Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2012, Page 54

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2012, Page 54
Jedi- M ynd af Jóni Gnarr íklæddum jedi-búningi á friðarverðlauna- afhendingu LennonOno var birt á fjölda gamansíða um allan heim. Á einni þeirra, 9gag.com, var fjöldi athugasemda. Margir vildu koma til Íslands, einn sagði að nafnið Jón Gnarr hljómaði eins og nafn sanns jedi-riddara og einn skrifaði einfald- lega orðið: „Happened!“ ótal sinnum. Margir virðast ná gríninu og nokkrir segja: „Mayor the force be with you.“ Nokkrir koma af fjöllum og segjast illa skilja uppátækið. Athygli vekur að íslenskur kynn- ingaraðili myndarinnar um Jón Gnarr auglýsir heimildamynd um borgar- stjórann til sölu í athugasemd á síð- unni. „Ef að þú vilt sjá æðislega heim- ildamynd um Jón Gnarr og hans ótrúlega kjánalegu kosninga- herferð til borgarstjóra, þá getur þú keypt hana hér.“ Með fylgir slóð í sölusíðuna Amazon. kristjana@dv.is 54 Fólk 12.–14. október 2012 Helgarblað Andri Freyr hræddur við Gunn-illu Fékk þetta skrítna bréf í pósti, varð hálf hræddur! “ sagði sjón-varpsstjarnan viðkunnanlega Andri Freyr Viðarsson um aðdá- endapóst sem honum barst í vik- unni. Andri Freyr birti bréfið á Face- book-síðu sinni. Í því stendur fátt en kona að nafni Gunilla segist einfald- lega hafa séð hann í sjónvarpinu og ákveðið að senda honum línu. Hon- um leist hins vegar ekkert á blik- una og fannst uppsetning bréfsins skuggaleg. „Það sem hræðir mig er hvernig þetta er sett upp, svo er ég líka mikið að horfa á Brúna þessa dagana. Hún Gunnilla eða Gunn- illa kemur sér beint að efninu eins og sannur glæpon!“ Mikið að horfa á Brúna Það hræðir Andra Frey mest hvernig bréfið er sett upp. n Gunn-illa kemur sér beint að efninu SStjörnulögmaðurinn Sveinn Andri Sveins-son birti mynd af syni sínum og Kristrún-ar Aspar Barkardóttur á fésbókarsíðu sinni í vikunni undir textanum: „Ein af ráðgátum lífsins er hvernig mér tókst að eignast svona fallegan son?“ Fjöl- margir vina Sveins Andra snéru þessu upp í grín honum í óhag. Einn benti honum til að mynda á að menn byggju ekki til börn með andlitinu. Annar sagði að konurnar í lífi hans hefðu nú eflaust átt einhvern þátt í þessu, enda ætti hann stór- glæsileg börn. Kristrún Ösp sló þó í gegn með sinni athugasemd, sem fjölmörgum lík- aði við: „Já þetta er ráðgáta, ég hélt að góðir hlutir gerðust hægt … en ekki í þessu tilviki, tók aðeins örfá- ar mínútur … max 2.“ Þrátt fyrir að hún skyti harkalega á lög- manninn með þessari athugasemd svaraði hann þó ekki strax fyrir sig í athugasemdakerfinu. Sveinn Andri tók sér dá- góðan tíma í að hugsa hnyttið mótsvar við föstu skoti Kristrún- ar. Um sólarhring síðar kom loks athugasemd frá hon- um: „ég hélt að ég hefði verið búinn að kenna þér á klukku – þú verður að muna að litli vísirinn sýn- ir klukkustundir en ekki mínútur! :)“ Einn vinur sagði, eftir að lögmaðurinn hafði ritað sitt svar, að athugasemd Kristrúnar hefði einfaldlega verið of góð til að hægt væri að svara henni svona daginn eftir. „Þetta er ráðgáta“ n Skýtur fast á Svein Andra n „Mayor the force be with you“ borgarstjórinn í grínpressunni Vakti lukku Jón Gnarr vakti lukku og forvitni