Úr þjóðarbúskapnum - 01.06.1962, Blaðsíða 56
ÚR ÞJÓÐARBÚSKAPNUM
Þessar vélar eru reiknaðar í talsvert nákvæmri
sundurliðun eftir einingarverðum bæði til
verðlags hvers árs og fasts verðlags, nema ár-
in fyrir 1951, en útreikningar fyrir þau ár,
byggðir á verzlunarskýrslum, eru tengdir við
árið 1951. Sandgræðsla og skógrækt er talin
eftir ríkisreikningum og umreiknuð til fasts
verðlags eftir kostnaðarvísitölu ræktunar.
Sjávarútvegur.
Togarar eru taldir eftir innflutningsvirði
öll árin samkvæmt verzlunarskýrslum Hag-
stofu íslands. Árin 1958 og 1959 er 55% yfir-
færslugjaldi bætt við, og árið 1960 er hærra
gengið (gjaldeyrisins) notað fyrir allt árið.
Fast verðlag er reiknað eftir smíðakostnaði
skipa erlendis fram til 1954, en eftir það er
aðeins reiknað til fasts gengis, enda þá litlar
hækkanir smíðakostnaðar. Bátar eru fyrir árin
1945—1954 reiknaðir fyrst eftir tryggingar-
mati árið 1954, en síðan reiknaðir til verðlags
hvers árs eftir sérstaklega reiknaðri kostnaðar-
vísitölu bátasmíða (sjá 3. hefti). Bátar inn-
fluttir árin 1955—1960 eru reiknaðir með sama
hætti og togarar þau ár, en bátar smíðaðir
innanlands eru verðlagðir eftir meðalverði á
smálest samkv. gögnum Fiskveiðasjóðs. Gögn
sjóðsins eru einnig notuð sem heimild að vél-
um og endurbótum, en sá liður er á mörkum
þess að vera tækur á skýrslu um fjármuna-
myndun.
Iðnaður.
Skýrslur 3. heftis um vélar og tæki í ýmsum
greinum iðnaðar hafa verið reiknaðar áfram
fyrir árin 1956—1960 með líkum hætti. Heim-
ildir eru verzlunarskýrslur og svör frá nokkr-
um fyrirtækjum við fyrirspurnum um fram-
leiðslu þeirra. Verðlagningin er reiknuð eftir
gildandi reglum á hverju ári með áætlaðri
viðbót fyrir niðursetningarkostnaði. Til fasts
verðlags er reiknað eftir reglunum 1954 fyrir
öll árin, en auk þess er leiðrétt fyrir erlendum
verðbreytingum samkvæmt meðaltali verðvísi-
talna iðnaðarframleiðslu í Bandaríkjunum og
Bretlandi. Vegna breytilegra gjalda af inn-
flutningi 1956—1960, er niðursetningarkostn-
aðurinn þau ár fyrst reiknaður sem fast hlut-
fall kostnaðarverðs á föstu verðlagi, en síðar
snúið til verðlags hvers árs eftir vísitölu verka-
mannakaups. Fyrri árin var gagnstæð aðferð
notuð. Vélar 1 áburðarverksmiðju og sements-
verksmiðju eru taldar með í heildartölum
þessara verksmiðja (liðir c og d). Ekki voru
tök á öðru en að reikna þessar stórfram-
kvæmdir til fasts verðlags eftir vísitölu bygg-
ingarkostnaðar. Ekki er víst, að skipting þess-
ara framkvæmda á ár sé alveg nákvæm.
Við endurskoðun í sambandi við prófarka-
lestur kom fram nokkur tvítalning í bygging-
um fyrir annan iðnað árin 1952 og 1953. Þetta
hefur verið lagfært í meðfylgjandi töflum, en
ekki voru tök á að lagfæra línurit vegna þessa,
né heldur töflurnar um þjóðarframleiðslu og
verðmætaráðstöfun.
Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð.
Þessi flokkur inniheldur aðeins vélar og
tæki til starfseminnar, þar sem ekki er vitað
um sérstakar byggingar hennar vegna. Vél-
arnar eru reiknaðar með sama hætti og iðnað-
arvélar. Um vélar frá varnarliðinu var fengin
sérstök sundurliðunaráætlun frá sölunefnd
varnarliðseigna. Jarðbor er talinn eftir bók-
haldi Gufuborana ríkisins og Reykjavíkurbæj-
ar.
Virkjanir og veitur.
Raforka. Reikningar og skýrslur hinna ýmsu
stofnana, er um raforku fjalla, eru heimildir
um framkvæmdirnar. Nokkuð er því um áætl-
anir eða ágizkanir smærri liða fyrstu árin.
Millifærslur dreifingarstöðva frá Sogsvirkjun
til Rafmagnsveitu Reykjavíkur fara fram árin
1953 og 1960, og verka til lækkunar á fram-
kvæmdaupphæð Sogsvirkjunarinnar þau ár
en hækkunar hjá Rafmagnsveitunni. Talsvert
skortir á samræmi í virðismatinu síðustu 3—4
54