Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2008, Blaðsíða 20
FÖSTUDAGUR 31. OKTÓBER 200820 Fréttir
Skjár einn sagði upp öllum starfs-
mönnum sínum í gær. 365 miðlar
ætla að segja upp 20 til 30 manns
um helgina og boða launalækkun
þeirra sem hafa meira en 300 þús-
und krónur í laun á mánuði. Mest
verður skerðingin, 10 prósent, hjá
þeim sem hafa 500 þúsund krónur í
laun á mánuði og þar yfir.
Útgáfu 24 stunda var hætt í mán-
uðinum. 22 af 25 starfsmönnum
blaðsins var sagt upp störfum og út-
gáfan endanlega sameinuð Árvakri
10. október síðastliðinn. Margir
starfsmanna 24 stunda starfa enn á
Morgunblaðinu hvað svo sem fram-
tíðin ber í skauti sér.
Nýverið var Fréttablaðið og
dreifingarfyrirtækið Pósthúsið lagt
inn í Árvakur, útgáfu Morgunblaðs-
ins, og eignuðust eigendur 365 þar
með 36,5 prósenta hlut í Árvakri. Í
kjölfarið var blaðberum Pósthúss-
ins sagt upp störfum. Framtíð Við-
skiptablaðsins kann að vera í óvissu
vegna slakrar stöðu Exista.
Bakhjarlar í vanda
Ljóst er að með samruna Morg-
unblaðsins og Fréttablaðsins und-
ir einum hatti er djarflega teflt og
hefur Samkeppniseftirlitið sam-
runann til athugunar. Páll Gunn-
ar Pálsson, forstjóri Samkeppnis-
eftirlitsins, segir að unnt sé að sýna
nokkurn sveigjanleika við erfiðar
aðstæður. Augljóslega eiga aðaleig-
endur Árvakurs og 365 erfitt með
að auka hlutafé í fjölmiðlafyrirtækj-
unum eftir bankahrunið. Stoðir
og Stoðir Invest, fyrirtæki Jóns Ás-
geirs Jóhannessonar og fjölskyldu,
hafa fengið greiðslustöðvun þar
til í janúar. Jón er stærsti hluthafi í
365. Staða næststærsta hluthafans,
Pálma Haraldssonar, fer versnandi
en Sterling, flugfélag í hans eigu, var
lýst gjaldþrota í vikunni. Þá er staða
Björgólfs Guðmundssonar, stærsta
hluthafa Árvakurs, óljós eftir fall
Landsbankans.
Með því að leggja niður 24 stund-
ir og sameina Fréttablaðið og Morg-
unblaðið undir einum hatti er þess
freistað að hagræða í rekstri. Prent-
smiðja Árvakurs í Hádegismóum
prentar bæði blöðin, dreifing verð-
ur sameiginleg og möguleikar skap-
ast á samnýtingu eða samruna ljós-
myndadeilda.
Allt er þeim mótdrægt
Í kjölfar bankahrunsins og gríðar-
legrar hækkunar á verði aðfanga með
gengisfalli krónunnar hefur rekstr-
arkostnaður fjölmiðla hækkað upp
úr öllu valdi. Vitað er að verð á dag-
blaðapappír, bleki og öðrum rekstr-
arvörum hefur hækkað í sumum
tilvikum um tugi prósenta á skömm-
um tíma. Verð á aðkeyptu sjóvarps-
efni hefur hækkað mikið vegna mik-
illar gengislækkunar krónunnar og
veldur það sjónvarpsrekstri miklum
búsifjum.
Tekjur af auglýsingum hafa nán-
ast hrunið á örfáum vikum. Birting
auglýsinga skilar fjölmiðlum um 10
milljörðum króna á ári þannig að
alvarlegur samdráttur er þeim mik-
ið áfall. Ari Edwald, forstjóri 365,
áætlar að auglýsingatekjur hafi dreg-
ist saman um helming á örfáum vik-
um í öllum miðlum. „Þetta eru mikil
umskipti. Fyrstu þrjá mánuði ársins
sigldi Fréttablaðið yfir áætlunum
í auglýsingatekjum. Síðan þá hef-
ur hallað hratt undan fæti, einnig í
sjónvarpi og útvarpi. Fyrirsjáanlega
verða auglýsingatekjurnar tugi pró-
senta undir áætlunum í lok ársins.“
RÚV útrýmir sjónvarpi
á einkamarkaði
Ari gagnrýnir harðlega veru Rík-
isútvarpsins á auglýsingamarkaði
og tekur í einu og öllu undir sjónar-
mið Sigríðar Margrétar Oddsdóttur,
framkvæmdastjóra Skjás eins, sem
neyddist í gær til að segja upp öllum
starfsmönnum Skjásins.
