Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2010, Blaðsíða 24
24 MÁNUDAGUR 15. mars 2010
EIÐUR FÉKK MÍNÚTU „Hann fær plús í kladdann frá klúbbnum fyrir að vera
áfram á Englandi og æfa,“ sagði Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari Íslands, þegar Ísland
mætti Kýpur ytra fyrir skömmu. Þá fékk Eiður frí til þess að reyna að koma sér í lið
Tottenham. Æfingarnar hafa skilað litlu því Eiður hefur lítið komið við sögu
síðan landsleikurinn fór fram. Um helgina vann Tottenham Blackburn 3-1
og kom Eiður Smári inn á sem varamaður á 89. mínútu fyrir Luka Modric.
Roman Pavlyuchenko skoraði tvö mörk fyrir Tottenham.
UMSJÓN: TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON, tomas@dv.is
ENSKA ÚRVALSDEILDIN
TOTTENHAM - BLACKBURN 3-1
1-0 Jermain Defoe (‘45), 2-0 Roman Pavlyuchenko (‘55), 2-1
Christopher Samba (‘80), 3-1 Roman Pavlyuchenko (‘85)
BIRMINGHAM - EVERTON 2-2
0-1 V. Anichebe (‘19), 0-2 A. Yakubu (‘22), 1-2 C. Jerome (‘26), 2-2
C. Gardner (‘52),
BOLTON - WIGAN 4-0
1-0 J. Elmander (‘10), 2-0 K. Davies (‘47, víti), 3-0 F. Muamba (‘53),
4-0 M. Taylor (‘69)
BURNLEY - WOLVES 1-2
0-1 M. Jarvis (‘26), 0-2 C. Carlisle (‘47, sjálfsmark), 1-2 S.
Thompson (‘73)
CHELSEA - WEST HAM 4-1
1-0 Alex (‘16), 1-1 S. Parker (‘30), 2-1 D. Drogba (‘56), 3-1 F.
Malouda (‘77), 4-1 D. Drogba (‘90)
STOKE CITY - ASTON VILLA 0-0
HULL CITY - ARSENAL 1-2
0-1 A. Arshavin (‘14), 1-1 J. Bullard (‘28, víti), 1-2 N. Bendtner (‘90)
R: George Boateng, Hull (‘45)
MAN. UTD - FULHAM 3-0
1-0 Wayne Rooney (‘46), 2-0 Wayne Rooney (‘84), 3-0 Dimitar
Berbatov (‘89)
SUNDERLAND - MAN. CITY 1-0
1-0 Kenwyne Jones (́ 9), 1-1 Adam Johnson (́ 90)
STAÐAN
Lið L U J T M St
1. Man. Utd 30 21 3 6 70:24 66
2. Chelsea 29 20 4 5 69:27 64
3. Arsenal 30 20 4 6 71:33 64
4. Tottenham 29 15 7 7 53:28 52
5. Man. City 27 13 10 4 52:35 49
6. Liverpool 29 14 6 9 45:29 48
7. Aston Villa 27 12 10 5 37:21 46
8. Birmingham 29 12 8 9 30:31 44
9. Everton 29 11 9 9 46:42 42
10. Fulham 29 10 8 11 32:32 38
11. Stoke City 29 8 12 9 28:33 36
12. Blackburn 29 9 7 13 31:48 34
13. Bolton 30 8 8 14 36:54 32
14. Sunderland 28 7 9 12 36:44 30
15. Wigan 29 7 7 15 27:57 28
16. West Ham 29 6 9 14 37:49 27
17. Wolves 29 7 6 16 23:47 27
18. Burnley 30 6 6 18 31:63 24
19. Hull 29 5 9 15 27:61 24
20. Portsmouth 28 5 4 19 24:47 10
CHAMPIONSHIP
BARNSLEY - CRYSTAL PALACE 0-0
COVENTRY - PLYMOUTH 1-1
DONCASTER - DERBY COUNTY 2-1
IPSWICH - SCUNTHORPE UNITED 1-0
LEICESTER - CARDIFF 1-0
MIDDLESBROUGH - NEWCASTLE 2-2
PRESTON - NOTTINGHAM 3-2
READING - BRISTOL CITY 2-0
SHEFF UNITED - QPR 1-1
