Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2008, Qupperneq 54
Nafn?
„Vera Sölvadóttir.“
Starf?
„Kvikmyndagerðarkona, tónlistarkona og
kennari.“
Stíllinn þinn?
„Frekar einfaldur en stundum er gaman að
dressa sig upp. Oftast finnst mér best að klæða
mig eftir skapi. Ef ég er til dæmis að fara á fund
fer ég í „business“-jakkann, þegar ég er að
kenna set ég upp gleraugun, á tónleikum fer ég
í tónleikadressið og þar fram eftir götunum.“
Allir ættu að...?
„...spara núna og stoppa í sokka.“
Hvað er ómissandi að eiga?
„Góða angórasokka og sundföt.“
Hvað keyptir þú þér síðast?
„Gullskó í Rauða krossinum og sokka.“
Hvert fórst þú síðast í ferðalag og í hvaða
tilgangi?
„Ég fór til Malmö á Nordisk Panorama-kvik-
myndahátíðina þar sem myndin mín keppti.“
Uppáhaldsflíkin í fataskápnum?
„Stóra, hlýja úlpan mín.“
Hvenær hefur þú það best?
„Þegar ég hef nóg að gera og er með vinum og
fjölskyldu.“
Ert þú með einhver áform fyrir næstu
daga?
„Við erum að leggja lokahönd á BB&Blake-
plötuna. Það er brjálað að gera hjá okkur að
undirbúa plötu og tónleika. Frumburðurinn
kemur út fyrir jól. Við spilum næst á Tunglinu á
Airwaves-hátíðinni á föstudagskvöldið klukkan
8 og opnum ballið í miklu stuði. Svo erum við á
leið í tónleikaferðalag í kjölfarið.“
Lumar þú á góðu tískuheilræði?
„Vertu þú sjálf/ur. Eins og þér líður best.“
föstudagur 10. október 200854
Vera
Sölvadóttir
Persónan
Connery fyrir
Louis Vuitton
Sir Sean Connery hefur nú tekið
við sem nýtt andlit Core Value-
herferðar tískuhússins Louis Vuitt-
on. Með því
fetar gráhærði
sjarmör-
inn í fótspor
Mikhails
Gorbachev,
Catherine Den-
euve, Keiths
Richards og
Francis Ford
Coppola. Leikarinn var myndað-
ur af einum frægasta ljósmyndara
heims, Annie Leibovitz, á bryggju
við ströndina nálægt heimili hans
á Bahamaeyjum. Myndirnar birt-
ast seinna í mánuðinum og er tals-
maður Louis Vuitton einstaklega
ánægður með útkomuna. „Þessar
dásamlegu myndir af þessari goð-
sögn í lifanda lífi eiga eflaust eftir
að snerta við mörgum,“ segir tals-
maðurinn Antoine Arnault.
BLeik sLaufa
í Barminn
Þú ert hreinlega ekki nógu smart
ef þú ert ekki búin að kaupa
bleiku slaufuna og smella henni
í vetrarkápuna. Bleika slaufan er
einstaklega dömuleg og flott í ár
og hönnuð af Hendrikku Waage.
Ágóðinn af sölu slaufunnar renn-
ur til kostunar á tækjavæðingu
Leitarstöðvar Krabbameinsfé-
lagsins. Slaufan kostar þúsund
krónur og er til sölu í Kaffitári, Te
& kaffi, Eymundsson, Frumherja,
Samkaupum, Lyfju, Lyfjum og
heilsu, Lyfjavali og Hreyfli.
Bjór í hárið
Dökkir litir eiga það til að verða
einstaklega áberandi í hártísk-
unni yfir vetrartímann. Dökkt
hár nýtur sín þó alltaf best með
sem mestum gljáa og glans. Bú-
ast má við því að glansinn á hár-
inu dofni eftir nokkrar vikur frá
heimsókn á hárgreiðslustofuna.
Nú á tímum kreppunnar hefur
maður kannski ekki alveg jafnoft
efni á því að fara í klippingu og
litun en það er til sniðugt húsráð
til að halda gljáanum á hár-
inu. Fjárfestu í einum gæðabjór,
nuddaðu honum vel í hárið áður
en þú þværð það upp úr sjampói
og næringu. Vittu til, bjórinn gef-
ur dökku hárinu fallegan gljáa.
FLUtt á LAUgAvEgiNN Verslunin
Moods of Norway, sem áður var til húsa á
Hverfisgötunni, hefur nú flutt sig um sett
og er nú á Laugavegi 51. Moods of Norway
heldur áfram að bjóða upp á litríka og
vandaða hönnun fyrir konur og karla með
tilvísun í kokkteila, traktora og skemmti-
lega sveitamenningu sem lífgar upp á
tilveruna. tíska
Umsjón: Krista Hall Netfang: krista@dv.is
Tíska
MyNd HEiðA