Úr þjóðarbúskapnum - 01.06.1962, Qupperneq 43
Fjármunamyndunin 1945-1960
Grein þessi er rituð af Bjarna B. Jónssyni í samvinnu við Eyjólf
Björgvinsson og Harald Ellingsen, er önnuðust töfluverkið.
í flestum heftum þessa rits hafa birzt skýrsl-
ur eða upplýsingar um fjármunamyndun, ým-
ist sundurliðað heildaryfirlit eða skýrslur um
eistaka fjármunaflokka. Síðasta birting heild-
stæðra skýrslna var í 6. hefti ritsins, desember
1958, en síðan hafa komið út upplýsingar um
fjármunamyndun í greinum um þjóðarfram-
leiðslu í 9. hefti og um þjóðarauð í 10. hefti.
Þar sem ekki voru frá upphafi tök á því
að semja fullkomin uppgjör fjármunamyndun-
arinnar hafa nýjar og fyllri upplýsingar um
myndun einstakra fjármunaflokka stöðugt
verið að bætast við. Endurskoðanir eldri talna
hafa því verið tíðar. Nú er þó svo komið, að
telja má víst, að ófylltar eyður eða vöntun
upplýsinga varði svo óverulegar fjármunateg-
undir, að við það verði látið sitja fyrir umliðið
árabil. Þótti því rétt að taka nú skýrslur um
öll eftirstríðsárin fram til 1960 til endurskoð-
unar og birtingar. Hefur verið leitazt við að
áætla hvern lið með sama hætti öll árin. Hjá
því fer þó ekki, að heimildir eru að jafnaði
lélegri urn fyrri árin og miður sambærilegar
við hin síðari.
Fjármunamyndunin er flokkuð eftir þeim
atvinnugreinum, sem taka við fjármununum
til notkunar, að svo miklu leyti sem fært er.
Þessi flokkun getur þó aðeins verið mjög gróf.
Sumum tegundum fjármuna er þó ekki hægt
að skipta á móttökugreinar. Eru þær tegundir
því ýmist færðar undir viðeigandi tegundaheit-
um eða til þeirra greina, sem teljast aðalnot-
endur fjármunanna. Greinaskiptingunni er,
eftir því sem kostur er, hagað í samræmi við
alþjóðlegar reglur. Þessar reglur eru í vaxandi
mæli notaðar við atvinnugreinaskiptingu í hag-
skýrslum og álitsgerðum hérlendis. Verður
nauðsynlegt samræmi milli hinna ýmsu greina
skýrslugerðar tæplega tryggt með öðrum hætti.
Atvinnugreinaskipting fjármunamyndunar-
innar hefur verulega þýðingu við samanburð
á framleiðsluárangri greinanna. Hefur farið
mjög í vöxt, að slíkur samanburður milli greina
sé gerður. Vandfarið er með þennan saman-
burð og varðar þá því meiru, að farið sé með
sambærilega hluti. Sambærilegt efni vantar
þó enn á hinn bóginn móti fjármunamyndun-
inni, þar sem er atvinnugreinaskipting fram-
leiðslunnar. Talsverður efniviður í þessa skipt-
ingu liggur fyrir og má úrvinnsla hans teljast
eitt hið brýnasta verkefni, sem nú liggur fyrir
á sviði þjóðhagsreikninga.
Vinnsla landbúnaðarafurða og sjávarafurða
er nú talin til undirgreina iðnaðar. Þar sem
talsverð hefð hefur komizt á að telja þessar
vinnslugreinar til landbúnaðar og sjávarútvegs,
er birt endurskipting á þessar greinar í sér-
stakri aukatöflu. Bústofnsbreytingar, sem
mestmegnis hafa verið aukningar á tímabilinu
1945—1960, eru ekki taldar með fjármuna-
myndun landbúnaðarins. Þær eru í ætt við
birgðabreytingar og taldar með þeim. Þá hafa
þungavinnuvélar til ræktunarframkvæmda
verið taldar til mannvirkjagerðar. Má telja, að
fjármunamyndun landbúnaðarins sé með þessu
gerð sambærilegri við aðrar greinar.
41