Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2008, Side 56
föstudagur 10. október 200856 Tónlist
Tónlist
Í bÍó fyrir vinnu
Hin umtalaða kvikmynd hljómsveitarinnar flaming Lips,
Christmas on Mars, var frumsýnd í kvikmyndahúsum
bandaríkjanna 8. október síðastliðinn. Myndin er sú
fyrsta í leikstjórn forsprakka sveitarinnar, Waynes Coyne,
og var tekin upp í bakgarðinum heima hjá honum þar
sem búið var að byggja kvikmyndasett sem líktist lands-
laginu á Mars. að venju fara þeir ótroðnar slóðir og er
myndin meðal annars sýnd klukkan sjö og níu á morgn-
ana svo fólk geti séð hana fyrir vinnu.uMsjón: krista HaLL krista@dv.is
Bjóðum fataskápa á sérstökum afslætti aðeins þessa helgi.
Axis býður glæsilega fataskápa í mörgum gerðum. Hefðbundnar hurðir eða renni-
hurðir. Miklir möguleikar í uppröðun, viðartegundum, forstykkjum, skúffum og ýmsum
auka- og fylgihlutum. Stuttur afgreiðslutími.
Smiðjuvegur 9 - 200 Kópavogur
Sími 535 4300 - Fax 535 4301
Netfang: axis@axis.is
Heimasíða: www.axis.is
Opið:
fimmtudag 9:00-18:00
föstudag 9:00-18:00
laugardag 10:00-16:00
sunnudag 13:00-16:00
Íslensk hönnun og framleiðsla í 73 ár
helgina 9.- 12. október
Nú er hagstætt
að velja
íslenskt
Hljómsveitin Reykjavík! sendir
frá sér sína aðra breiðskífu á mið-
vikudaginn en platan kemur til með
að heita The Blood. „Fyrir það fyrsta
er ótrúlega kúl að plata heiti The
Blood. Svo töluðum við mikið um
þetta nafn, það eru rosalega marg-
ir uppgjafaheimspekingar í þessari
hljómsveit og við höfum gaman af
því að ræða um merkingarfræði og
þekkingarfræði og allt þetta rugl.
The Blood er svo margþætt því bæði
getur það þýtt dauða og djöfulgang,
blóðslettur og viðbjóð en á sama
tíma er það líka fjölskylda og líf,“ út-
skýrir Haukur Magnússon, einn af
liðsmönnum sveitarinnar, spurður
út í nafn plötunnar.
„Hljómsveitin Reykjavík! vinnur
aldrei hratt. Hún vinnur alltaf mjög
hægt þegar kemur að því að ákveða
eitthvað svona og þess vegna hefur
þetta nafn verið rætt í þaula. Ég á ör-
ugglega fimm hundruð pósta í inn-
boxinu mínu þar sem við förum yfir
kosti og galla þess að kalla plötuna
hitt eða þetta. Á endanum sættumst
við á The Blood því hvar værum við
nú án blóðsins?“
Þyngri en frumburðurinn
Á síðasta ári sendi Reykjavík! frá
sér plötuna Glacial, landscapes, re-
ligion, oppression and alcohol sem
fékk víðast hvar gríðargóðar viðtök-
ur gagnrýnenda. Platan var tekin
upp í Gróðurhúsinu og var upptöku-
stjórn í höndum Valgeirs Sigurðs-
sonar. Í þetta skiptið fengu strákarni
Ben Frost hjá Bedroom Commun-
ity til að sjá um að stjórna upptök-
um. Aðspurður hvort The Blood sé
frábrugðin frumburðinum svarar
Haukur:
„Það fer svolítið eftir því hvort fólk
hefur verið að koma á tónleika eða
ekki. Það sem Valgeir gerði á síðustu
plötu okkar var að hann tók, og gerði
meistaralega að okkur fannst, þessa
kaótísku og einkennilegu orku sem
myndast þegar við komum saman í
herbergi og beindi henni í „hlustan-
legan“ farveg svo það meikaði sens.
Það sem Ben Frost gerir er að hann
fer í þveröfuga átt og ýkir lætin. Þetta
er því frábrugðið og efnið líklega að-
eins þyngra.“
Haukur segist ekki viss um að
platan verði allra og efast um að lög
plötunnar eigi eftir að rata inn á vin-
sældalista Bylgjunnar á milli laga
með Jeff Who? og Sprengjuhöll-
inni eins og hann orðar það. „Okkur
finnst heldur ekkert öll tónlist þurfa
að vera þar. Hins vegar höldum við
allir að hún eigi erindi við alla og
vonandi getur einhver fengið smá
útrás með því að öskra með. Við ætl-
um meira að segja að hafa textablað
með núna.“
Handgerð
viðhafnarútgáfa
Eins og áður segir kemur plat-
an út á miðvikudaginn á netinu og
í takmörkuðu handunnu upplagi í
helstu plötuverslanir miðborgar-
innar. „Við erum að klára að mastera
plötuna á laugardaginn og erum
ekki enn búnir að hanna koverið á
henni. Fólk getur pantað plötuna á
netinu á miðvikudaginn og fengið
eintak af plötunni sent þegar það er
tilbúið úr framleiðslu. Svo kemur í
verslanir sérstök handgerð viðhafn-
arútgáfa af plötunni í litlu upplagi.
Við erum svo æstir í að koma þessu
út og leyfa öllum að heyra að við
nennum ekki að bíða meðan verið
er að pressa þetta,“ segir Haukur og
bætir því við að hljómsveitarmeð-
limir hafi aldrei verið jafn stoltir af
neinu sem sveitin hefur gert.
„Ben Frost er algjör töframað-
ur og virkjaði í okkur ákveðna orku.
Stemningin sem myndast þegar
hljómsveit er að spila og andrúms-
loftið sem myndast er jafngilt á við
annað. Hann tók okkur upp læf og
það myndaðist svo sterk og áþreif-
anleg stemning.“
Þeir sem vilja upplifa tónleika
með rokkurunum í Reykjavík! ættu
ekki að missa af strákunum í næstu
viku enda spilar sveitin tvisvar á Air-
waves-hátíðinni og á fjölda annarra
staða meðan á hátíðinni stendur.
Nánari upplýsingar og tóndæmi má
nálgast á myspace.com/reykjavik-
theband.
krista@dv.is
Hljómsveitin reykjavík í feiknarstuði á Airwaves-hátíðinni sveitin sendir
frá sér plötuna the blood í næstu viku. mynd Gúndi
Margþætt merking blóðsins
Rokkararnir í Reykjavík! senda frá sér sína aðra breiðskífu í næstu viku og ber hún heitið The Blood.
Platan er aðeins þyngri en frumburðurinn og telur einn af meðlimum sveitarinnar, Haukur magnús-
son, að platan verði ekki allra en aftur á móti eigi hún erindi við alla.