Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2008, Blaðsíða 56
föstudagur 31. október 200856 Helgarblað DV
Tónlist
Steini með nýja plötu
Hljómsveitin steini sendi frá sér plötuna Human
Comfort í gær en á henni er að finna tólf lög og
texta eftir steina. steini vann Þorskastríð Cod Music
fyrr á árinu og hlaut að launum útgáfusamning
hjá Cod en alls tóku hundrað og tvær hljómsveitir
þátt í stríðinu. Á næstunni mun steini fagna útgáfu
plötunnar með heljarinnar tónleikum sem verða
auglýstir nánar síðar.
uMsjón: krista Hall krista@dv.is
„Ég hafði ekkert rosalega mik-
inn áhuga á því að vera að syngja
þegar ég var yngri en svo rétt fyrir
fermingu langaði mig svo geðveikt
að vera rosalega góð á gítar svo ég
einsetti mér það og fór í nokkra
tíma en hef síðan verið að glamra
og læra bara sjálf,“ segir tónlistar-
konan Elín Ey sem sendir frá sér
sína fyrstu breiðskífu 5. nóvember.
Elín kemur úr mikilli tónlistar-
ætt enda dóttir tónlistarfólksins
Ellenar Kristjáns og Eyþórs Gunn-
arssonar og á því ekki langt að
sækja hæfileikana. Elín semur lög-
in sín sjálf og spilar blús í bland við
einlæga kassagítartónlist.
„Um leið og ég var búin að læra
að spila á gítarinn fór ég að semja
tónlist. Ég var svolítið meira í emo-
tónlistinni á unglingsárunum svo
tónlistin var allt öðruvísi en sú sem
ég er að semja í dag. Ég hef alltaf
fílað blús en það er frekar nýlegt að
ég spili hann og syngi sjálf.“
Reggí-útgáfa af Haddaway
Frumburður Elínar hefur hlot-
ið heitið See You in Dreamland og
inniheldur átta frumsamin lög og
tvö „cover“-lög, með Bítlunum og
90‘s-stjörnunni og Íslandsvininum
Haddaway. „Haddaway var aðal-
lega bara eitthvað djók en ég og
vinkona mín stöndum fyrir svona
open mic-kvöldum og ég byrjaði
að syngja reggíútgáfu af What is
Love sem fólki fannst svo flott að
ég ákvað að láta það fylgja með.
Bæði cover-lögin eru tónleikaupp-
tökur,“ segir Elín en Bítlalagið sem
hún valdi er Why Don‘t We Do It
in the Road.
„Það er í miklu uppáhaldi hjá
mér og mér finnst skemmtilegt að
syngja það.“ Sjálf er hún mikill að-
daándi John Lennon.
„Lennon er alveg minn uppá-
haldstónlistarmaður og svo hef ég
líka mjög gaman af Ninu Simone,
Led Zeppelin og Bítlunum.“
Útgáfutónleikar
Sama dag og See You in Dream-
land kemur út heldur Elín útgáfu-
tónleika í Þjóðleikhúskjallaranum
ásamt góðum gestum sem einn-
ig spila með henni á plötunni. „Á
plötunni spilar meðal annars KK
frændi, Eyþór Gunnarsson, pabbi
minn, og Sigga og Steini í dúett-
inum Pikknikk. Þau verða öll með
mér á tónleikunum.“
Það er frítt inn á tónleikana í
Þjóðleikhúskjallaranum og all-
ir velkomnir. Húsið verður opnað
klukkan níu og hefjast tónleikarnir
upp úr tíu. krista@dv.is
elín ey sendir frá sér frumburðinn
tónlistarkonan fagnar útgáfunni með
tónleikum í Þjóðleikhúskjallaranum.
Sjáumst í draumalandi
TónliSTarkonan Elín Ey SEndir frá Sér frumburð Sinn 5. nóvEmbEr. PlaTan
nEfniST SEE you in drEamland En Sama kvöld og PlaTan kEmur úT æTlar Elín
að fagna úTgáfunni mEð TónlEikum í ÞjóðlEikhúSkjallaranum.
merkt.is
Faxafeni 12
BETRI BÍL
A
YNGRI KO
NUR
ELDRA VI
SKÝ
MEIRI PEN
ING
Opið 10-18 virka daga 11-14 laugard.
557-1960 merkt@merkt.is