Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2008, Síða 46
föstudagur 31. október 200846 Á ferðinni
Á ferðinni
Staðreyndir um taíland
Höfuðborg: bangkok
stærð: 513.115 ferkílómetrar
fólksfjöldi: 63 milljónir
tungumál: thai
trú: 95% búddistar, 5% annað
gjaldmiðill: baht
umsjón: Ásgeir jónsson asgeir@dv.is
Klifrað Í ParaDÍS
Vinkonurnar Sólveig Pétursdóttir og Bryndís Sævarsdóttir eru nú á níu mánaða
ferðalagi um hálfan heiminn. Þessa dagana eru þær staddar á lítilli strönd sem kallast
Ton Sai og er þekkt fyrir öflugt klifursvæði, hvítar strendur og skógi vaxna kletta. Stelp-
urnar blogga inn á dv.is og reglulega munu birtast eftir þær pistlar hér á ferðasíðunni.
Eftir 18 tíma rútuferð frá Bangkok
til Krabi – þess ber að geta að við
tökum alltaf næturrútur til að spara
peninga í gistingu – húkkuðum við
okkur far niður að næstu bryggju.
Næsti áfangastaður var lítil strönd
kölluð Ton Sai. Hún er hvað frægust
fyrir öflugt klifursvæði og gjarnan
kölluð „Backpackers paradise“. Eina
leiðin til að komast þangað er með
litlum „long tail“-báti en það var nú
ekki leiðinleg bátsferð því við sigld-
um meðfram háum skógi vöxnum
klettum í bland við hvítar strendur.
Leonardo DeCaprio-myndin „The
Beach“ var einmitt tekin upp á eyju
sem er hér í næsta nágrenni.
Ódýrt að lifa
Meðalaldur ferðalangra á Ton
Sai er um 25 ár. Flestir eru með
þunna buddu og svæðið einkennist
af því. Við gistum í litlum bungalow
með viftu, kaldri sturtu og klósetti
og borguðum 600 kr fyrir nóttina.
Það var bara rafmagn frá 18.00 til
04.00 en það truflaði okkur ekkert.
Eftir tveggja daga dvöl komumst við
að því að það eru engir hraðbank-
ar á Ton Sai. Við neyddumst því til
þess að klöngrast í gegnum skógi
vaxna kletta yfir á næstu strönd.
Það er nú líka hægt að taka bát en
íslenska krónan leyfir engan lúxus.
Klifrað á frægasta
klifursvæði taílands
Við fórum til Ton Sai til að klifra
á frægasta klifursvæði Taílands. Við
höfðum heyrt að þetta væri falleg-
ur staður en vá, þetta er algjör para-
dís. Það eru mörg hundruð boltað-
ar klifurleiðir og eitthvað við allra
hæfi. Hingað koma bæði byrjendur
sem og atvinnumenn. Kvöldið sem
við komum kynntumst við strax
mikið af skemmtilegu fólki en það
var engin sveitt teknópartístemn-
ing hér eins og á Koh Phangang.
Daginn eftir slógumst við svo í för
með nýbökuðum vinum okkar sem
sýndu okkur svæðið.
Kanadíski hippinn
Nú höfum við rekist á þá ófáa
hippana sem „hanga“ hérna í Suð-
austur-Asíu en það er einn sem er
okkur minnisstæðastur. Það er nýj-
asti vinur okkar, Dane, 21 árs, frá
Kanada. Hann hefur verið á flakki í
um eitt ár en engu venjulegu flakki.
Hann er búin að húkka sér far í
gegnum Kína, Víetnam, Laos og
Taíland. Ekki nóg með það heldur
hefur hann aldrei borgað fyrir gist-
ingu. Hann ýmist sefur á götunni
eða sníkir sér gistingu hjá fólki sem
verður á vegi hans.
Ekkert heima-
nám um helgar
Íslensk stelpa var um daginn að
passa börn hér í noregi og stökkbrá
þegar kom í ljós að þau þurftu
ekkert að læra heima um helgar.
Vinnu á að framkvæma á vinnutíma,
meðan það á að vera frí um helgar.
ef til vill hefðu Íslendingar gott af
því að skoða þessa hugmyndafræði
nánar. alveg frá því maður byrjar í
skóla sex ára gamall hefur maður
það alltaf á tilfinningunni að maður
eigi í raun að vera að gera eitthvað
annað. enda hefur það margoft
sýnt sig að Íslendingar eru manna
lengst í vinnunni, en eru mikið að
dóla sér og skreppa meðan á
vinnutíma stendur. Í skandinavíu er
vinnutími styttri en mun skýrar
afmarkaður.
Það er reyndar annar munur á
norska skólakerfinu og því íslenska.
menn í noregi reyna að líta hlutina
jákvæðari augum. Það eru fimm
megineinkunnir veittar. Hæsta
einkunn er „sérstaklega gott“ og sú
næsthæsta er „mjög gott“. Það að
rétt ná er kallað „gott“. að falla er
hins vegar „nokkuð gott“. Þegar
menn rétt skrifa nafnið sitt og reyna
ekki einu sinni, er tekið sterklegar til
orða. Þá er sagt að það sem þeir hafi
gert sé „lítið gott“.
Þessi vingjarnleiki sem endurspegl-
ast í einkunnakerfinu nær til hæstu
hæða stjórnsýslunnar. jens
stoltenberg forsætisráðherra er með
sína eigin facebook. Þar má meðal
annars sjá að ráðherra er mikill
áhugamaður um aðþrengdar
eiginkonur (sjónvarpsþættina) og
horfir gjarnan á þá eftir að
eiginkonan fer að sofa. meira
ógnvekjandi er að hitt uppáhalds-
sjónvarpsefnið hans er þættirnir um
mafíuforingjann tony soprano.
kannski fara þau einnig meira að
minna á hin íslensku?
Valur Gunnarsson skrifar
um noreg
SnorKlað innan um fiSKana Í bátsferð umhverfis
koh Phangang-eyjuna var meðal annars farið að snorkla.
Klifrað með myndaVélina á BaKinu sólveig á
frægasta klifursvæði taílands, ávallt með myndavélina til taks.