Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2008, Side 42
Jón fæddist á Ísafirði en ólst upp í
Miðbæ Reykjavíkur frá unga aldri.
Hann lauk lokaprófi í tónsmíðum
frá Tónlistarskólanum í Reykjavík
1955, stundaði framhaldsnám í tón-
smíðum við Royal Scottish Academy
í Glasgow 1955-56, lauk tónmennta-
kennaraprófi frá Tónlistarskólanum
í Reykjavík 1961 og stundaði tón-
smíðanám við Guildhall School of
Music í London 1963.
Jón stofnaði og var söngstjóri
Liljukórsins um árabil, var söngstjóri
Karlakórs Keflavíkur 1971-73, Karla-
kórsins Fóstbræðra 1973-74, stjórn-
aði Sinfóníuhljómsveit Íslands við
flutning verka sinna, var skólastjóri
Tónlistarskólans í Neskaupstað 1956-
58, kennari við Lækjarskóla í Hafnar-
firði 1959-64, við KÍ frá 1962, var einn
af stofnendum og kenndi við Söng-
skólann í Reykjavík 1976-2006, lektor
við KHÍ frá 1976, var dósent þar frá
1986 auk þess að vera stundakennari
við Tónlistarskólann í Reykjavík.
Jón er félagi í Tónskáldafélagi Ís-
lands frá 1960, var formaður þess
1968-71 og var tónlistargagnrýn-
andi við Morgunblaðið um árabil frá
1970.
Meðal tónsmíða Jóns eru óper-
urnar Þrymskviða, Galdra-Loftur og
ópera, byggð á Möttulssögu, ballett-
inn Blindingsleikur, hljómsveitar-
verkin Þjóðvísa, Lilja, Fornir dans-
ar og Sjöstrengjaljóð, kammerverk,
kvintett og oktett fyrir blásara, kór-
verkið Tíminn og vatnið, og fjöldi
smærri kórverka, einsöngslaga og
raddsetninga á íslenskum þjóðlög-
um auk þess sem hann samdi tón-
listina við kvikmynd Baltasar Korm-
áks, Hafið. Þá þýddi hann ritverkið
Saga vestrænnar tónlistar eftir Ch.
Headington 1987.
Jón var borgarlistamaður 1996,var
gerður að heiðursdoktor í tónlist við
KHÍ vorið 2008 og var sæmdur Hinni
íslensku fálkaorðu.
Fjölskylda
Eiginkona Jóns er Elísabet Þor-
geirsdóttir, f. 12.12. 1931, húsmóð-
ir. Hún er dóttir Þorgeirs Elísar Þor-
geirssonar sjómanns og Guðrúnar
Kristjánsdóttur húsmóður.
Börn Jóns og Elísabetar eru Þor-
geir, f. 5.10. 1955, arkitekt í Reykja-
vík; Arnþór, f. 20.8. 1957, sellóleikari,
tónlistarkennari og varaformaður
SÁÁ, búsettur í Reykjavík, en kona
hans er Agnes Kristjónsdóttir, söng-
kona, blaðamaður og líkamsrækt-
arkennari og er dóttir þeirra Kristín
Amalía auk þess sem hún á soninn
Harald Ara Stefánsson, en börn Arn-
þórs og Nancyar Gunnarsdóttur eru
Gunnar, Anna Elísabet og Hlín; Guð-
rún Jóhanna, f. 1.5. 1966, söngkona
og tónlistarkennari en maður henn-
ar er Stig Rasmunsen verkfræðingur.
Hálfsystkini Jóns, sammæðra:
Jónína Guðrún Guðmundsdóttir, f.
20.3. 1910, d. 19.9. 1919; Grettir Guð-
mundsson, f. 30.9. 1912, d. 11.10.
1967; Bragi Magnússon, f. 14.1. 1917,
nú látinn, lögregluþjónn á Siglufirði;
Magnús Kristján Magnússon, f. 22.2.
1919, starfsmaður FAO í Chile; Guð-
mundur Ásgeirsson, f. 24.9. 1920, d.
