Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2008, Page 64

Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2008, Page 64
n Íslensk tónlist hefur fallið vel í kramið hjá Japönum undanfarin ár og hefur plötuútgáfan 12 tónar á Skólavörðustíg verið ein þeirra sem átt hefur í miklum samskipt- um við Japan að undanförnu. Í byrjun árs hafði hin japanska Rambling Records-útgáfa í Tókýó samband við forsvarsmenn 12 tóna þar sem þeir óskuðu eftir því að gefa út sérstakan 12 tóna af- mælisdisk á árinu. Svo varð úr og kemur diskur þessi út 3. desem- ber næstkomandi í Japan. Á disknum er að finna tónlist með ekki ómerkari listamönnum en Skúla Sverrissyni, Eivöru Páls- dóttur, Ragn- heiði Gröndal og tónlistar- drottning- unni Ingi- björgu Þorbergs sem á eflaust eftir að heilla Jap- ani upp úr skónum. Sem betur fer má byggja á brunarústum! Fréttaskot 512 70 70 DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til fréttar. fyrir fréttaskot sem Verður aðalfrétt á forsíðu greiðast 25.000 krónur. fyrir besta fréttaskot Vikunnar greiðast allt að 50.000 krónur. alls eru greiDDar 100.000 krónur fyrir besta fréttaskot hVers mánaðar. „Takmarkið var alltaf að Mundi myndi eignast nýtt heimili fyrir jól,“ segir Hrafn Jökulsson um húsbygg- ingu nágranna síns Guðmundar Þorsteinssonar á Finnbogastöðum en hann missti allt sitt þegar íbúð- arhúsið á Finnbogastöðum fuðraði upp í stórbruna 16. júní. Enn rauk úr rústunum þegar Guðmundur og ná- grannar hans sóru þess dýran eið að nýtt hús skyldi rísa á sama stað fyrir jól og allt bendir til þess að sú áform muni ganga eftir og það á undan áætlun. Á síðustu dögum hafa veggir húss- ins verið reistir og yfir þá er komið þak. „Þetta kanadíska einingahús kom siglandi til landsins um það leyti sem kreppan mikla skall á,“ segir Hrafn og bætir því við að síðan þá hafi vaskur hópur sveitunga Munda auk sérfræð- inga í húsabyggingum frá Reykjavík og Hólmavík tekið þátt í uppbygging- unni af lífi og sál. „Kranamaðurinn Ágúst Guðjóns- son frá Hólmavík reyndi að komast hingað í tvígang frá Hólmavík, fyrst á bíl og síðan á snjósleða. Hann þurfti að snúa við, fór til Reykjavíkur og tók flug hingað. Þannig að til að komast frá Hólmavík í Árneshrepp ferðaðist hann hátt í þúsund kílómetra.“ Á meðan byggingarframkvæmdir liggja að mestu niðri á höfuðborgar- svæðinu fellur Strandamönnum ekki verk úr hendi og Hrafn segir að líklega sé þetta eina húsið á landinu sem sé í smíðum þessa dagana. Strandamenn láta þar fyrir utan kreppuna ekki raska ró sinni. Búið er að slátra og sulta og sjórinn er fullur af fiski þannig að í sveitinni mætir fólkið kreppuvetrin- um eins og hverjum öðrum vetri. JapanIr vIlJa íslenskt Eitt meginmarkmið laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008 er að vinna gegn launamisrétti og annarri mismunun á grundvelli kynferðis á vinnumarkaði. Í lögunum segir m.a: Mismunun á grundvelli kyns er bönnuð. Það gildir að sjálfsögðu einnig um uppsagnir. Atvinnurekendur og stéttarfélög eiga að vinna markvisst að því að jafna stöðu kynjanna á vinnumarkaði. Sérstaklega á að leggja áherslu á að jafna hlut kynjanna í stjórnunar – og áhrifastöðum. Konur og karlar hjá sama atvinnurekanda eiga að fá jöfn laun og sömu kjör fyrir sömu eða jafnverðmæt störf. Starfsfólk má alltaf skýra frá launakjörum sínum. Starf sem laust er til umsóknar skal standa opið jafnt konum sem körlum. Við skipun í nefndir, ráð og stjórnir á vegum ríkis og sveitarfélaga á hlutfall kynjanna að vera sem jafnast og ekki minna en 40% þegar fulltrúar eru fleiri en þrír. Sama gildir um stjórnir opinberra hlutafélaga og fyrirtækja sem ríki eða sveitarfélag er aðaleigandi að. Jafnréttisstofa Stöndum vörð um jafnrétti kynjanna Að gefnu tilefni Strandamenn láta ekki deigan síga: Blása á kreppuna n Logi Geirsson segir belgíska liðið sem Ísland tók af lífi í Laugardals- höll á miðvikudag það slakasta sem hann hafi mætt. Logi lýsir leikn- um þannig að hann hafi verið álíka skemmtilegur á að horfa og „máln- ing að þorna“. Ívar Benediktsson, íþróttablaðamaður á Morgunblað- inu, skrifar um leikinn í blaði gær- dagsins þar sem hann segir Loga aðeins hafa verið skuggann af sjálf- um sér. „Veistu hver John Stockton er??? Nei hélt ekki,“ svarar Logi glettinn og vísar þar til þeirra fjöl- mörgu stoðsend- inga sem hann gaf í leikn- um. skýtur á MoggaMann n „Ég ætla að kveðja moggablogg- ið um helgina eftir tæplega tveggja ára vist þar. Ég kveð með söknuði að sumu leyti en þar er margt skemmti- legt fólk. Nú ætla ég snúa mér að því að blogga á dv.is,“ segir ofurblogg- arinn Guðríður Haraldsdóttir sem hefur verið á meðal vinsælustu bloggara Moggans. Gurrí, sem þekkt er fyrir lífsreynslusögur sínar í Vik- unni, boðar lokafærslu sína á mbl.is um helgina og að þar verði að finna sprengiefni. Hún segir að skrif henn- ar á dv.is muni verða enn svæsnari þar sem kynlíf og ofbeldi komi fyrir í meiri mæli, að minnsta kosti í lands- frægum Bold-færsl- um hennar. Rétt er þó að taka fram að blogg- arinn hefur ekki orðið uppvís að siðferðisbresti á bloggi sínu og færslur hennar munu hér eftir sem fyrr verða innan siðsem- ismarka. Hrafn Jökulsson stend- ur í húsbyggingu ásamt sveitungum sínum í skítakulda og gefur kreppunni langt nef. gurrí kveður MoggaBlogg

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.