Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2008, Page 35
föstudagur 31. október 2008 35Helgarblað
flesta dreymir um að vera rokkstjörnur og standa á sviði fyrir framan þúsundir
manna. fá að upplifa glamúrinn og frægðina beint í æð. glamúrinn getur þó snögg-
lega snúist í höndunum á fólki og endað í vandræðalegustu augnablikum lífs þess.
dV tók saman lista þar sem rokkstjörnunrar tapa kúlinu og gott betur en það
Ozzy og dýrin
ein umtalaðasta uppákoma tónlistarsögunnar er þegar
snillingurinn ozzy osbourne beit höfuðið af leðurblöku á
tónleikum í bandaríkjunum árið 1982. tónleikagestur henti
leðurblökunni upp á svið til ozzys, hann hélt að um leikfang
væri að ræða og áður en viðstaddir vissu af hafði ozzy bitið
hausinn af skepnunni. eins og nærri má geta var ozzy á kafi í
eiturlyfjum á þessum tíma. tvennum sögum fer af því hvort
greyið leðurblakan hafi verið lifandi þegar ozzy beit höfuðið
af skömminni, ef svo má segja. annað eftirminnilegt atvik
sem tengist ozzy er þegar hann lét þar til gert apparat
henda innyflum úr dýrum út í áhorfendaskarann á
tónleikaferð sinni diary of a Madman. Á einum tónleikunum
vildi svo óheppilega til að eitt stykkið fór aðeins styttra en
ætlunin var og lenti ofan á hausnum á ozzy.
Þegar söngvarar
syngja ekki sjálfir
Popp-dúettinn Milli Vanilli var sá heitasti undir lok níunda
áratugarins. flétturnar og þröngu gammosíurnar gerðu
stúlkurnar alveg brjálaðar þangað til á einum tónleikum er
strákarnir tóku lagið girl You know it‘s true. spólan byrjaði að
hiksta „girl, girl, girl, girl“. upp komst þá að kapparnir sungu
aldrei nema með upptöku. fléttufögru félagarnir vissu ekkert
í hvorn fótinn þeir ættu að stíga og voru ekki lengi að láta sig
hverfa af sviðinu.
seinna kom í ljós að Milli Vanilli var ein mesta platsveit fyrr og
síðar. gaurarnir höfðu ekki einu sinni sungið lögin í
upptökuverinu. Milli Vanilli vann til grammy-verðlauna fyrir
lög á borð við girl, You know It‘s true og blame It on the
rain. Þeir voru seinna sviptir verðlaununum og hefur varla
heyrst frá þeim síðan. fyrir nokkrum árum vildu vinirnir sýna
sig og sanna á VH1-sjónvarpsstöðinni og tóku öll lögin sem
gerðu þá fræga á sínum tíma. Við skulum bara segja að það
hafi ekki gengið neitt rosalega vel.
Sleikjó
í augað
david bowie hafði eflaust aldrei
ekki gert sér í hugarlund hvað
myndi hrekja hann burt af sviði.
Á tónleikum í ósló árið 2004
ákvað æstur aðdándi að kasta
upp á svið hvítu priki af sleikjó.
eins saklaust og það hljómar fór
prikið beint í augað á bowie með
þeim afleiðingum að hann var frá
í heilar 20 mínútur. augað sem
varð fyrir barðinu á prikinu var
sama auga og hann skaddaðist á
í slagsmálum þegar hann var lítill
strákur. augað er eftir óhappið
varanlega skaðað.
Tæklaður og
tannbrotinn
bassaleikarinn í green day, Mike
dirnt, kom heldur betur illa út úr
eftirminnilegum og öfgakennd-
um leðjuslag hljómsveitarinnar
við áhorfendur á Woodstock
1994. Hjómsveitin hóf slaginn
sem endaði á því að sviðið varð
fullt af aurugum áhorfendum.
öryggisverðir sem unnu hörðum
höndum við að koma áhorfend-
um af sviðinu gerðu engan
greinarmun á fólki og tóku dirnt
föstum tökum. Við það missti
hann nokkrar tennur. afdrifarík
skemmtun.
Barinn af
Winehouse
James gostelow, áhorfandi á
tónleikum amy Winehouse, fékk
aldeilis að finna fyrir skapinu á
henni en hún gerði sér lítið fyrir og
barði hann á glastonbury-hátíðinni
í ár. gostelow, sem var einn af
fremstu mönnum á tónleikunum,
heldur því fram að hann hafi fengið
höggið fyrir alger mistök. eins og
hann segir orðrétt: „Ég sá hatt koma
fljúgandi sem lenti í hárinu á
Winehouse. Hún leit strax á mig, ég
horfði upp og þá kom olnboginn.“
gostelow segir þetta bara upplifun
þess að vera á glastonbury.
Pissaði á sig
söngkonan fergie í hljómsveitinni
black eyed Peas lenti heldur betur í
vandræðalegri uppákomu á tónleikum
í san diego. fergie sem er ávallt fremur
kynþokkafull á sviði og glennir sig í
allar áttir þurfti að halda löppunum á
sér saman þegar líða tók á seinni hluta
tónleikanna þar sem söngkonan hafði
hreinlega pissað á sig í miðju lagi.
Myndir af atvikinu fóru eins og eldur í
sinu um netið og reyndi fjölmiðlafull-
trúi fergie að halda því fram að þetta
væri eingöngu svitablettur en ekki
hland. daginn eftir viðurkenndi fergie
þá að í miðju rokkinu og hoppinu
hefði blaðran einfaldlega farið í gang
og pissið byrjað að leka. smart það.
Kókaínklessa
Neils Young
Hin goðsagnakennda hljómsveit the band
hélt lokatónleika sína árið 1976 og fékk af
því tilefni nokkra góða gesti á svið með
sér, meðal annars bob dylan, eric Clapton,
Neil Young og Neil diamond. Þetta var
sannkölluð tónlistarveisla og lifir enn hátt
í minningu þeirra sem á tónleikana
mættu. Þegar Neil Young steig á svið vildi
ekki betur til en svo að söngvarinn var
með stóra klessu af kókaíni undir nösinni
sem fór ekki framhjá neinum. Martin
scorsese og robbie robertson gerðu
mynd um tónleikana og neyddust til að
klippa myndina þannig til að ekki sæist í
kókaínklessuna góðu.
Trommusettið
sprakk
gömlu góðu rokkararnir í the Who
hafa ávallt farið ótroðnar leiðir í
rokkinu en eitt af eftirminnilegustu
uppátækjum sveitarinnar á
trommuleikarinn keith Moon.
Moon ætlaði að slá þvílíkt í gegn í
sjónvarpssal árið 1967 með
kröftugum og rokkuðum
sprengingum á sviðinu. sprenging-
arnar urðu þó töluvert kröftugri en
trommuleikarinn átti von á sem
leiddi til þess að trommusettið
hans sprakk í loft upp.
StærStu
klúðrin á Sviði