Úr þjóðarbúskapnum - 01.06.1962, Blaðsíða 14
ÚR ÞJÓÐARBÚSKAPNUM
1945 1950 1955 1960
Mijnd 4
háttum. Að svo miklu leyti, sem þetta á við
um neyzluna, gildir það jafnframt um mat
þjóðarframleiðslunnar allrar.
í töflu 4 eru vísitölumar byggðar á árinu
1945 sem 100, og eru línuritin í myndum 3 og
4 miðuð við það. Til sumra nota hentar
betur að setja síðasta árið sem 100, en
tafla 5 er að því sniðin. Línurit þjóðar-
framleiðslu er endurtekið í báðum köfl-
um myndar 3 og í mynd 4, sem fastur
viðmiðunargrundvöllur.
Þjóðarframleiðslan hækkaði stórum
skrefum fyrstu tvö árin frá 1945 til 1947,
en stóð svo í stað og hélzt nær óbreytt
öll þrjú árin 1947—1949, eða næstum
14% hærri en 1945. Frá því lækkaði fram-
leiðslan og náði lágmarki árið 1952 í
104.6 stigum, en var aðeins örlitlu hærri
árið á undan. Upp frá því jókst fram-
leiðslan aftur hröðum skrefum. Aukning-
in var örust fyrstu þrjú árin, frá 1952 til
1955, en hefur síðan verið hægari. Tvö
árin, 1957 og 1960, var framleiðslan því
sem næst alveg hin sama og árin á und-
an, jafnvel örlítið minni. Ekki hggja fyr-
ir gögn um það, hve mikinn þátt atvinnu-
aukning og aukin yfirvinna á í þessum
hækkunum, en þau má með vissu telja
veruleg árabilið 1952—1955. Jafnframt
má telja víst, að gagnstæð þróun hafi átt
sér stað frá 1949 til 1951.
Heildaraukningin yfir 15 ára bil er 64%.
Það samsvarar 3.4% aukningu á ári í jöfn-
um vexti. Aukningin frá 1952 til 1960
er aftur á móti 57% yfir 8 ára bil, er sam-
svarar 5.6% jöfnum ársvexti. Hvorug tal-
an myndi líklega vera talin sýna þá
grundvallartilhneigingu til framleiðslu-
aukningar, er vænta megi, að skili sér
að jafnaði yfir lengri tíma, þar sem ýmis
sérstök skilyrði réðu miklu um bæði
árin 1945 og 1952. Sé miðað við árið
1950, verður niðurstaðan þarna á milli,
aukningin er þá 49.5%, svarandi til 4.1%
ársvaxtar.
Með línuritum magnvísitalnanna í myndum
3 og 4 er gerður í aðalatriðum þrenns konar
samanburður framleiðsluþróunarinnar við aðr-
ar stærðir, þ. e. við aðalflokka ráðstöfunarinn-
12