Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2012, Qupperneq 21
Hefndu sín á
14 ára barni
P
akistanska stúlkan Malala
Yousafzai vakti heims
athygli ellefu ára að aldri
þegar hún hóf dagbókar
skrif fyrir breska útvarpið
BBC. Í pistlum sínum fjallaði hún
meðal annars um kúgun talibana.
Þeir hefndu sín í byrjun vikunnar
þegar þeir reyndu að myrða stúlk
una, sem nú er 14 ára. Fregnir bár
ust þess efnis að hún hefði orðið
skotmark reiðra talibana sem
hefðu ætlað að ráða hana af dög
um á leið heim úr skólanum, fyrir
skrif sín. Hún lifði árásina af og á
miðvikudag bárust fregnir af því
að læknum hefði með skurðaðgerð
tekist að fjarlægja byssukúluna úr
höfði hennar.
Forseti Pakistans fordæmdi
árásina strax í kjölfar hennar.
Hann sagði að stjórnvöld myndu
áfram styðja menntun stúlkna og
berjast gegn íslömskum ódæðis
mönnum.
Tvær kúlur í höfuðið?
Tvennum sögum fer af því hvernig
árásin var framin. Talsmaður lög
reglunnar sagði við BBC að byssu
maður hefði hafið skotárás á stúlk
ur sem voru í þann mund að stíga
upp í skólarútu, en önnur stúlka
slasaðist í árásinni. Þá er önnur frá
sögn af atburðinum á þann veg að
byssumaðurinn hefði stöðvað rút
una, stigið um borð, spurt um stúlk
una og síðan hafið skothríð. Því er af
sumum fréttamiðlum haldið fram að
hún hafi fengið í sig tvær byssukúl
ur; báðar í höfuðið, en það hefur ekki
fengist staðfest þegar þetta er skrifað.
Læknar sögðu eftir aðgerðina að
líðan stúlkunnar væri stöðug en á
svipuðum tíma bárust fréttir af því að
íslamskir vígamenn hefðu strax hót
að að gerð yrði önnur tilraun til að
myrða stúlkuna.
Tilnefnd og verðlaunuð fyrir
hugrekki
Í pistlum sínum í BBC, sem hún hóf
að skrifa eftir að talibanar tóku yfir
Swatdalinn, fjallaði Malala um þær
reglur sem talibanar settu. Þeir komu
á íslömskum lögum, lokuðu skólum
fyrir stúlkur og bönnuðu fólki meðal
annars að hlusta á tónlist. Hún gerði
grein fyrir þeim þjáningum sem börn
og aðrir borgarar máttu þola á með
an talibanar réðu ríkjum. Hún skrif
aði undir dulnefni og kallaði sig Gul
Makai. Rétt nafn hennar varð opin
bert eftir að talibanar voru hraktir úr
dalnum og hún varð að hetju í augum
margra Pakistana fyrir hugrekki sitt og
dirfsku.
Þrátt fyrir ungan aldur hefur Malala
talað ötullega fyrir því að börn hljóti
menntun og að það séu mannréttindi
þeirra. Fyrir framgöngu sína hefur
hún hlotið verðlaun í Pakistan og hef
ur verið tilnefnd til alþjóðlegra friðar
verðlauna barna.
Vill verða stjórnmálamaður
Í einni færslunni fjallar hún um þær
fyrirskipanir talibana að banna stúlk
um að mennta sig. „Við ákváðum að
leika okkur aðeins lengur á leikvellin
um eftir að skólinn var búinn í dag –
úr því að þetta var síðasti dagurinn. Ég
er viss um að skólinn verður opnaður
aftur einn daginn en í dag fannst mér
eins og ég myndi ekki snúa aftur.“
Hún hefur sagt að hún vilji læra
lögfræði og fást við stjórnmál þegar
hún verður eldri. „Mig dreymir um að
búa í landi þar sem menntun verður
almenn.“
Forsætisráðherrann Raja Pervez
Ashraf hefur lýst yfir eindregnum
stuðningi við stúlkuna og fjölskyldu
hennar. „Ég lít á Malala sem dóttur
mína – sem dóttur okkar allra. Við
verðum að fordæma svona verknað
og stöðva þetta. Ef þessi viðhorf fá
að þrífast, hvaða stúlkur verða þá
óhultar,“ sagði hann í yfirlýsingu í
kjölfar atburðarins.
Talibanar voru hraktir úr Swat
dalnum af hernum árið 2009 eftir að
hafa drottnað þar í um tvö ár. Í kjöl
farið hefur að mestu verið friður á
svæðinu. Þúsundir íbúa, sem flúðu
ógnarstjórn talibana, hafa snúið
aftur til síns heima. n
Helgarblað 12.–14. október 2012
Baldur Guðmundsson
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
n Talibanar reyndu að myrða unga þjóðhetju
Gagnrýndi talibana Malala stefnir að ferli í stjórnmálum.
Lifði af
skotárás
Læknum tókst
að fjarlægja
byssukúlu úr
höfði Malala.
Erlent 21
„Mig
dreym-
ir um að búa í
landi þar sem
menntun verð-
ur almenn