„Við sem störfum á almennum
fjölmiðlamarkaði þekkjum dæmi um
allt að 70 prósenta afslátt sem RÚV
veitir þessa dagana frá auglýsinga-
taxta sínum. Það hefur orðið grund-
vallarbreyting á háttalagi RÚV eftir
að það breyttist í opinbert hlutafélag
með lögum. Það má vera augljóst að
opinberar tekjur RÚV eru notaðar til
þess að greiða niður auglýsingataxt-
ana í samkeppni við miðla sem hafa
ekki tryggar tekjur frá ríkinu.“
Ari segir að stjórnvöld beri mikla
ábyrgð á ástandinu. „Ef ekki verður
áherslubreyting hjá stjórnvöldum
felur núverandi stefna þeirra í sér
að einkareknum sjónvarpsstöðvum
í landinu verður útrýmt,“ segir Ari
Edwald.
Samkeppniseftirlitið
rannsakar RÚV
Samkeppniseftirlitið rannsakar
nú að eigin frumkvæði hvort vera
Ríkisútvarpsins á auglýsingamarkaði
raski samkeppni eða brjóti í bága við
samkeppnislög að öðru leyti.
Gunnar Páll Gunnarsson, for-
stjóri Samkeppniseftirlitsins, segir
að athugunin nái yfir tímann frá því
Ríkisútvarpinu var breytt í opinbert
hlutafélag. Hann kveðst ekki geta
sagt hvenær niðurstöðu sé að vænta.
Í umsögn um frumvarp til laga
um hlutafélagavæðingu RÚV í nóv-
ember 2006 lýsti Samkeppniseftir-
litið áhyggjum af þeirri mismunun
sem af því leiðir að RÚV starf-
ar á markaði fyrir birtingu
auglýsinga og mark-
aði fyrir kostun í
frjálsri sam-
keppni við
aðra miðla
jafnframt
því að hafa
tekjur af
skattfé til
útvarps-
þjón-
ustu
í al-
manna-
þágu. Í
umsögninni
lagði Sam-
keppniseftirlit-
ið til að RÚV yrði
tekið af augslýsinga-
markaði. Að öðrum
kosti yrði RÚV að aðskilja
samkeppnisrekstur sinn á
auglýsingamarkaði með því
að reka sérstakar útvarps- og
sjónvarpsrásir sem aðeins yrðu
fjármagnaðar með auglýsingum.
Með þeim hætti yrði tryggt að slík
samkeppnisstarfsemi yrði ekki niður-
greidd
með
skattfé.
Ætla
má að
auglýs-
ingatekjur
RÚV séu allt
að 1,4 milljarð-
ar króna á ári í
venjulegu árferði.
Frá og með næstu
áramótum falla af-
notagjöld niður en
upp verður tekinn nef-
skattur sem skilar Ríkis-
útvarpinu um 3 milljörð-
um króna í árlegar tekjur.
JóhAnn hAukSSon
blaðamaður skrifar: johannh@dv.is
fjölmiðlar berjast
fyrir lífi sínu
Framtíð einkarekinna fjölmiðla á Íslandi er afar ótrygg um þessar
mundir. Tekjur þeirra af auglýsingum hafa hrunið undanfarnar vikur
og kostnaður hefur margfaldast. Fjölmiðlum fækkar, uppsagnir eru
hafnar og gripið hefur verið til launalækkunar.
Dagblöð Dagblöðum fækkar,
rekstrarkostnaður eykst og tekjur
þeirra minnka. 24 stundir gáfu
upp öndina fyrir skemmstu.
Ríkisútvarpið „Ef ekki verður
áherslubreyting hjá stjórnvöldum
felur núverandi stefna þeirra í sér
að einkareknum sjónvarpsstöðv-
um í landinu verður útrýmt.“
Ari Edwald Auglýsinga-
tekjur fjölmiðla hafa
minnkað um helming á
aðeins nokkrum vikum.