Úr þjóðarbúskapnum - 01.06.1962, Page 8
ÚR ÞJÓÐARBÚSKAPNUM
HLUTFÖLL AF VERGRI ÞJÓÐARFRAMLEIÐSLU
1946
1960
dregnar frá. Engin tilraun hefur verið gerð
hérlendis til þess að áætla þessa millistrauma
framleiðslukerfisins í lieild sinni, þótt tals-
verðar upplýsingar um þá liggi fyrir, að því
er varðar vöruframleiðslugreinarnar. í með-
fylgjandi töflum eru aðeins útflutningur og
innflutningur í ætt við slíka millistrauma kerf-
isins, svo sem nánar mun sjást af skýringum.
Það sem fer til endanlegrar notkunar, öðru
nafni verðmætaráðstöfunar, er talið í liðum
1—4 í umræddum töflum, þ. e. einkaneyzla,
samneyzla, fjármunamyndun og birgðabreyt-
ingar. Séu þessir liðir teknir saman tveir og
tveir, fæst tvískiptingin í neyzlu og fjárfest-
ingu. Hlutföll þessara stærða hafa mikla þýð-
ingu við hagstjórn og hagrannsóknir. Venju-
lega eru þessi hlutföll metin eftir virðisupp-
hæðunum á verðlagi hvers árs, svo sem hér
er gert, enda eru samtíma verðhlutföll eitt af
þeim skilyrðum, er ráða hlutfallslegri skiptingu
ráðstöfunarinnar.
Skipting ráðstöfunarinnar, ásamt öllu sam-
hengi framleiðslu- og tekjuhugtakanna í töfl-
um 1 og 2, er sýnd í mynd 1. Hverri línu í
töflunum samsvarar ákveðinn reitur í mynd-
inni. Aðeins tvö ár við upphaf og lok tíma-
bilsins, 1946 og 1960, eru tekin sem dæmi.
Munur hlutfallanna milli þessara ára virðist
eftir töflunni að dæma vera að mestu afleið-
ing þróunartilhneiginga, er hafi verið að
verki mestallt tímabilið, en að nokkru markast
munurinn af sérskilyrðum þessara ára hvors
um sig.
Einkaneijzlan liélzt fyrstu árin, til og með
1951, um 75% þjóðarframleiðslunnar með lítils
háttar sveiflum frá ári til árs. Frá árinu 1951
6