Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2012, Síða 4
Hirða ekki allan fisk
n Forstjóri Hafró segir brottkast afla stundum nauðsynlegt
O
kkur þykir bagalegt ef við erum
að nauðsynjalausu að láta fisk
fara frá borði, og það er nátt-
úrulega hlutur sem við tökum
stíft á innanhúss. En ég geri ráð fyrir
því að það séu einhverjar gildar ástæð-
ur fyrir þessu, segir Jóhann Sigurjóns-
son, forstjóri Hafrannsóknastofnunar.
DV.is sagði frá því á miðvikudag að
mikið brottkast hafi verið á afla í rann-
sóknarleiðangri skipsins Bjarna Sæ-
mundssonar 2. október síðastliðinn.
„Það var um það bil helmingnum af
aflanum af tveimur holum kastað fyr-
ir borð, eða tæplega tveimur tonn-
um,“ sagði Björn Sverrisson, nemandi
í sjávarútvegsfræðum sem fór þann
túrinn með skipinu.
Jóhann segir að tvennt þurfi að
hafa í huga varðandi slíkt brottkast.
„Við þurfum náttúrulega að lágmarka
þetta, en það geta bæði orðið í slys í
þessum efnum og eins eru takmark-
aðir möguleikar til þess að hirða allan
fisk. Þessi rannsóknarskip eru ekki
hönnuð til vinnslu sjávarafurða al-
mennt, þau eru hönnuð til rannsókna.
Það er náttúrulega ekki fræðilegur
möguleiki að við getum tekið allan
hirðanlegan afla um borð. Þetta er
hlutur sem við getum ekki komið í veg
fyrir, ef við eigum að vera að stunda
okkar rannsóknir.“
Jóhann segir að hjá Hafró sé nú
unnið að því að bæta aðstöðu í rann-
sóknarskipunum. „Við höfum verið að
bæta aðstöðu undanfarið, til dæmis í
Árna Friðrikssyni, núna í byrjun ársins
settum við nýjan krapabúnað um
borð í skipið, og við höfum verið með
tæknifræðing undanfarna mánuði að
skoða hvað við getum gert til þess að
bæta okkar möguleika til þess að fara
vel með afla sem kemur um borð.
Þannig að okkur finnst mikil vægt að
gera þetta eins vel og við getum. Við
eigum auðvitað að vanda okkur.“ n
simon@dv.is
4 Fréttir 12.–14. október 2012 Helgarblað
n Innanhúsdeilur og endurskipulagning urðu til þess að Sigrún sagði upp
T
aka átti dagskrárstjórn sjón-
varpsins af Sigrúnu Stefáns-
dóttir, fyrrverandi dagskrár-
stjóra RÚV, og ráða annan
dagskrárstjóra í hennar stað.
Þá var mikil óánægja meðal yfir-
stjórnar RÚV með að Sigrún hafi
látið starfsmenn Rásar 1 vita af fyrir-
huguðum uppsögnum vegna frekari
niðurskurðar í stofnuninni. Heim-
ildarmönnum DV ber saman um að
þetta sé ástæða fyrirvaralítils brott-
hvarfs Sigrúnar úr stóli dagskrár-
stjóra á mánudag. Skiptar skoðanir
eru á meðal starfsmanna RÚV en
auglýst verður eftir eftirmanni Sig-
rúnar á næstunni.
Staða Sigrúnar veiktist
Sigrún tók við dagskrárstjórastöð-
unni árið 2005 en hún hefur starfað
við stofnunina með hléum frá 1975.
Sigrún sagði sjálf upp en heimildar-
menn DV segja að þrengt hafi verið
að henni á síðustu vikum og mánuð-
um. Staða Sigrúnar hafði á síðustu
vikum veikst talsvert og fékk hún
veður af því að taka ætti af henni völd
yfir dagskrá sjónvarpsins á mánudag,
sama dag og hún sagði starfi sínu
lausu. Stuðningur við hana með-
al starfsmanna útvarpsstöðva RÚV
fór einnig minnkandi á sama tíma
en starfsmenn tóku sig saman í kjöl-
far fundar með henni þar sem hún
sagði frá fyrirhuguðum uppsögnum
og sendu bréf á stjórn og stjórnend-
ur RÚV.
Sigrún vildi ekki tjá sig um mál-
ið þegar blaðamaður leitaði eftir
hennar viðbrögðum. „Nei, ég er
ekki tilbúin til þess, ekki á þessari
stundu,“ sagði hún. Sigrún var ekki
tilbúin að staðfesta að til hafi staðið
að færa hana úr stóli dagskrárstjóra.
Ekki liggur fyrir hvað Sigrún ætlar
að taka sér fyrir hendur en hún hef-
ur starfað í kringum fjölmiðla með
hléum síðastliðna áratugi.
