Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2008, Blaðsíða 23
föstudagur 31. október 2008 23Umræða
Ég hvet fólk eindregið til þess að renna
inn á netsíðuna www.kjosa.is og taka
afstöðu til framtíðarinnar. Þrátt fyrir
allt sem gerst hefur, ber fólkið í land-
inu hita og þunga hinnar samfélags-
legu ábyrgðar og þess vegna verður
að virða vilja þess. Hér á eftir fara til-
vitnanir í orð örfárra þeirra fjölmörgu
landsmanna sem vilja að sem fyrst
verði kosið til Alþingis og lýðræðið
virt svo raunverulegt uppbyggingar-
starf geti hafist.
Ingibjörg Haraldsdóttir: Kosn-
ingar til Alþingis eru eina leiðin til að
draga úr þeirri tortryggni og óvissu
sem nú ríkir í þjóðfélaginu. Ég tel
öldungis fráleitt að menn sem bera
stærsta ábyrgð á fjármálakreppunni
á Íslandi geti leyst þann vanda sem
þeir hafa komið þjóðinni í. Til þess
þarf nýtt fólk, fólk með þekkingu,
getu og vilja til að bjarga því sem
bjargað verður.
Kristinn Ö. Jóhannesson: Ef
enginn vill taka ábyrgð verðum við
að fá tækifæri til að útdeila henni.
Linda Vilhjálmsdóttir: Mistökin
sem ríkisstjórn landsins gerði bæði
fyrir og eftir bankahrunið eru skelfi-
leg og gera byrðar almennings mun
þyngri en þær hefðu þurft að vera.
Það er algerlega óviðunandi að hér
sitji ríkisstjórn sem hunsar bæði
þing og þjóð ítekað og virðir ekki
reglur lýðræðisins. Sú stjórn verður
að víkja.
Valgeir Bjarnason: Með atburð-
um októbermánaðar í efnahaglífi
íslensku þjóðarinnar tel ég að um-
boð sitjandi þings sé rofið. Það er
því eðlileg krafa að kosið sé nýtt þing
með umboð til að ráða fram úr efna-
hagsvandanum.
Kolbrún Þorkelsdóttir: Kjósum
um jöfnuð, félagslegt og fjárhagslegt
réttlæti.
Einar Bergmundur Arnbjörns-
son: Burtséð frá öllum stjórnmála-
skoðunum er ljóst að það Alþingi
sem nú situr var kosið á allt öðrum
forsendum en nú eru til staðar í land-
inu. Því þarf að kjósa að nýju. Það er
skýlaus réttur þjóðarinnar að hafa
eitthvað um þær skuldbindingar að
segja sem nú standa fyrir dyrum.
Guðrún Lára Pálmadóttir: Ég
treysti ekki því fólki sem nú situr við
völd og hefur komið landinu í hrun
til að leiða okkur út úr vandræðun-
um aftur. Ég vil nýtt fólk við stjórn-
völinn sem fyrst og að ríkisstjórn og
seðlabankastjórar segi af sér strax!
Björn Thorarensen: Núverandi
ráðamenn hafa fyrirgert trausti þjóð-
arinnar og ættu að sjá sóma sinn í því
að segja af sér þegar í stað og boða til
kosninga eins fljótt og auðið er.
Ingiríður Br. Þórhallsdóttir: Ég
treysti ekki þessari ríkisstjórn til að
byggja hér upp réttlátt þjóðfélag.
Gunnar Breiðfjörð: Ef þetta fólk
sem myndar þessa ríkisstjórn væri
að vinna á almennum vinnumark-
aði væri fyrir löngu búið að segja því
upp, það ræður ekki við starfið.
Mínerva M. Haraldsdóttir: Mig
langar til að þessi samstaða og þrýst-
ingur frá fólkinu í landinu, sem er
alltaf að færast í aukana, verði til þess
að efla ábyrgð og vandvirkni stjórn-
málamanna í framtíðinni. Þeir karl-
ar og konur í stjórnsýslunni sem hafa
gert öll þessu grundvallarmistök að
undanförnu og eru enn að... ég bið
ykkur að skapa nýja hefð á Íslandi:
SEGIÐ AF YKKUR! Þjóðin biður um
nýja forystu með aðra og lengri fram-
tíðarsýn. Burt með valdahroka og
spillingu.
