, en svo var eins og jörðin hefði gleypt þá.