Ætlar að sækja um
Margrét Marteinsdóttir, starfandi
dagskrárstjóri útvarpsstöðva RÚV,
hefur tilkynnt samstarfsmönnum
sínum að hún sækist eftir að fá starf
Sigrúnar þegar það verður auglýst
laust til umsóknar. Hún var skip-
uð ásamt Bjarna Guðmundssyni,
framkvæmdastjóra sjónvarpsins,
tímabundið í starf Sigrúnar á meðan
unnið er að því að finna eftirmann
hennar til frambúðar. Margrét hef-
ur hingað til starfað sem yfirmaður
dægurmáladeildar fréttastofu RÚV.
Í auglýsingu eftir nýjum dag-
skrárstjóra sem birtist í Morgun-
blaðinu á fimmtudag er ljóst að
tveir einstaklingar verða ráðnir
í starfið sem Sigrún sinnti áður.
Umsóknarfrestur er til 25. október
næstkomandi og eru konur sérstak-
lega hvattar til að sækja um starf-
ið. Mikill niðurskurður hefur verið
á RÚV frá hruni og er ljóst að enn
þarf að sýna mikið aðhald í rekstrin-
um. Breytingar á umgjörð fyrirtæk-
isins eru hins vegar yfirvofandi og
hefur Katrín Jakobsdóttir, mennta-
og menningarmálaráðherra, kynnt
frumvarp sem gerir ráð fyrir tals-
verðum breytingum á rekstrarfyrir-
komulagi RÚV. n
Ætluðu að taka af
henni sjónvarpið
Fer annað
Sigrún sagði
starfi sínu hjá
RÚV lausu á
mánudag en ekki
liggur fyrir hvað
hún hyggst taka
sér fyrir hendur.
Aðalsteinn Kjartansson
blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is
„Nei,
ég er
ekki tilbúin
til þess, ekki
á þessari
stundu
Sigrún Stefánsdóttir
beðin um viðbrögð
Fékk járnflís
í augað
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur
dæmt Tryggingarmiðstöðina til að
greiða karlmanni tæpar 1.200 þús-
und krónur vegna slyss sem hann
varð fyrir í ágúst 2007. Maðurinn
slasaðist við störf sín hjá Eininga-
verksmiðjunni Borg ehf. þegar
járnflís skaust í auga hans þegar
hann var að saga í sundur svo-
nefnt sakkaborð í borðsög. Maður-
inn var ekki með hlífðargleraugu
þegar atvikið varð. Eftir slysið var
hann lagður inn á augnskurðdeild
þar sem hann gekkst undir bráða-
aðgerð þar sem læknar fjarlægðu
meðal annars blóð í glerhlaupi,
augasteinninn var einnig tekinn,
málmflís sem lá í augnbotni og
hornhimnan saumuð.
Maðurinn fór síðar í augn-
aðgerð í Póllandi þar sem linsa var
sett í vinstra augað í stað auga-
steins. Varanleg örorka mannsins
var metin 10% eftir slysið. Mað-
urinn fór fram á að fá rúmar 3,7
milljónir í bætur en héraðsdóm-
ur komst sem fyrr segir að þeirri
niðurstöðu að Tryggingamiðstöð-
in ætti að greiða honum tæpar 1,2
milljónir króna.
Bregðast við
kröfu ljósmyndara
Forsvarsmenn sjónvarpsþáttanna
„Ert þú ljósmyndarinn?“ sem
sýndur verður á Skjá Einum hafa
ákveðið að
breyta nafninu
á þættinum
í kjölfar mik-
illar óánægju
atvinnuljós-
myndara.
Ljósmyndari
er lögvernd-
að starfsheiti
og gagnrýndu menntaðir ljós-
myndarar að í þættinum væri talað
um áhugaljósmyndara sem ljós-
myndara. „Ljósmyndun er lög-
verndað fag og það að kalla þann
Ljósmyndara sem ekki hefur til
þess réttindi samræmist hvorki lög-
um, né heldur gildum þáttanna,“
segir í tilkynningu sem Sigmar Vil-
hjálmsson, einn eigenda Stórveld-
isins, framleiðenda þáttanna, sendi
fjölmiðlum. Þar segir að nýja nafn
þeirra verði „Ljósmyndakeppni Ís-
lands“. „Með nafnabreytingunni
er Stórveldið að styðja baráttu ljós-
myndara fyrir lögvernd á faginu,
enda er mikilvægt að standa vörð
um fagmenntaðar starfsgreinar hér
á landi.“
Bagalegt „Þessi rannsóknarskip eru ekki
hönnuð til vinnslu sjávarafurða almennt,
þau eru hönnuð til rannsókna,“ segir Jóhann
Sigurjónsson, forstjóri Hafró.