Lögmannablaðið - 01.10.2013, Qupperneq 4

Lögmannablaðið - 01.10.2013, Qupperneq 4
4 lögmannaBlaÐiÐ tBl 03/13 Árni HelGAson Hdl. leiðAri Fjölgun í lögmannastéttinni – góð eða slæm? Lögfræðingum og Lögmönnum á Íslandi hefur fjölgað hratt á undanförnum árum, raunar svo mjög að á Íslandi er nú orðið hærra hlutfall lögfræðinga á hvern íbúa en víðast hvar annars staðar. Í niðurstöðum könnunar sem gerð var í lok september meðal lögmanna og birt er í þessu blaði kemur þetta skýrlega fram. Þar má sjá að lögmönnum hefur fjölgað um 31% á sex árum og hlutfall lögmanna undir fertugu er hærra en áður. Þetta er í samræmi við það að fjöldi lögmanna hefur tvöfaldast á síðustu 12-15 árum. mikill meirihluti þeirra sem svara könnuninni telur þessa fjölgun hafa áhrif á stéttina en í athugasemdum með svörum settu svarendur fram ýmis konar sjónarmið um þessa þróun. flestir sem tjáðu sig töldu þetta neikvæða þróun frekar en hitt, þótt það sé ekki einhlítt og ýmsir spyrji hvaða áhyggjur þurfi að hafa af fjölguninni. miklar breytingar á stuttum tíma Breytingarnar á nokkrum árum eru gríðar legar og þær hafa ýmsar afleiðingar. T.d. hafa verið rúmlega 60 lögfræðingar á atvinnuleysisskrá að undanförnu, eitthvað sem hefði líklega verið óhugsandi þar til fyrir örfáum árum. Sama má segja um það sem víða heyrist, að tugir umsækjanda séu um hverja lausa stöðu, hvort sem er innan stjórnsýslunnar, fyrirtækja eða á lögmannsstofum. Ástæðan er einföld; laganám er ekki lengur bundið við eina lagadeild sem útskrifar 30-40 lögfræðinga á ári til að ganga inn í þau störf sem í boði eru. Þannig var fyrirkomulagið áratugum saman en með tilkomu nýrra lagadeilda hefur staðan gerbreyst á stuttum tíma til batnaðar, ekki síst fyrir lagadeild HÍ eins og fram kemur í viðtali við róbert Spanó, fyrrverandi forseta lagadeildar HÍ, í þessu blaði. Þótt fáum þætti sjálfsagt spennandi að fara aftur til þess tíma þar sem einungis var hægt að læra lögfræði á einum stað hér á landi skal ósagt látið hvort nauðsynlegt sé að halda úti starfsemi fjögurra lagadeilda til að viðhalda eðlilegri samkeppni í laganámi. En gamla ástandið kemur ekki aftur. Þótt lagadeildir kunni að sameinast síðar meir og einhver fækkun verði verða fleiri en 30-40 lögfræðingar útskrifaðir árlega. eru allir í laganámi meðvitaðir um hvað bíður? Þetta er í sjálfu sér ekki neikvætt, nema ef til vill fyrir þá sem fara í gegnum fimm ára háskólanám og fá svo ekki vinnu við hæfi og mikilvægt að þeir sem skrái sig í námið geri sér grein fyrir því að laganám er ekki lengur „embættismannaskóli“ með tryggri vinnu það sem eftir er. Því má svo velta upp hvort allir þeir sem nú eru í námi séu meðvitaðir um hve harðnandi samkeppnin sé. Viðbrögð geta verið misráðin Ýmsar hugmyndir hafa þó heyrst um hvernig eigi að bregðast við þessari þróun, t.d. með því að minnka framboð á laganámi eða setja stífari inntökuskilyrði í laganám. Það verður þó að setja í samhengi við markmiðið – verða nemendur á endanum betri lögmenn á að taka inntökupróf í lagadeild sem reynir á almenna þekkingu nemenda? Það er ekki hægt að ákvarða fyrirfram hve margir lögmenn eða lögfræðingar eigi að vera hér á landi sé eða hvaða nám eigi að vera í boði hvar. Þá ákvörðun hlýtur fólk á endanum að fá að taka sjálft. Aðrir nefna að setja verði þrengri skilyrði fyrir því að veitt séu lögmannsréttindi, s.s að áskilja tiltekinn tíma í vinnu áður. Slíkar aðgerðir myndu þó í reynd litlu breyta, annað en að lengja þann tíma þar til hver og einn getur farið að starfa sem lögmaður. Því má svo velta fyrir sér hversu æskileg slík „skylduvinna“ væri og sjálfsagt margir sem þyrftu að bjóða starfskrafta sína ódýrt til þess að geta klárað þennan tilskilda tíma. Því er stundum haldið á lofti að fjölgun í stéttinni meðal yngri lögmanna sé á kostnað gæðanna. Þótt óumdeilt sé að reynsla og þroski séu kostir í fari lögmanna er ekkert sem bendir til þess, t.d. í málum fyrir úrskurðarnefnd lögmanna, að mistök eða vanræksla hjá yngri lögmönnum séu algengari en áður. og aukin skilyrði fyrir því að fá lögmannsréttindi eru ekki til þess fallin að búa til betri lögmenn. Þar skipta aðrir þættir máli og staðreyndin er sú að sá sem hefur ekkert til brunns að bera, fær á endanum lítið sem ekkert að gera. Aðalatriðið er að laganámið sé gott og að þeir sem hyggi á laganám geri sér grein fyrir því hvað farið er út í.

x

Lögmannablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.