Úr þjóðarbúskapnum - 01.06.1962, Page 74
ÚR ÞJÓÐARBÚSKAPNUM
félagasamtök með hinu opinbera og mynda
þar með almennan félagslegan geira.
Upphafleg grundvallarhugsun geiraskipting-
arinnar er, að flokkaðar séu raunverulegar
persónur og persónur að lögum eftir helzta
eðli þeirra, þótt efnahagslegar athafnir þeirra
eða skipti við aðrar persónur geti verið marg-
háttuð. En í framkvæmdinni er þó geiraskipt-
ingin látin ráðast mjög af flokkun sjálfra efna-
hagsathafnanna, þannig að sýndar séu sem
hreinastar samstæður aðila og athafna í efna-
hagslífinu. Þetta felur raunar í sér, að mynd-
aðar eru reikningslegar hliðstæður hinna laga-
legu persóna, þótt þær séu ekki til sem form-
legar persónur að lögum.
Framkvæmdinni er því yfirleitt þannig hag-
að, að mest öll sú efnahagsstarfsemi er skilar
árangri sínum í sölu á markaði eða í hliðstæð-
um þess í eigin notkun, er talin fara fram á
vegum fyrirtækja. Þannig er ekki aðeins bú-
rekstur einstaklinga og því líkt talið til fyrir-
tækja, heldur og allur rekstur íbúðarhúsnæðis,
bæði til útleigu og eigin nota, og heimilisþjón-
usta. Geiri heimilanna er þá laus við alla fram-
leiðslustarfsemi, en er aðeins aðili að fram-
lagi framleiðsluþátta og ráðstöfun tekna.
Framleiðslu-, þjónustu- og viðskiptafyrirtæki
hins opinbera eru talin til fyrirtækja og þannig
á að fara með þær deildir opinberrar starfsemi,
er slíka starfsemi stunda og aðskildar verða
frá hinni eiginlegu opinberu starfsemi.
Undir opinbera geirann falla því aðeins þær
starfsdeildir hins opinbera, sem stunda aðal-
lega verðmætasköpun, er metin verður til op-
inberrar neyzlu, öðru nafni samneyzlu þjóðar-
innar, en þetta hugtak verður nánar skilgreint
hér á eftir. Þessar deildir geta þó stundað að
auki einhverja framleiðslu, einkum þjónustu,
til sölu á markaði. Launuð starfsemi á vegum
félagssamtaka er talin til geira heimila og
samtaka. En fyrir utan þessar undantekningar
er öll framleiðslustarfsemin talin fara fram á
vegum fyrirtækja.
Geiraskiptingin hefur meginþýðingu við
samningu reikningakerfisins og þar með til
ákvörðunar á reikningslegri meðferð hinna
ýmsu liða. En fyrir birtingu skýrslna um fram-
leiðslustarfsemina sjálfa og flokkaskiptingu
hennar hefur geiraskiptingin litla þýðingu,
enda er sú skipting yfirleitt ekki birt. I þess
stað er framleiðslustarfseminni, í víðtækasta
skilningi, skipt á atvinnugreinar. Atvinnu-
greinaskiptingin fer einkum eftir því, hverj-
ar framleiðsluvörurnar eða þjónusturnar eru,
á hvaða vinnslustigi vörurnar eru, og hver er
tæknilegur og rekstrarlegur skyldleiki fyrir-
tækjanna, en ekki eftir því, undir hvaða geira
starfsemin fellur. Þannig fellur skólahald hins
opinbera undir kennsluþjónustu, ásamt einka-
skólum, en opinber þjónusta er mjög þröngt
skilgreind atvinnugrein, er aðeins felur í sér
kjarnann í starfsemi liins opinbera.
Geirar heimilanna og hins opinbera ein-
kennast fyrst og fremst af því, að þeir eða
aðilar þeirra ráðstafa meginhluta teknanna af
framleiðslustarfseminni til þeirra endanlegu
nota, sem framleiðslan hefur að efnahagslegu
takmarki. Þannig fer um hendur þessara að-
ila margfalt meiri ráðstöfun fjár heldur en
nemur atvinnustarfsemi þeirra. Til þeirra fer
ráðstöfun til einkaneyzlu, samneyzlu og opin-
berrar fjármunamyndunar til frjálsra almanna-
nota, og ennfremur eiga þeir aðild að mikl-
um tilfærslum og fjármagnsviðskiptum.
Reikningakerfi geiranna ná ekki aðeins yfir
starfsemina á þeirra vegum, heldur og öll
efnahagsleg skipti þeirra við aðra aðila. Það
er að nokkru leyti hagkvæmnisatriði, hvernig
mörkin milli þeirra eru dregin. Þannig mætti
hugsa sér að skipa sem flestum eða öllum
starfsdeildum hins opinbera í flokk opinberra
fyrirtækja, er seldu hinu opinbera þjónustu
sína. Opinberi geirinn væri þá hreinlega til
ráðstöfunar á verðmætum en ekki til mynd-
unar þeirra. Þótt starfsemi sé flokkuð þannig
til fyrirtækja, koma skipti hins opinbera við
þau fram á reikningum opinbera geirans, sem
kaup vöru og þjónustu frá þeim, tilfærslur til
72