Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2012, Side 6
Vilja eitt stórt sveitarfélag
n Íbúarnir yrðu ríflega sjötíu þúsund talsins
F
ulltrúum í bæjarstjórnum Kópa-
vogs og Hafnarfjarðar líst ágætlega
á þá hugmynd að sameina sveitar-
félögin sunnan höfuðborgarinnar
í eitt stórt sveitarfélag. Bæjarráð Kópa-
vogs samþykkti að fela bæjarstjóra og
fulltrúa minnihlutans í bæjarráðinu að
leita eftir viðræðum við Hafnarfjörð,
Garðabæ og Álftanes um sameiningu,
að tillögu þeirra Ómars Stefánssonar,
bæjarfulltrúa Framsóknarflokksins, og
Ólafs Þórs Gunnarssonar, bæjarfulltrúa
Vinstri grænna. Ef af sameiningu yrði
myndi nýja sveitarfélagið hafa rúmlega
70 þúsund íbúa. Það myndi þýða að um
22 prósent íbúa landsins yrðu í sveitar-
félaginu.
Hugmyndir um sameiningu sveitar-
félaganna á höfuðborgarsvæðinu eru
ekki nýjar af nálinni. Sameiningarhug-
myndir koma reglulega upp en þær
hugmyndir hafa ekki orðið langlífar.
Nú liggja þó fyrir hugmyndir um sam-
einingu Garðabæjar og Álftaness og
samhliða ráðgefandi þjóðaratkvæða-
greiðslu um stjórnarskrárbreytingar
verður kosið um sameiningu þessara
tveggja sveitarfélaga. „Ég veit ekki al-
veg af hvaða hvötum þessi tillaga kem-
ur,“ segir Gunnar Einarsson, bæjar-
stjóri Garðabæjar, aðspurður hvernig
honum litist á tillögu bæjarráðs Kópa-
vogs. „Mér finnst hún vera þess eðlis að
menn séu í einhverri tilvistarkreppu og
að ef Garðabær færi í svona viðræður
væri það algjört skilyrði að nýtt sveitar-
félag héti þá Garðabær.“
Gunnar segir að ekki sé hægt að líta
tillögu Kópavogsbæjar alvarlegum aug-
um. „Mín skoðun er sú að það er ekki
hægt að taka þetta alvarlega. Við erum
í miðjum sameiningarviðræðum við
Álftanes og ég sé ekki endilega hag-
kvæmni í því að búa til 70 þúsund
manna sveitarfélag og get rökstutt það
með mörgum fræðilegum rökum,“ seg-
ir hann. Gunnar nefnir meðal annars
að sameining kæmi niður á lýðræði,
ánægju íbúa auk þess sem hann segir
þá stærð af sveitarfélagi sem til yrði ekki
vera hagkvæma einingu. n
6 Fréttir 12.–14. október 2012 Helgarblað
F
jölmiðlafyrirtækið 365 endur-
fjármagnaði tæplega 4,6 millj-
arða króna skuldir sínar við
Landsbankann í fyrra. Um
var að ræða skuldbreytingu á
langtímalánum félagsins sem með-
al annars fól í sér að félagið greiddi
250 milljónir króna inn á lánin. Þetta
kemur fram í ársreikningi 365 fyrir
árið 2011 sem skilað var inn til árs-
reikningaskrár ríkisskattstjóra þann
4. október síðastliðinn.
Í ársreikningnum kemur fram
að Ingibjörg Pálmadóttir, eiginkona
Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, eigi
tæplega 90 prósent hlutafjár í 365 í
gegnum félögin Moon Capital, sem
skráð er í Lúxemborg, IP Studium og
ML 102. ehf.
Standa við sitt
Orðrétt segir um endurfjármögnun-
ina í ársreikningi félagsins: „Þann
13. maí 2011 gerði félagið samning
við Landsbankann hf. um skuld-
breytingu á langtímalánum þess og
voru 250 millj. kr. greiddar inn á höf-
uðstól lánsins. Eftirstöðvum var síð-
an skipt upp í tvö lán, afborgunarlán
til 42 mánaða og síðan eingreiðslu-
lán með gjalddaga 6. ágúst 2012 en
möguleika á framlengingu um 1 að
ákveðnum skilyrðum uppfylltum.