30.6. 1978, skrifari hjá Eimskipafélagi
Íslands í Reykjavík; Kjartan Ásgeirs-
son, f. 8.6. 1922, nú látinn, sjómað-
ur í Garði; Guðmundur Skúlason, f.
22.7. 1921, nú látinn, trésmiður á Ísa-
firði; Áslaug Skúladóttir, f. 1.8. 1924,
nú látin, sendiráðsfulltrúi í Stokk-
hólmi.
Foreldrar Jóns voru Skúli Skúla-
son, f. 10.7. 1888, d. 19.4. 1957, kaup-
maður á Ísafirði, og Jóhanna Amalía
Jónsdóttir, f. 7.10. 1885, d. 23.8. 1963,
ljósmóðir.
Ætt
Skúli var sonur Skúla Kristjáns,
úrsmiðs á Ísafirði Eiríkssonar á
Brúnum, mormónatrúboða (Steinar
Steinsson í Steinahlíðum í Paradísar-
heimt Halldórs Laxness) Ólafssonar,
b. í Hlíð undir Eyjafjöllum Sigurðs-
sonar. Móðir Eiríks var Helga Eiríks-
dóttir, á Murnavöllum Erlendssonar.
Móðir Skúla Kristjáns var Rúnhildur
Runólfsdóttir, skálds á Skaganesi Sig-
urðssonar, pr. á Ólafsvöllum, bróður
Sæmundar, b. í Eyvindarholti, föð-
ur Tómasar Fjölnismanns, afa Jóns
Helgasonar biskups og Álfheiðar,
ömmu Sigurðar Líndal lagaprófess-
ors og Páls Líndal ráðuneytistjóra.
Sigurður var sonur Ögmundar, pr. á
Krossi, bróður Böðvars, afa Þuríðar,
langömmu Vigdísar Finnbogadóttur.
Ögmundur var sonur Presta-Högna,
á Breiðabólsstað Sigurðssonar. Móð-
ir Sigurðar á Ólafsvöllum var Salvör
Sigurðardóttir, systir Jóns, afa Jóns
forseta.
Jóhanna Amalía var systir Þóru,
móður Þráins Löve, fyrrv. aðstoð-
arrektors KHÍ. Jóhanna Amalía var
dóttir Jóns, b. á Horni í Mosdal Þórð-
arsonar, b. á Kistufelli Jónssonar.
Móðir Jóns var Guðríður Þorvalds-
dóttir, b. á StóraKroppi, bróður Jóns,
langafa Jóns Björnssonar, kaup-
manns í Borgarnesi, föður Selmu,
forstöðumanns Listasafns Íslands,
og Halldórs stjórnarformanns, föð-
ur Garðars, arkitekts og fyrrv. húsa-
meistara ríkisins. Systir Þorvalds
var Ástríður, langamma Guðrún-
ar, móður Guðmundar Arnlaugs-
sonar rektors. Þorvaldur var sonur
Jóns, ættföður Deildartunguættar
Þorvaldssonar. Móðir Guðríðar var
Guðrún Finnsdóttir, hreppstjóra í
Miðvogi Narfasonar. Móðir Finns var
Guðlaug Sigurðardóttir. Móðir Guð-
laugar var Guðríður Björnsdóttir,
systir Snorra á Húsafelli.
Móðir Jóhönnu var Benónía í
Tjaldanesi Ólafssonar á Laugabóli
Guðlaugssonar. Móðir Benóníu var
Þuríður Ívarsdóttir í Hokinsdal.
Í tilefni afmælisins býður sam-
starfsfólk Jóns við Söngskólann í
Reykjavík, til morgunveislu. Boðið
verður upp á andlega og veraldlega
næringu og koma þar ýmsir við sögu;
Óperukórinn í Reykjavík, stj. Garðars
Cortes, Gradualekór Langholtskirkju,
stj. Jón Stefánsson, Karlakórinn Fóst-
bræður, stj. Árni Harðarson Kvenna-
kór úr HÍ stj. Margrét Bóasdóttir.
