Úr þjóðarbúskapnum - 01.06.1962, Síða 60
ÚR ÞJÓÐARBÚSKAPNUM
og hefur áætlaðri meðalstærð á grip verið
breytt. Hins vegar breytir það engu um virðis-
matið.
Framkominn mismunur á eldra og nýrra
mati verðmætis fullgerðra bygginga, annarra
en útihúsa, stafar einkum af færslu milli dýr-
leikaflokka. Nokkur tilfærsla hefur einnig orð-
ið á því, hvenær byggingum var talið lokið.
Utihúsin eru yfirleitt verðlögð nokkru lægra
í þessu mati en í hinu fyrra, og var þetta gert
til að fá fullt samræmi við skýrslur Stéttar-
sambands bænda um framkvæmdir á tíma-
bilinu 1951—1960, enda þótti sennilegt að eldra
mat Framkvæmdabankans væri nokkuð hátt.
Flokkun eftir staSsetningu hefur nú fylgt
þeirri reglu, að allt þéttbýli og byggðarklasar,
er ekki byggja tilveru sína á landbúnaði, telj-
ast til bæjarbyggðar. Skipting í kauptún og
kaupstaði fer hins vegar eftir formlegum rétt-
indum bæjarbyggðanna. Hver bæjarbyggð er
látin fylgja sama flokki í öllum talnaröðum
sömu skýrslu, þeim er byggðin tilheyrir síðasta
árið.
Eftirfarandi skrá sýnir, hvaða staðir eru
taldir til kauptúna í þessum skýrslum, og
hverjir voru þannig taldir í hinum eldri. Tala
og lögsagnarumdæmi kaupstaða hafa verið
óbreytt umrætt tímabil, nema að Glerárþorp
var sameinað Akureyri, og byggingarfram-
kvæmdir þar eru því í þessum skýrslum tald-
ar til kaupstaða en til kauptúna í þeim eldri.
Hofsós Höfn, Hornafirði
Dalvík Vik í Mýrdal
Hrísey Hvolsvöllur
Arskógssandur Ilella
Grenivík Stokkseyri
Svalbarðseyri Eyrarbakki
Kópasker Selfoss
Ratifarhöfn Laugarvatn
Þórshöfn Efrafall
Höfn í Bakkafirði Hveragerði
Vópnafjörður Þorlákshöfn
Hlaðir í Fellahreppi Grindavik
Bakkagerði Hafnir
(Borgarfjörður) Sandgerði
Egilsstaðir Gerðar
Eskifjörður Njarðvík
(Búðareyri) Vogar
Retyðarfjörður Bessastaðahreppur
Búðir Garðahreppur
Stöðvarfjörður Seltjarnarnes
Breiðdalsvík Mosfellssveit
Djúpivogur
Nöfn þeirra staða, sem taldir voru til kaup-
túna í byggingarskýrslum fyrir árin 1945—1954
í 4. hefti þessa tímarits, eru skáletruð. Auk
þess var Glerárþorp þá talið til kauptúna, en
er hér talið til Akureyrar, enda sameinað henni
á tímabilinu.
í skýrslum þessum hefur byggingum verið
skipað í prjá aðalflokka, sem sé:
íbúðabyggingar.
Byggingar til atvinnurekstrar.
Opinberar byggingar.
Skrá yfir kauptún, sem byggingarskýrslur
1954—1961 ná til.
Borgarnes
Hellissandur
Ólafsvík
Grafarnes
(Grundarfjörður)
Stykkishólmur
Búðardalur
Flatey
PatreksfjörSur
Tunguþorp
(Tálknafjörður)
Bíldudalur
Þingeyri
Flateyri
Suðureyri
Bolungarvík
Hnífsdalur
Súðavík
Hólmavík
Borðeyri
Hvammstangi
Blönduós
Höfðakaupstaður
(Skagaströnd)
Skilgreining íbúðabygginga veldur sjaldan
vandræðum og skal ekki um það rætt hér.
Öðru máli gegnir um hina tvo flokkana og
enn frekar undirflokka þeirra. Þar eru mörk
oft óljós, og eldri venja eða lauslegt mat látið
ráða úrslitum. Þannig má sjálfsagt finna að
því t. d., að kvikmynda- og samkomuhús eru
hér flokkuð með opinberum byggingum frek-
ar en með byggingum til atvinnureksturs. Hér
var það látið ráða, að umræddar byggingar
þóttu líks eðlis og félagsheimili, sem eru að
verulegu leyti reist fyrir opinbert fé og með
58