Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2008, Blaðsíða 6
föstudagur 31. október 20086 Fréttir
Sandkorn
n Sagnfræðingurinn Guð-
mundur Magnússon bloggar
kampakátur um vinsamleg orð
sem neytendafrömuðurinn
Dr. Gunni lætur falla um Nýja
Ísland, nýútkomna bók þess
fyrrnefnda. Í bókinni leitast
Guðmund-
ur við að
kortleggja
þær breyt-
ingar sem
orðið hafa
á íslensku
samfélagi
á liðn-
um árum.
Dr. Gunni segir á bloggi sínu
að bókin sé ágæt „þótt þetta
„Nýja Ísland“ í titlinum sé
reyndar ekki það „Nýja Ísland“
sem nú stendur til að reisa
úr rústunum heldur „Sturl-
aða Ísland“ sem nú er dautt“.
Guðmundur þakkar Gunna
vinsamleg orð og stingur upp á
því að þeir fari saman í bíó við
tækifæri úr því Björn Bjarna-
son sjái sér ekki fært að fylgja
doktornum í bíó. Gunni viðr-
aði þá hugmynd á bloggi sínu
fyrir nokkru við litlar undir-
tektir dómsmálaráðherrans.
n Knattspyrnulið Skagamanna
missti vænan spón úr aski sín-
um þegar Kaupþing rúllaði en
merki bankans hefur skreytt
treyjur liðsmanna ÍA frá árinu
1991 og bankinn verið liðinu
traustur bakhjarl. Skarð Kaup-
þings hefur enn ekki verið fyllt
á Akranesi og í því árferði sem
nú er þykja hverfandi líkur á
að samningar náist við fyrir-
tæki um stuðning og auglýs-
ingar á búningum leikmanna.
Það gæti því farið svo að
Skagamenn muni spila í fyrstu
deild á næsta ári í ómerktum
treyjum en slíkt þarf þó góðu
heilli ekki aðeins að boða
illt þar sem hið sigursæla lið
Barcelona spilaði lengi vel í
ómerktum búningum.
n Þóra Tómasdóttir í Kastljós-
inu vinnur að gerð heimildar-
myndar um íslenska kvenna-
landsliðið í knattspyrnu og
hefur því fylgt liðinu eins og
skugginn með tökuvélina á
lofti undanfarið. Hún var með
stelpunum okkar á Írlandi um
síðustu helgi þar sem loka-
staðan var 1-1. Íslenska liðið
sneri dæminu hressilega við
á Laugardalsvelli í gær þegar
þær lögðu írsku stelpurnar
með þremur mörkum gegn
engu og tryggðu sér sér sæti
í Evrópukeppni landsliða í
Finnlandi á næsta ári. Þeg-
ar úrslitin lágu fyrir réð Þóra
sér ekki fyrir kæti og dansaði
í sigurvímu með stúlkunum
sigursælu.
Geir H. Haarde boðaði valda fjöl-
miðla á sinn fund á óformleg-
an blaðamannafund í Ráðherra-
bústaðnum á miðvikudag. Ólíkt
þeim blaðamannafundum sem
Geir hefur haldið að undanförnu
ríkti nokkur leynd um fundinn.
Eftir því sem DV hefur orðið
áskynja var fundurinn upphaflega
hugsaður sem skraffundur þar
sem forsætisráðherra gæti komið
sínum hugðarefnum á framfæri í
gegnum valda fjölmiðla án þess að
vitnað yrði beint í orð hans. Mis-
jafnt var þó hvernig fjölmiðlamenn
skildu fundarboðið sem var hringt
inn á suma fjölmiðla en aðra ekki.
Einhverjir töldu sig vera að mæta í
einkaviðtal við forsætisráðherra en
aðrir á venjulegan blaðamanna-
fund. Það kom mönnum því á
óvart þegar blátt bann var lagt við
því í upphafi að ljósmyndarar og
myndatökumenn mynduðu fund-
inn í bak og fyrir. Eftir nokkurt þóf
var þó samþykkt að ljósmyndarar
mættu mynda fundinn í upphafi
en myndatökumönnum var ekki
hleypt inn á hann.
Ekkert opinbert
Fréttablaðinu, Stöð 2, Ríkis-
útvarpinu og Morgunblaðinu var
boðið að senda fólk á fundinn
sem haldinn var í fundarherbergi
á þriðju hæð Ráðherrabústaðar-
ins. Venjan er sú að fjölmiðlum,
ef þeim er hleypt inn í húsið, er
leyft að vera á miðhæðinni og bíða
ráðherra en alls ekki hleypt upp á
þriðju hæðina þar sem ríkisstjórn-
in fundar.
Eftir því sem næst verður kom-
ist vildi forsætisráðherra koma sín-
um málstað á framfæri við valda
fjölmiðla gegn því skilyrði að ekki
yrði vitnað beint í hann eða orð
hans tekin upp. Helst er að skilja
að Geir hafi viljað afla málstað sín-
um kynningar og jafnvel samúð-
ar á fundinum. Geir mun meðal
annars hafa notað tækifærið til að
koma á framfæri gagnrýni á Björg-
ólfsfeðga án þess að hægt væri að
rekja það beint til hans.
Þekkt er víða erlendis að fjöl-
miðlafulltrúar ráðamanna boði
valda fjölmiðla á sinn fund til að
lýsa fyrir þeim gangi mála eða af-
stöðu ráðherra til manna og mál-
efna. Þetta hefur til að mynda
þekkst í breska forsætisráðuneyt-
inu þar sem fjölmiðlafulltrúar
hafa oft talað við valda blaðamenn
gegn því skilyrði að ummæli séu
ekki rakin beint til þeirra. Þannig
geta þeir stýrt umræðunni að ein-
hverju leyti án þess að hægt sé að
rekja það beint til þeirra. Ekki er
vitað hvort þetta hafi verið tilgang-
urinn með fundi forsætisráðherra
þar sem tilraunum DV til að ná tali
af aðstoðarmanni hans var í engu
svarað.