Afborgunarlánið er með föstum árs-
fjórðungslegum afborgunum frá
ágúst 2011 og með lokagjaldaga í
nóvember 2014.“
Samkvæmt heimildum DV hefur
365 staðið mjög vel við þessa skil-
mála um afborganir af lánum sínum
gagnvart Landsbankanum. DV hefur
ekki heyrt annað um viðskiptasam-
band 365 og Landsbankans á síðustu
mánuðum en bankinn sé ánægður
með það. Meðal annars út af þessu
hefur bankinn ekki haft puttana í
þreifingum um sölu 365 sem átt hafa
sér stað á árinu, líkt og DV hefur
greint frá. Ef þetta viðskiptasamband
verður óbreytt og eigendur 365 halda
áfram að standa við gerða samn-
inga við Landsbankann mun salan
á félaginu því alfarið vera á borði
eigenda þess ef til hennar kemur.
Rúmlega 9 milljarða tekjur
Fjölmiðlafyrirtækið skilaði 250
milljóna króna hagnaði í fyrra. Eig-
ið fé félagsins nemur rúmum 2.250
milljónum króna. Tekjur félagsins
námu rúmlega 9 milljörðum króna
en höfðu verið 8,5 milljarðar árið
áður. Tekjuaukning félagsins á milli
áranna 2010 og 2011 nam því um
hálfum milljarði króna. Tæplega
6,2 milljarðar króna fóru í kostn-
að við selda þjónustu í fyrra, meðal
annars kaup og vinnslu á dagskrár-
efni. Þá nam rekstrarkostnaður
fyrir tækisins tæplega 2,3 milljörð-
um króna.
Í ársreikningnum eru eignir fé-
lagsins metnar á rúmlega 9,8 millj-
arða króna, þar af er viðskiptavild
upp á rúmlega 5,9 milljarða króna.
Á móti þessum eignum eru heildar-
skuldir upp á tæplega 7,6 milljarða
króna. n
Endurfjármögnuðu 4,6
milljarða skuldir 365
n Fjölmiðlafyrirtækið 365 var með tekjur upp á 9 milljarða í fyrra
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
„Þann 13. maí
2011 gerði fé-
lagið samning við
Landsbankann hf. um
skuldbreytingu á lang-
tímalánum þess.
Níu milljarða tekjur Fjölmiðlafyrirtækið 365
var með tekjur upp á rúmlega níu milljarða króna
í fyrra. Félagið endurfjármagnaði skuldir sínar og
stendur í skilum við Landsbankann samkvæmt
heimildum DV. 365 er í eigu Ingibjargar Pálma-
dóttur, eiginkonu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar.
Hvað með nafnið? Í tillögu Ómars og
Ólafs er því velt upp að nýja sveitarfélagið
gæti heitið Heiðmörk.
Lýður segist
vera saklaus
Lýður Guðmundsson og lögmaður-
inn Bjarnfreður H. Ólafsson mættu
í Héraðsdóm Reykjavíkur til að vera
viðstaddir fyrirtöku ákæru á hend-
ur þeim á fimmtudag. Þar voru þeir
beðnir um að taka afstöðu til ákæru
sérstaks saksóknara og héldu þeir
báðir fram sakleysi sínu þegar mál-
ið var þingfest. Lýður er ákærður
fyrir stórfellt brot á hlutafélagalög-
um og þeir báðir ákærðir fyrir að
skýra vísvitandi rangt og villandi frá
hækkun á hlutafé Exista hf., sem var
samkvæmt ákæru liður í fléttu til að
tryggja Lýð og bróður hans Ágústi
yfirráð yfir Exista. Lýður lét hafa það
eftir sér við fjölmiðla að þingfestingu
lokinni að réttarhöldin myndu leiða
sannleikann í ljós og þar yrðu lagðar
fram sannanir um að engum blekk-
ingum hefði verið beitt.
Össur hafnar
spádómi Guðna
Össur Skarphéðinsson utanríkisráð-
herra hafnar því að vera leikstjórinn
á bak við Bjarta framtíð og brott-
hvarf Guðmundar Steingrímssonar,
leiðtoga flokksins, úr Framsókn og
Róberts Marshall þingmanns úr
Samfylkingunni. Þessu hélt Guðni
fram í aðsendri grein í Morgunblað-
inu fyrir um ári. „Guðni er draum-
spakur maður. Hann hefði betur í
bláupphafi fullorðinsáranna lagt
það fyrir sig að gerast spámið-
ill. Þarna hafði hann sem oftar rétt
fyrir sér nema að einu leyti. Hann
sá út undan sér í myrkviðum hug-
ans mann sveifla tónsprotanum og
sýndist það vera ég. Það er vitaskuld
rangt,“ segir Össur aðspurður um
spá Guðna. „Það undirstrikar hins
vegar að á þeim tíma sem Guðni átti
drauminn var hann með Samfylk-
inguna á heilanum og taldi hana
ofsækja sig og Framsóknarflokk-
inn. Það er vitaskuld rangt því þar á
Guðni vinum að fagna.“