Nemendur og kennarar Söngskólans
í Reykjavík
Söngskólinn býður öllum vinum
og vandamönnum Jóns til veislunn-
ar í tónleikasal Söngskólans - Snorra-
búð, Snorrabraut 54 og er áætlað að
hún standi frá kl. 9.00-11.00 afmælis-
morguninn. Þar mun skólinn einn-
ig kynna ýmsa tónlistarviðburði sem
efnt verður til í vetur í tilefni afmæl-
isársins.
80 ára á laugardag
Jón G. ÁsGeirsson
tónskáld og heiðursdoktor frá khÍ
Ættfræði
Umsjón: Kjartan GUnnar Kjartansson kgk@dv.is
Kjartan Gunnar Kjartansson
rekur ættir þjóðþekktra
Íslendinga sem hafa verið í
fréttum í vikunni, rifjar upp
fréttnæma viðburði liðinna ára
og minnist horfinna merkra
Íslendinga. Lesendur geta sent
inn tilkynningar um stóraf-
mæli á netfangið kgk@dv.is
Ingólfur Aðalsteinsson
fyrrv. forstjóri Hitaveitu Suðurnesja
Ingólfur fæddist á
Hamraendum í Mið-
dölum en ólst upp í
Brautarholti í Döl-
um. Hann lauk stúd-
entsprófi frá MA 1946,
cand. phil.-prófi frá HÍ
1947 og stundaði nám
í veðurfræði 1947-49.
Ingólfur starfaði á Veð-
urstofu Íslands 1949-
75, lengst af á spádeild
Veðurstofu á Kefla-
víkurflugvelli, og var
framkvæmdastjóri og
síðar forstjóri Hitaveitu
Suðurnesja 1975-92. Hann hef-
ur búið í Njarðvík frá 1958.
Fjölskylda
Ingólfur kvæntist 30.6. 1949
Ingibjörgu Ólafsdóttur, f. 9.2.
1926, bókaverði. Hún er dótt-
ir Ólafs Methúsalemssonar, f.
17.6. 1877, d. 13.6. 1957, kaup-
félagsstjóra á Vopnafirði, og
k.h., Ásrúnar Jörgensdóttur, f.
11.9. 1892, d. 27.9. 1970, hús-
móður.
Börn Ingólfs og Ingibjarg-
ar eru Aðalsteinn Ingólfsson, f.
7.3. 1948, listfræðingur og fyrrv.
forstöðumaður Hönnunarsafns
Íslands, kvæntur Janet Shep-
herd ritara og eiga þau þrjár
dætur; Ólafur Örn Ingólfsson,
f. 9.6. 1951, hagfræðingur og
fyrrv. deildarstjóri hjá SPRON,
kvæntur Ingibjörgu Guð-
mundsdóttur skrifstofumanni
og eiga þau eina dóttur; Birgir,
f. 23.1. 1953, auglýsingateikn-
ari hjá Íslensku auglýsinga-
stofunni, kvæntur Auði Jóns-
dóttur félagsfræðingi og eiga
þau tvö börn; Ásrún, f. 21.10.
1955, hjúkrunarfræðingur á St.
Jósefsspítala í Hafnarfirði, gift
Magnúsi Snæbjörnssyni, tækni-
fræðingi og framkvæmdastjóra
Íslandsbyggða, og eiga þau tvö
börn; Leifur, f. 6.9. 1960, iðn-
verkamaður, í sambúð með
Lilju Margréti Möller kennara
og eiga þau eina dóttur; Atli, f.
21.8. 1962, tónskáld í Reykjavík,
kvæntur Þuríði Jónsdóttur tón-
skáldi og eiga þau tvö börn.
Hálfsystir Ingólfs: Svava,
f. 1922, d. 1971, húsmóðir í
Reykjavík.
Alsystkini Ing-
ólfs: Guðrún, f. 1924,
d. 1977, húsmóðir í
Kópavogi; Gunnar, f.
1926, nú látinn, bóndi
og síðar deildarstjóri
hjá Kaupfélagi Borg-
firðinga; Svanhild-
ur, f. 1929, húsmóðir í
Reykjavík; Brynjólfur,
f. 1931, bóndi og síðar
múrari í Garðabæ; Em-
elía Lilja, f. 1934, hús-
móðir í Kópavogi.