víða um heim með uppátæki sínu. M y n d A r n o ld Fast skotið Kristrún Ösp skaut fast á Svein Andra á fésbókar- síðu hans. Hann reyndi að koma með mótsvar daginn eftir. É g er ekki sammála því að sjón- varpskonum á Íslandi sé gefinn afsláttur af hæfni til að fá rétta útlitið,“ segir fréttakonan Telma L. Tómasson en Hanna Björg Vilhjálmsdóttir, kennari í kynjafræð- um, sagði í DV í vikunni að hennar til- finning væri sú að konur í sjónvarpi þurfi að vera hæfari en karlmenn auk þess að hafa útlitið og að stund- um fyndist henni jafnvel afsláttur gef- inn á hæfni fyrir útlit. „Hafi það ver- ið gert hefur það fólk ekki ílengst í starfi, því frétta- og fjölmiðlaum- hverfið er kröfu harður húsbóndi. Þar endist enginn nema hann hafi bein í nefinu og hæfileika til að standa sig. Þær konur sem ég hef unnið með eru upp til hópa eiturklárar stelpur. Sum- ar hafa haft útlitið með sér að auki, en það er aukaatriði. Stundum gleymist líka í umræðunni að konur sem líta vel út geti jafnframt verið klárar. Mér finnst mikilvægast að við fáum að vera við sjálf og það hefur ekkert með það að gera hvort við séum karlar eða konur, ung eða eldri. Mikilvægast er að hver og einn fái að nota hæfileika sína. Ég hef fengið athugasemdir varð- andi útlit mitt en það snýst aðallega um smámuni eins og hvar ég láti klippa mig og hvaða varalit ég noti. Slíkt var byrjað löngu áður en ég fór í sjónvarp. Fréttamennska á ekki að snúast um útlit fréttamannsins, held- ur innihald fréttanna,“ segir Telma og bætir við að fólk verði að horfa gagn- rýnum augum á auglýsingar og um- fjöllun fjölmiðla um útlit. „Útlitsdýrkun fer í taugarnar á mér. Við megum ekki láta plata okkur og láta auglýsingar æða með okkur eitthvert sem við viljum ekki fara. Við erum ólík frá náttúrunnar hendi, engu skiptir hvort við erum gramm- inu þyngri eða léttari. Varðandi útlit skiptir það eitt mestu máli að hugsa um almennt heilbrigði, hreyfa sig og borða hollan mat,“ segir Telma og bætir við að fjölbreytileiki sé jákvæð- ur. „Við verðum að vera alls konar.“ Fjölmiðlakonurnar Margrét Erla Maack og Sigríður Arnardótt- ir hafa báðar sagt frá kröfum tengd- um aldri og útliti sem þær telja gerð- ar til kvenna í sjónvarpi. Aðspurð segist Telma ekki líta á hækkandi aldur sem þröskuld. „Maður öðl- ast meiri reynslu eftir því sem mað- ur verður eldri og í fréttamennsku er mjög mikilvægt að öðlast bæði tengsl og reynslu. Ég finn ekki fyrir kröfu um að vera unglegri og ég myndi ekki láta lýtalækni lappa upp á mig. Hver og einn þarf reyndar að taka ákvörðun þar um og ég er með öllu fordóma- laus gagnvart konum og körlum sem sjá sig knúin til að fara í aðgerð vegna alvarlegra lýta, meðfæddra, vegna slysa eða annars. Mér þykir hins vegar of vænt um sjálfa mig eins og ég er og af hverju í ósköpunum ætti ég þá að vilja annað útlit? Fyrir mér snýst þetta um að vera sterkur karakter, geta horft í gegnum auglýsingaskrumið og elska sjálfan sig eins maður er.“ n n Telma segir að konur í sjónvarpi fá engan afslátt „Útlitsdýrkun fer í taugarnar á mér“ Vill alls konar fólk Telma vill að fólk horfi gagnrýnum augum á auglýsingar og umfjöllun fjölmiðla um útlit.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.