Böðvar Guðmundsson: Er búin
að fá algerlega nóg af þessum þreyttu
og ómögulegu ráðamönnum okkar
yndislega lands.
Hver er maðurinn? „guðjón Valur
sigurðsson.“
Hvað drífur þig áfram? „Það er
bara að vera með metnað til að gera
stöðugt betur, læra nýja hluti og vera
glaður og jákvæður.“
Hvar ertu uppalinn? „Á seltjarnar-
nesi.“
Hver er uppáhaldsmaturinn
þinn? „Það er eiginlega bara allt
íslenskt. Þegar maður býr úti og
kemur sjaldan heim þarf maður
einhvern veginn að fá sér allt íslenskt.
Maður verður að fá sér fisk og svo vill
maður lambakjöt og svo verður alltaf
að fá sér einn góðan hamborgara og
bara allt þar á milli.“
Hvað hefur þú æft handbolta
lengi? „Ég fór á mína fyrstu æfingu
þegar ég var 7 ára en hef sennilega
farið að æfa reglulega 8 til 9 ára.“
Hvernig er að vera þriðji
maðurinn til að rjúfa þúsund
marka múrinn í A-landsliði?
„tilfinningin að vakna í gær og í
morgun var alveg sú sama. Það er jú
gaman að þessu en handbolti er
liðsíþrótt og einstaklingsárangur telur
lítið. Það er gaman að ná árangri en
þessi er meira fyrir einhverja sem hafa
gaman af tölfræðinni. breytti ekki lífi
mínu.“
Stefnir þú á að ná tvö þúsund
mörkum? „Ég held að það sé
einfaldlega ekki möguleiki og nei, ég
set mér ekki markmið að skoruðum
mörkum, frekar að vinna leiki og ná
árangri.“
Hvar geymir þú silfrið frá
ólympíuleikunum? „Það er heima
hjá mér. allar medalíur hafa farið heim
til foreldra minna en ég tók
ólympíusilfrið með mér og ætla að
hafa það heima hjá mér.“
Áttu einhver ráð handa ungum
og upprennandi handknattleiks-
mönnum? „bara æfa vel og hafa
gaman af sportinu. einnig að vera
tilbúinn að prófa eitthvað nýtt og ekki
láta vinda sig niður. Það er mjög
mikilvægt að vera tilbúinn að læra og
vera opinn fyrir nýjungum. eins að
læra eitthvað af eldri leikmönnum.“
Kjósa
Fögur er Hlíðin Íslensk náttúra stendur enn óhögguð í allri sinni köldu fegurð þótt samfélagið sé á hliðinni. Við fólki blasa hvergi bleikir akrar eða slegin tún í efnahagslíf-
inu og því spyrja sig margir hvort sé betra að fara í útlegð eða fara hvergi. MYnD róbert reYniSSon
Hefur einHver nákominn þér misst vinnuna nýlega?
„Nei, en við hjónin vinnum bæði hjá
fyrirtæki þar sem uppsagnir hafa
verið.“
HAFrún MAgnúSDóttir
53 Ára baNkastarfsMaður
„Já. kollegar mínir í verkamanna-
geiranum hafa misst mikla vinnu.“
MAgnúS KArlSSon
72 Ára ellilÍfeyrisÞegi
„Nei. Maður óttast það samt alltaf.“
Jón gunnArSSon
29 Ára stuðNiNgsfulltrúi Í
Hólabrekkuskóla
„Nei, enginn sem ég þekki. Maður er
samt alltaf svolítið hræddur um það.“
berglinD AðAlSteinSDóttir
17 Ára NeMi
Dómstóll götunnar
guðJón vAlur SigurðSSon
er þriðji handknattleiksmaðurinn í
sögu Íslands til að ná þeim árangri að
skora þúsund mörk.
Geymi silfrið heima
„Já. tvær dætur mínar, báðar með
háskólapróf, hafa misst vinnuna. önnur
var í skrifstofumennsku og hin í
bankastarfsemi.“
PÁlMi ólAFSSon
74 Ára ellilÍfeyrisÞegi
kjallari
mynDin maður Dagsins
vigDíS
gríMSDóttir
rithöfundur skrifar
„Þrátt fyrir allt sem
gerst hefur, ber fólkið í
landinu hita og þunga
hinnar samfélagslegu
ábyrgðar.“