Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2008, Blaðsíða 22
Svarthöfði getur verið nokkuð seinn að fatta en nú er þetta loksins orðið ljóst. Leiðin úr þessum mestu efnahagsþreng-
ingum íslensku þjóðarinnar, sem ríð-
ur henni hugsanlega að fullu, liggur
auðvitað beint til Kanaríeyja.
Davíð Oddsson átti nefni-lega kollgátuna þegar hann brást við Valdimarsdómn-um. Þessu atviki þegar
kvótakerfinu virtist ógnað með skýrari
hætti en nokkru sinni fyrr eða síðar
vegna dóms Hæstaréttar um að allir
landsmenn skyldu fá sama rétt til að
veiða fiskinn í hafinu kringum landið.
Þá velktist forsætisráðherrann ekki í
vafa um að áhrifin fyrir íslenskt efna-
hagslíf yrðu skelfileg - enda viðbúið að
allir þeir Íslendingar og útlendingar
sem einhvern áhuga hefðu á sjósókn
myndu ryksuga upp allan fisk í sjón-
um. „Og þá getum við þá væntanlega
lokað hér sjoppunni og farið bara öll
til Kanarí á meðan og komið svo heim
eft- ir 10 mánuði og sjá hvort eitt-
hvað verður eftir af
landinu það er að
segja efnahagslíf-
inu.“ En reyndar
tókst Davíð að
bjarga deginum
á þessum ve-
sælu vordög-
um árið 2000
og tryggja að
Ísland héldist í
byggð í nokkur
ár í viðbót.
En þá þegar lá sem sagt ljós fyrir
lausnin á
þessum miklu hremmingum okkar
á Íslandi. Síðasta vígi Íslendingsins
verður nefnilega á Kanarí. Og þetta
hefur ekki Davíð einn uppgötvað.
Framsóknarmenn hafa undirbúið sig
vel og rækilega síðustu árin. Þar tóku
þeir Sturla Þórðarson og Karl Arason
sig til og efndu til vikulegra Framsókn-
arhittinga á hinum goðsagnakennda
Klörubar. Barnum hennar Klöru Bald-
ursdóttur sem hefur hugsað vel um Ís-
lendinga þar árum saman og meira að
segja boðið upp á þjóðlegan íslenskan
mat. Og auðvitað voru forystumenn
Framsóknarflokksins ekki lengi að
átta sig á sóknarfærunum sem liggja
á Kanarí þó landar þeirra á gamla
góða Fróni hefðu snúið við þeim baki.
Þangað flaug Guðni Ágústsson og var
í tvær vikur um síðustu páska. Þá hélt
hann mikla ræðu yfir fundarmönnum
en gætti þess þó að græta menn ekki
með því að tala um hve allt væri erfitt
heima vegna þess hversu illa ríkis-
stjórnin hefði staðið sig. (Og hafið nú í
huga að þetta var um síðustu páska en
ekki í síðustu viku.)
Kosningabarátt-an virðist því hafin og hún fer
fram á Kanarí.
„Hér vex Fram-
sókn og þrífst
vel. Menn verða
framsóknar-
menn hér á Kan-
arí,“ sagði Guðni
síðasta vor.
Og þarna er kannski komin lausnin á tilvistarvanda Framsóknarflokksins. Flokkurinn sem eitt sinn
réði lögum og lofum á Íslandi, og sat
meira og minna samfleytt í ríkisstjórn
frá 1971 til 2007 áður en fylgið gufaði
upp eins og vatnsdropi í sumarsól,
gæti kannski orðið flokkur Ný-Íslend-
inga á Kanarí.
Og hver veit nema að þetta kynni að verða lausnin á öllum okkar vandræðum. Kanaríeyjar hafa líka þann
kost að þar er öllu hlýrra núna heldur
en hér á Íslandi. Hér blasir við að um
helgina verði hitastigið rétt yfir frost-
marki og að við fáum rigningu, rign-
ingu og aftur rigningu næstu daga. Á
Kanarí er hins vegar sól og blíða, 20
stiga hiti og vart ský að sjá á himni.