Gagnrýnni miðlum
ekki boðið
Ekki var þó öllum fjölmiðlum
boðið. Þannig var ekkert samband
haft við ritstjórn DV sem frétti fyrst
af fundinum eftir að hann var af-
staðinn. Þetta er fráleitt í fyrsta
skipti sem DV er ekki boðið á fundi
þar sem Geir svarar spurningum.
Ítrekað hefur komið fyrir að for-
sætisráðuneytið láti DV ekki sitja
við sama borð og aðrir fjölmiðlar.
Ekki hefur verið staðið við loforð
um að bæta úr þessu. DV hefur í
þeim tilfellum orðið af tækifær-
um til að spyrja forsætisráðherra
gagnrýninna spurninga.
DV óskaði í gær upplýsinga frá
aðstoðarmanni og ritara forsætis-
ráðherra um hvað hefði valdið því
hverjum var boðið, hvaða skilyrði
hafi verið sett og hvað hefði ráðið
því hverjum var boðið og hverj-
um ekki. Engin svör hafa fengist
við því.
Innantómt hjal
Óskar Hrafn Þorvaldsson,
fréttastjóri Stöðvar 2 og Vísis.-
is, staðfesti í samtali við DV að
fréttastofunni hefði verið boðið
að senda fréttamann á fundinn,
það boð hefði verið að frumkvæði
forsætisráðherra. Stöðvarmenn
sendu fréttateymi á vettvang en
urðu fyrir vonbrigðum þegar
myndatökumanni var bannað að
mynda fundinn.
„Það er sóun á tíma bæði blaða-
manna og forsætisráðherra að
eyða klukkutíma í innantómt hjal
um málefni líðandi stundar. Það
er alveg á hreinu að við munum
ekki taka þátt í svona uppákom-
um á vegum ráðherra framvegis,
hvorki með ráðherrunum sjálfum
eða spunameisturum þeirra,“ seg-
ir Óskar.
Leynifundur ritstjóranna
Fundurinn í gær er ekki eini
leynifundurinn með völdum fjöl-
miðlum sem haldinn hefur verið
að undanförnu. DV greindi frá því
fyrr í þessari viku að fyrir nokkru
voru Ólafur Stephensen, ritstjóri
Morgunblaðsins, Páll Magnússon,
útvarpsstjóri Ríkisútvarpsins, og
Þorsteinn Pálsson, ritstjóri Frétta-
blaðsins, kallaðir á fund tveggja
aðstoðarmanna ráðherranna
í húsnæði Háskólans í Reykja-
vík. Aðstoðarmennirnir voru þeir
Steingrímur Sigurgeirsson, aðstoð-
armaður menntamálaráðherra, og
Róbert Marshall, aðstoðarmaður
samgönguráðherra. Báðir eru fyrr-
verandi fjölmiðlamenn.
Eina ástæðan fyrir því að frétt-
ist af þeim fundi er sú að það sást
til nokkurra fundarmanna ganga
á braut og var þeim upplýsingum
komið á framfæri við DV.
Í fyrstu vildu fæstir fundarmenn
kannast við fundarefnið eða ræða
það þegar DV leitaði upplýsinga
um fundinn. Steingrímur neit-
aði því að þarna hefði átt sér stað
leynifundur milli valinna fjölmiðla
og pólitískra trúnaðarmanna ríkis-
stjórnarinnar. Samt sem áður sagði
hann það vera trúnaðarmál hvað
rætt hafi verið. „Á svona tímum er
mikilvægt að menn ræði saman
og að boðskiptaleiðir séu greiðar.
Samfélagið lék á reiðiskjálfi á þess-
um tímapunkti. Þá er ekki óeðli-
legt að menn tali saman og heyri
sjónarmið hver annars.“
Róbert Marshall, aðstoðarmað-
ur samgönguráðherra, sagði síð-
ar við DV, að ritstjórunum og út-
varpsstjórunum hefði verið kynnt
aðgerðaáætlun til að endurreisa
traust og orðspor Íslands. Einn-
ig hefði verið beðið um framlag
þeirra og hugmyndir. Í þeim orð-
um felst að efni fundarins hafi að
hluta til hið minnsta verið að fá
fulltrúa nokkurra helstu fjölmiðla
landsins til að leggja stjórnvöld-
um lið.
GEIR Í GERVI
SPUNAMEISTARA
Völdum fjölmiðlum var boðið á fund Geirs H. Haarde forsætisráðherra. Fundinn
ætlaði Geir að nota til að koma málflutningi sínum á framfæri í gegnum fjölmiðla,
helst án þess að vitnað væri í hann. Það er alveg á hreinu að við tökum ekki framar
þátt í svona uppákomum, hvorki með ráðherra né spunameisturum þeirra, segir
Óskar Hrafn Þorvaldsson, fréttastjóri Stöðvar 2.
BrynjÓLfur ÞÓr Guðmundsson
fréttastjóri skrifar: brynjolfur@dv.is
Bauð útvöldum til fundar geir H. Haarde hefur fundað mikið í ráðherrabústaðnum síðustu vikur. Á dögunum bauð
hann útvöldum fjölmiðlum á fund sem bar keim af fundum spunameistara breskra forsætisráðherra með fjölmiðlum.
20 % afmælisafsláttur
af öllum hefðbundnum
myndatökum og stækkunum
í október.
Nú er um að gera að panta stax
Mynd - ljósmyndastofa í 25 ár.
MYND
Bæjarhrauni 26, Hafnarfirði
S: 565 4207 www.ljosmynd.is