SWANSEA - SHEFF. WED. 0-0
WATFORD - PETERBOROUGH 0-1
WBA - BLACKPOOL 3-2
STAÐAN
Lið L U J T M St
1. Newcastle 35 21 10 4 66:26 73
2. WBA 36 20 9 7 71:40 69
3. Nott. Forest 36 18 10 8 51:30 64
4. Swansea 36 15 15 6 31:23 60
5. Leicester 35 15 12 8 43:33 57
6. Cardiff 35 15 7 13 57:44 52
7. Blackpool 36 13 11 12 53:44 50
8. Coventry 36 13 11 12 41:47 50
9. Sheff. Utd 36 13 10 13 49:48 49
10. Middlesbro 36 13 9 14 47:40 48
11. Doncaster 36 12 12 12 47:44 48
12. Preston 36 12 11 13 45:52 47
13. Barnsley 35 13 7 15 44:54 46
14. Bristol City 36 10 15 11 40:51 45
15. QPR 35 11 11 13 49:53 44
16. Reading 34 12 8 14 46:50 44
17. Ipswich 36 9 17 10 40:46 44
18. Derby 36 12 6 18 43:54 42
19. Watford 34 10 9 15 44:51 39
20. C. Palace 35 12 12 11 36:37 38
21. Sheff. Wed. 36 10 8 18 38:56 38
22. Scunthorpe 35 10 8 17 41:62 38
23. Plymouth 35 8 7 20 33:51 31
24. Peterborough 36 7 9 20 38:57 30
LEIKMAÐURINN
ENSKI BOLTINN
„Það verða alltaf einhverjir sem ef-
ast um mig. Það verða alltaf skipt-
ar skoðanir um mig sem fótbolta-
mann. Ég veit hins vegar að ég get
orðið einn af bestu leikmönnum
heims. Ég þarf bara að halda áfram
að hafa trú á því, halda mig á jörð-
inni og einblína á það að verða
betri. Ég efast ekki um að ég verði
einn af þeim bestu. Þess vegna er
ég svona rólegur,“ sagði Nicklas
Bendtner þegar hann var að brjóta
sér leið í aðallið Arsenal. Þá fékk
hann töluverða gagnrýni á sig sem
hefur fylgt honum síðan; að nýta
ekki góð færi. Sú gagnrýni fór þó
aldrei hærra en eftir leikinn gegn
Burnley þegar hann klikkaði á fjöl-
mörgum góðum marktækifærum.
Hann hefur hins vegar sýnt mikinn
karakter og látið verkin tala.
Sló í gegn með
Birmingham
Nicklas Bendtner kom til Norður-
Lundúna þegar hann var aðeins
16 ára og var í fjóra daga á reynslu.
Arsenal-menn voru hrifnir af því
sem þeir sáu og sömdu við pilt.
Hann spilaði með unglingaliðinu
til að byrja með og myndaði sterkt
framherjapar með Arturo Lupoli.
Fyrsti leikurinn hans með aðallið-
inu kom gegn Sunderland í deild-
arbikarnum 2005 þegar hann hljóp
inn fyrir Quincy Owusu-Abeyie.
Bendtner var lánaður til Birm-
ingham tímabilið 2006-7 þar sem
hann skoraði 11 mörk og hjálpaði
Birmingham að komast upp í deild
þeirra bestu. Hann tryggði liðinu
þrjú stig strax í fyrsta leik þegar
hann skoraði sigurmark gegn Col-
chester. Stuðningsmenn kunnu vel
að meta framlag Danans og það
gerði Steve Bruce líka sem þá stýrði
Birmingham. „Ég hef sagt það allan
tímann að það væri erfitt að halda
Nicklas hér hjá okkur. Við munum
skoða stöðuna síðar en ég býst við
að hann fari aftur til Arsenal,“ sagði
Bruce á sínum tíma.