Foreldrar Ingólfs
voru Aðalsteinn Bald-
vinsson, f. 12.9. 1897, d. 21.9.
1980, kaupmaður í Brautarholti
í Haukadal í Dölum, og Ingileif
Sigríður Björnsdóttir, f. 15.6.
1899, d. 14.6. 1977, húsfreyja.
Ætt
Aðalsteinn var sonur Bald-
vins, b. á Hamraendum Bald-
vinssonar, b. á Bugðustöðum
Haraldssonar. Móðir Baldvins
á Hamraendum var Sæunn
Jónsdóttir. Móðir Aðalsteins var
Halldóra Guðmundsdóttir, b. á
Fellsenda Daðasonar.
Ingileif var dóttir Björns, b.
og kaupmanns í Brautarholti
Jónssonar. Móðir Ingileifar var
Guðrún Ólafsdóttir, b. á Vatni
Brandssonar, og Katrínar, syst-
ur Skarphéðins, föður Friðjóns,
fyrrv. ráðherra, og Pálma, föður
Guðmundar jarðeðlisfræðings,
og Ólafs, bókavarðar Seðla-
bankans. Katrín var dóttir Jóns,
b. í Stóra-Galtardal Þorgeirs-
sonar og Halldóru Jónsdóttir,
b. á Breiðabólstað á Fellsströnd
Jónssonar. Systir Halldóru var
Hólmfríður, langamma Ingi-
bjargar, ömmu Ingibjargar Har-
aldsdóttur rithöfundar. Önnur
systir Halldóru var Steinunn,
langamma Auðar Eydal, fyrrv.
forstöðumanns Kvikmynda-
eftirlits ríksins, móður Tinna,
ritstjóra Húsa og hýbíla. Bróð-
ir Halldóru var Þórður, lang-
afi Friðjóns Þórðarsonar alþm.
og Gests, föður Svavars sendi-
herra, föður Svandísar borgar-
fulltrúa.
Ingólfur verður að heiman á
afmælisdaginn.
85
ára á
föstudag
Bryndís Petra Bragadóttir
leikkona
Bryndís fæddist í
Reykjavík en ólst upp
í Danmörku og síðan í
Lúxemborg. Hún kom
til Íslands 1975, fór þá
í Skógaskóla, ML og
Flensborgarskóla og
lauk svo leiklistarprófi
frá Leiklistarskóla Ís-
lands árið 1986.
Bryndís vann meðal
annars í skreið og salt-
fiski hjá Ísbirninum á
námsárunum og var
flokkstjóri í Unglinga-
vinnunni.
Eftir útskrifaðist frá Leiklist-
arskólanum hefur hún lengst af
stundað leiklist. Hún hefur leikið
á milli 50 og 60 hlutverk í ýmsum
verkum, lék m.a. Ísbjörgu í Ég
heiti Ísbjörg – ég er ljón og Línu
í Línu Langsokk hjá LA. Þá lék
hún í kvikmyndinni The Junip-
er Tree. Bryndís hefur
nýlokið við að leikstýra
verki á Skagaströnd um
landnámskonuna Þór-
dísi spákonu. Hún leik-
ur í farandsýningunni,
Ég á mig sjálf, sem er
forvarnarverk um anór-
exíu. Bryndís syngur
með Gospelsystrum
Reykjavíkur.
Fjölskylda
Dóttir Bryndísar er
Petra María Rögnvalds-
dóttir, f. 26.7. 1997.
Bróðir Bryndísar er Sturla
Óskar Bragason, f. 6.1. 1962,
flugþjónn í Reykjavík.
Foreldrar Bryndísar eru Bragi
Óskarsson, f. 27.3. 1935, raf-
magnstæknifræðingur, og Sonja
Hakansson, f. 25.5. 1933, d.
21.12. 2003, myndlistarkona.
50
ára á
laugardag
föstUdaGUr 10. oKtóber 200842 Ættfræði