Og sennilega yrði það ekki minni kostur að Íslending-ar færu að vinna sér inn evrur í stað króna. Kannski
fólk hefði þá minni ástæðu til að frysta
myntkörfulánin sín.
föstudagur 31. október 200822 Umræða
Til Kanarí
svarthöfði
reynir TrausTason riTsTjóri sKrifar Börnum er kennt að segja satt.
Lygar og leyndarmál
Leiðari
Geir Haarde forsætisráðherra hefur orðið uppvís að lygum í starfi sínu á vegum þjóðarinnar. Í aðdraganda
hruns bankanna lýsti hann krísufundum
með seðlabankastjórum, bankastjórum og
eigendum banka sem hefðbundnum spjall-
fundum. Fjölmiðlar sem spurðu út í leyni-
fundina fengu þau svör að allt væri með
felldu. Sama framganga hefur einkennt for-
sætisráðherrann í eftirleiknum. Daglega hef-
ur hann sagt ósatt um stöðu mála og reynt
að telja fjölmiðlum trú um að svart væri
hvítt. Sú árátta að segja ósatt hefur í gegnum
tíðina verið talinn mikill löstur. Börnum er
kennt að segja satt til að verða ekki ærulaus.
Sú innræting heiðarlegs fólks hefur verið
viðurkennd sem góðra manna verk. Sann-
leikurinn á að vera einn af hornsteinum í sið-
uðu samfélagi. Nú er annað uppi á borðinu.
Skilaboð forsætisráðherra til þjóðar sinnar
eru þau að sjálfsagt sé að segja ósatt. Auð-
vitað geta stjórnvöld ekki sagt allt um gang
viðkvæmra mála á meðan þau ganga yfir. En
þá er krafan sú að menn einfaldlega tjái sig
ekki um þau mál. Lygaárátta stjórnvalda er
ein af dökkum hliðum samfélagsins. Önnur
hlið mála sem snýr að fjölmiðlum er einn-
ig ógeðfelld. Forsætisráðherra og aðstoðar-
menn ráðherra hafa tekið upp á því að boða
valda fjölmiðla til leynifunda. Það hlýtur
að vera til að stýra umfjöllun og jafnvel að
undirbyggja lygar. Á fimmtudag boðaði for-
sætisráðherra Morgunblaðið, Fréttablað-
ið og fleiri valda miðla til slíks leynifundar
þar sem bannað var að vera með upptöku-
tæki. DV fékk ekki boð um aðild að þeim
leynifundi fremur en öðrum. Það eru bestu
meðmæli sem einn fjölmiðill getur fengið.
Þeir sem vilja gerast handbendi siðlausra
stjórnvalda verða að gera það upp við sam-
visku sína. Aðrir fjalla um mál á forsendum
almennings í landinu og hafa sannleikann
að leiðarljósi fremur en afskræmingu þeirra
sem svívirða eigin þjóð með lygum og leynd.
Fjölmiðlar eiga að vinna í þágu fólks en ekki
valdhafa.
spurningin
„Við deilum öðru til þriðja sætinu með
Sjálfstæðisflokknum,“ segir
Steingrímur J. Sigfússon
, formaður Vinstrihreyfing-
arinnar - græns framboðs.
gallup birti könnun í gær
þar sem Vg mælist með 27
prósenta fylgi og
sjálfstæðisflokkurinn
með 26 prósent. Þetta er
í fyrsta skiptið í sögu Vg
sem hann mælist ofar en
sjálfstæðisflokkurinn í
könnunum.
Hver er þriðji sTærsTi
sTjórnmálafloKKur
landsins?
sandkorn
n Sverrir Stormsker þykir ein-
staklega skeleggur og kjaftfor
í þætti sínum á Útvarpi Sögu.
Frægast varð þegar Guðni
Ágústsson,
formaður
Framsókn-
arflokks-
ins, rauk út
úr beinni
útsend-
ingu í fússi.
Sverrir
hefur þann
hátt á að spila eingöngu eigin
tónlist í þætti sínum. Þegar
honum barst ósk um að spila
lag með Bubba Morthens brást
hann illa við og sagðist ein-
göngu spila góða tónlist í þætti
sínum.
n Frétt DV um Birnu Einars-
dóttur bankastjóra Glitnis sem
ætlar með ólögmætum hætti
að smeygja sér undan því að
greiða fleiri
hundruð
milljónir
vakti gríðar-
lega athygli.
