Úr þjóðarbúskapnum - 01.06.1962, Blaðsíða 46
ÚR ÞJÓÐARBÚSKAPNUM
frjáls og upp frá því losnaði smám saman um
takmarkanir leyfaveitinganna. Innflutnings-
skrifstofan leysti Fjárhagsráð af hólmi í árslok
1953, samkv. lögum nr. 88, 1953. Loks var
Innflutningsskrifstofan lögð niður með efna-
hagsráðstöfunum í ársbyrjun 1960.
Fjárfestingartakmarkanirnar voru fram-
kvæmdar jöfnum höndum með úthlutun fjár-
festingarleyfa og gjaldeyris- og innflutnings-
leyfa, enda er mikið af fjármununum flutt
inn, og mestöll fjármunamyndunin hefur hátt
innflutningsinnhald. Frá því að Fjárhagsráð
var stofnað, höfðu sömu stofnanir með liönd-
um úthlutun gjaldeyris- og innflutningsleyfa
og fjárfestingarleyfa. Það er merkilegt rann-
sóknarefni, hve takmarkandi áhrif leyfa-
skömmtunin hafði á hverjum tíma, en því efni
verða ekki gerð skil í þessari grein. Þess ber
og að gæta, að þær skýringar á þróun fjár-
munamyndunarinnar, er til þess háttar athug-
unar verða raktar, ná ákaflega grunnt. Fyrir-
komulagið var aðferð til að skammta takmörk-
uð gæði, en er ekki skýring á sjálfum takmörk-
unum þeirra verðmæta, sem til ráðstöfunar
eru.
(Framliald á bls 53)
44