Úr þjóðarbúskapnum - 01.06.1962, Page 6
ÚR ÞJÓÐARBÚSKAPNUM
1955 er að finna í marz-hefti ritsins 1956.
Jafnhliða því að þessar frumáætlanir voru
gerðar, hófst vinna við ýmsar sérrannsóknir,
afmörkuð svæði þjóðhagsreikningagerðarinnar.
Allar hafa þessar sérrannsóknir verið miðaðar
við það, að þegar hægt væri á sínum tíma að
fella þær í eina heild, lægju fyrir upplýsingar
frá árinu 1945 og fram úr. Sérathuganir þessar
eru um verðmæti skipaflotans, vélvæðingu
iðnaðar og iðju, byggingarframkvæmdir, verð-
lagsþróunina, heildarfjármunamyndun, búskap
ríkis og sveitarfélaga, þróun erlendra skulda,
þjóðarauðinn og afskriftir hans og um neyzlu
einstaklinga á vörum og þjónustu. Eftir því,
sem verkinu hefur miðað áfram, hafa þær þýð-
ingarmestu þeirra verið birtar í þessu riti. All-
ar þessar sérrannsóknir, nema rannsóknin á
neyzlu einstaklinga á vörum og þjónustu, ná í
dag til alls tímabilsins að árinu 1960 með-
töldu. Rannsóknin um neyzlu einstaklinga á
vörum og þjónustu hefur að því leyti sérstöðu,
að aðeins fjögur ár, árin 1957 til 1960 hafa
verið tekin til athugunar. Með tilliti til þeirra
örðugleika sem áætlunargerð á þessu sviði
hagkerfisins er liáð, þykir ósennilegt að reynt
verði að gera áætlanir um það svið fyrir liðin
ár. Fyrir tímabilið 1945—1956 hefur því neyzla
einstaklinga verið áætluð óbeint sem afgangs-
stærð.
Framkvæmdabankinn hefur ekki síðan 1956,
þar til nú, birt töflur eða greinargerðir um
heildarstærðir þjóðhagsreikninganna í riti sínu
„Úr þjóðarbúskapnum", enda voru þær grófu
vinnuaðferðir, er þá voru notaðar við áætlun-
argerðina, algerlega ófullnægjandi. Þó var í
9. hefti ritsins, (des. 1960) birt grein Árna Vil-
hjálmssonar: „Þjóðhagsreikningatölur og aðr-
ar tölur um hagþróun áranna 1948—1958“.
Þar var að finna áætlun um ráðstöfunarfé
þjóðarinnar á grundvelli séráætlana um einka-
neyzlu, samneyzlu (opinbera neyzlu), fjár-
munamyndun og birgðabreytingar. Tölur
þessar, er voru að mestu unnar úr gögnum
Framkvæmdabankans, voru sniðnar sérstak-
lega að gerð og prófun líkingakerfis fyrir
þjóðarbúskapinn.
Þótt Framkvæmdabankinn hafi þannig ekki
um langt skeið birt samfelldar töflur um þjóð-
liagsreikningastærðir í riti sínu, með þeim
undantekningum, sem hér eru nefndar, hefur
hann látið innlendum og erlendum aðilum í
té gögn um þessi mál, eftir því sem óskað
hefur verið, og eftir því sem úrvinnsla frum-
gagna hefur á hverjum tíma gert kleift. Bank-
inn hefur unnið mörg verkefni á sviðum tengd-
um þjóðhagsreikningagerð, fyrir sjónarvöld
og þingnefndir og erlendis hafa áætlanir bank-
ans um helztu þjóðhagsreikningastærðir verið
birtar árlega í „Yearbook of National Accounts
Statistics”, sem sameinuðu þjóðirnar gefa út
og í „OEEC General Statistics Bulletin“. Enn-
fremur hefur bankinn séð um skýrslugerð varð-
andi þjóðhagsreikningastærðir til Efnahags-
samvinnustofnunar Evrópu, Alþjóðabankans,
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og annarra alþjóða-
stofnana.
Segja má, að úrvinnsla frumgagna og sam-
ræming talna sé komin á það stig, hvað við-
víkur tímabilinu 1945—1960 að mikilla breyt-
inga sé ekki að vænta við endurskoðun taln-
anna. Þær tölur, sem hér eru birtar um ýmsar
þjóðhagsreikningastærðir, eru að sjálfsögðu
ekki „réttar“ í þeim skilningi, að þeim sem
að þeim standa, finnist ekki að betur mætti
gera Hins vegar eru þær réttari en áður gerð-
ar áætlanir, og við samningu þeirra hafa verið
nýtt flest þau gögn, er aðgengileg eru miðað
við það stig, sem hagskýrslugerð íslands er á.
Þjóðhagsskýrslur áranna
1945-1960
Þessar áætlanir eru settar fram í töfluformi
hér á eftir. Til frekari glöggvunar á efninu
eru og birtar skýringarmyndir og línurit. Inni-
hald þessara taflna og skýringarmynda verð-
ur skýrt nánar í þeim köflum, sem hér fara
4