Vilhjálmur
Bjarnason
aðjúnkt líkti
máli hennar
við það sem
gerðist hjá Árna Johnsen. Í gær
tóku menn sig saman um að
senda tölvupóst á Birnu með
áskorun um að hún hyrfi af
bankastjórastóli. Sjálf vill hún
sitja sem fastast og hefur beðið
Fjármálaeftirlitið að rannsaka
hana.
n Staða Birnu Einarsdóttur
sem bankastjóra Glitnis þyk-
ir ótrygg og slæm byrjun á
endurreisn
bankans.
Stallsystir
Birnu, Elín
Sigfúsdóttir
bankastjóri
Landsbank-
ans, er einn-
ig umdeild.
Hún svarar
ekki skilaboðum fjölmiðla þar
sem spurt er um aðild hennar
að IceSave-reikningunum al-
ræmdu. Hermt er að Elín hafi
fengið drjúgan bónus vegna
sparnaðar Bretanna sem nú
er um það bil að setja Ísland á
hausinn. Sjálf gætir hún þess
vandlega að hundsa spurning-
ar um slíkt.
n Í sandkorni í DV fyrr í
vikunni var sagt að Finnur
Sveinbjörnsson, nýr banka-
stjóri Kaupþings, væri mágur
Ingibjargar
Sólrúnar
Gísladótt-
ur utanrík-
isráðherra
og þá um
leið Össurar
Skarphéð-
inssonar
iðnaðarráð-
herra. Þetta er rangt þótt vissu-
lega deili Finnur föðurnafni
með Árnýju, eiginkonu Öss-
urar, og Hjörleifi, eiginmanni
Ingibjargar Sólrúnar. Nýi
bankastjórinn er ekki bróðir
Árnýjar og Hjörleifs þótt Svein-
björnsson sé hann vissulega.
LyngháLs 5, 110 Reykjavík
Útgáfufélag: Útgáfufélagið Birtíngur ehf.
Stjórnarformaður: hreinn Loftsson
framkvæmdaStjóri: elín Ragnarsdóttir
ritStjórar:
jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is
og Reynir Traustason, rt@dv.is
fréttaStjórar:
Brynjólfur Þór guðmundsson, brynjolfur@dv.is
og Þórarinn Þórarinsson, toti@dv.is
auglýSingaStjóri:
ásmundur helgason, asi@birtingur.is
dV á netinu: dV.is
aðalnúmer: 512 7000, ritstjórn: 512 7010,
áskriftarsími: 512 7080, auglýsingar: 515 70 50.
Umbrot: dV. Prentvinnsla: landsprent. Dreifing: árvakur.
dV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
„Það er heilmikið
sagt frá útrásinni
og aðkomu Ólafs
að henni.“
n Guðjón Friðriksson
sagnfræðngur sem gefur út bókina Saga af
forseta. Hann þurfti að skrifa nýja for- og
eftirmála sökum mikilla hamfara undanfarið. - DV
„Ég tel það mikilvægasta
málið til þess að styrkja
stöðu okkar og varðveita
efnahagslegt fullveldi
okkar.“
n Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra um
að aðild að ESB sé rétta skrefið til að ná aftur
stöðugleika. - DV
„...og reiknað
með því að
eitthvað æðra
réttlæti sé í
þeirri stefnu.“
n Séra Kristinn Ágúst Friðfinnsson um að fólk
hafi haft óhefta markaðshyggju fyrir trúarbrögð.
- DV
„Það hefur verið mikil
svörun að utan og tugir
þúsunda hafa skoðað
vefinn.“
n Jón Trausti Ólafsson, markaðsstjóri Heklu, en
fyrirtækið flytur nú út notaða bíla út af
efnahagsástandinu. - visir.is
„Þetta eru álíka
tæknileg mistök
og þjófnaður
Árna Johnsen.“
n Vilhjálmur Bjarnason, formaður Félags
fjárfesta, um þau rök Birnu Einarsdóttur,
nýskipaðs bankastjóra Glitnis, að mannleg mistök
hafi orðið til þess að ekki hafi orðið af kaupum
hennar á hlutabréfum í bankanum 2007. - DV
bókstafLega