Mark eftir 1,8 sekúndur
Bendtner kaus að berjast fyrir sæti
sínu í sterku Arsenal-liði sem skart-
aði Robin van Persie, Eduardo og
Emmanuel Adebayor sem allir
voru fyrir framan hann í goggun-
arröðinni. Fyrsta markið hans fyr-
ir Arsenal var sögulegt. Hann hljóp
inn á fyrir Emmanuel Eboue gegn
Tottenham þegar Arsenal átti horn-
spyrnu. 1,8 sekúndu síðar var bolt-
inn kominn í netið og er það met.
Skömmu síðar fékk hann tækifæri
í byrjunarliðinu gegn Everton. Það
var ekki alveg draumabyrjun því
hann fékk rautt spjald og Arsen-
al tapaði 2-0. Vilja sumir meina að
Daninn hafi átt fyrsta markið.
Eduardo og Robin van Persie
meiddust og voru lengi frá og fékk
Bendtner að reyna sig með Ade-
bayor í framlínunni. Þeir voru eng-
ir sérstakir vinir utan vallar og þeg-
ar Tottenham rústaði Arsenal 5-1
í deildarbikarnum slógust þeir fé-
lagar. Bendtner fékk skurð á nefið.
William Gallas, fyrirliði Arsenal,
og dómarinn Howard Webb gripu
inn í en dómarinn sá ekki allt atvik-
ið. Þeir sögðu síðan báðir fyrirgefðu
og virtust vera ágætir vinir.
Eftir að Adebayor var síðan seld-
ur til Man. City rifjaði hann upp
slagsmálin. „Hann gaf mér fingur-
inn og það gerirðu ekki við sam-
herja. Hann hefur átt auðvelda
ævi - kom til Arsenal 15 ára og hef-
ur fengið að blómstra. Ég þurfti að
hafa fyrir hlutunum. Hann kom
alltaf inn í klefann í skónum sín-
um þrátt fyrir að reglur félagsins
bönnuðu slíkt. Ég talaði við hann
um þetta en hann er mikill egóisti.
Allt of mikill,“ sagði Tógó-maðurinn
meðal annars.
Bleiku skórnir
Þrátt fyrir að vera tiltölulega vel lið-
inn hjá stuðningsmönnum Arsen-
al var stór hluti sem var ekki sáttur
þegar Bendtner mætti einn góðan
veðurdag í bleikum Nike-skóm á
völlinn. Afar sjaldgæft er að menn
spili í bleikum skóm og fannst
mörgum að virðing hans fyrir Ars-
enal væri ekki næg. Eitthvað sem
Bendtner sjálfur hefur hlegið að
og segist vilja vera hjá Arsenal all-
an sinn feril. „Það eru flottir hlutir í
gangi hjá Arsenal og mér líður mjög
vel hér Þetta er staðurinn þar sem
ég vil vera. Þetta er eitthvað sérstakt
og ég vil vera hluti af því. Þetta er fé-
lag sem ég vil spila með og það hef-
ur alltaf verið þannig.“
STEFNIR Á AÐ
VERÐA SÁ BESTI
Í BLEIKUM SKÓM Eftir leikinn gegn Burnley, þar sem Danan-um Nicklas Bendtner var hreinlega fyrir-
munað að skora, hefur hann skorað fjögur mörk í tveimur leikjum og farið á kost-
um. Bendtner kom til Arsenal árið 2004 og hefur afrekað margt þrátt fyrir að vera
aðeins 22 ára. Hann hefur slegist við liðsfélaga, lifað af bílslys, verið myndaður á
nærbrókinni og gengið í gegnum markaþurrð og meiðsli.
BENEDIKT BÓAS HINRIKSSON
blaðamaður skrifar: benni@dv.is
NÚMER 52 Bendtner var áður í treyju númer
26. „Sú tala skiptir mig miklu máli persónulega.
Vonandi færir númerið mér gæfu.“
SLÓST VIÐ ADEBAYOR Nicklas
Bendtner gaf samherja sínum fingur-
inn og fékk að kenna á því.
32 LANDSLEIKIR - 11 MÖRK
Bendtner skoraði mark í fyrsta
landsleik Óla Jóh í 3-0 sigri Dana.