Úr þjóðarbúskapnum - 01.12.1966, Blaðsíða 7

Úr þjóðarbúskapnum - 01.12.1966, Blaðsíða 7
FRJÁLSHYGGJA OG SKIPULAGSHYGGJA þjóða á milli hafa blómgazt og dafnað sem aldrei fyrr. Ef við nú spyrjum þeirrar spurningar, hvort þessi þróun í efnahagsmálum Vestur- landa hafi fylgt leiðum frjálshyggju eða skipu- lagshyggju, er hætt við, að svarið mótist all- mjög af meginviðhorfum þess, sem svara á. Frjálshyggjumenn myndu leggja á það áherzlu, að atvinnutækin væru yfirleitt í einkaeign, eins og áður var, að frelsi atvinnurekenda til að taka efnahagslegar ákvarðanir hefði ekki verið skert, að neyzluval væri frjálst. Og þeir myndu án efa telja, að mildar framfarir og al- menn aukning velmegunar ættu einmitt rót sína að rekja til þessara grundvallaratriða. Ahangendur skipulagshyggjunnar myndu aft- ur á móti benda á það, að ríkisvaldið hefði tekið að sér að marka almenna stefnu í efna- hagsmálum og beitti öflugum tækjum fjármála og peningamála ásamt áætlunargerð um ein- stakar atvinnugreinar og opinberar fram- kvæmdir til þess að framfylgja þeirri stefnu. Þeir gætu einnig bent á, að bankastarfsemi, samgöngur, framleiðsla og dreifing orku og mikill hluti þungaiðnaðar, væri, víðast hvar í Evrópu a. m. k., annað hvort beinlínis í hönd- um ríkisins eða undir miklum beinum áhrifum ríkisvaldsins, og að framleiðsla og dreifing landbúnaðarafurða væri háð nákvæmri opin- berri íhlutun. Þeir gætu loks bent á, að jafn- vel í þeim löndum, þar sem frjálshyggjan ætti dýpstar rætur, hefði ríkisvaldið reynzt reiðu- búið að grípa í taumana og hafa bein áhrif á verðlag, laun og ákvarðanir um fjárfestingu, þegar mikið hefði verið í húfi. En spurningunni um það, að hve miklu leyti nútíma efnahagskerfi Vesturlanda byggist á sjónarmiðum frjálshyggju eða skipulagshyggju, er að sjálfsögðu ekki fullsvarað með því að benda á þessar staðreyndir. Ef til vill er henni bezt svarað, ef við segjum, að ný skipulags- umgerð hafi myndazt eða verið mynduð um efnahagsstarfsemina, umgerð, er feli í sér þau atriði, sem áhangendur skipulagshyggjunnar myndu vilja leggja áherzlu á og að framan voru talin. Innan þessarar nýju umgerðar fari efnahagsstarfsemin hins vegar í aðalatriðum fram samkvæmt sjónarmiðum frjálshyggunnar, lögmál markaðarins séu þar ráðandi og hafi enn á ný reynzt áhrifamikil tæki til að ná hag- kvæmni í framleiðslu og til þess að laga fram- leiðsluna að margvíslegum þörfum neytenda. Þróunin í Austur-Evrópu. Það skiptir miklu til glöggvunar á þeim mál- um, sem hér eru til umræðu, að líta ekki að- eins á þá þróun, sem orðið hefur í stjórn efna- hagsmála á Vesturlöndum á undanförnum ára- tugum, heldur líta einnig á þá þróun, sem á sama tíma hefur orðið í Austur-Evrópu. Þar var, fyrst í Ráðstjórnarríkjunum, síðan í öðrum löndum, skrefið tekið að fullu til algerrar skipulagningar efnahagslífsins fyrir atbeina ríkisvaldsins. Hinn frjálsi markaður og lögmál hans voru látin lönd og leið og hagkerfunum að mestu lokað fyrir ytri áhrifum. Sú reynsla, sem fengizt hefur af þessari skipun efnahags- mála, og sú reynsla er nú orðin býsna löng, bendir ekki til þess, að neins auðfengins né óvenjulegs árangurs sé að vænta eftir þessum leiðum. Hagvöxtur í Ráðstjórnarríkjunum hef- ur ekki, þegar allt kemur til alls, reynzt örari en í Rússlandi keisaranna eða á sambærileg- um skeiðum hagþróunar á Vesturlöndum. Mik- ill árangur hefur náðst í þeim greinum, sem mest kapp hefur verið lagt á, þungaiðnaði, orkuframleiðslu, vígbúnaði og vísindum. En jafnframt hefur önnur efnahagsstarfsemi tím- unum saman staðnað eða minnkað, og það ein- mitt sú starfsemi, sem mesta þýðingu hefur fyrir velferð almennings, svo sem framleiðsla landbúnaðarafurða, bygging íbúðarhúsa, létta- iðnaður og þjónustustarfsemi. í löndum Aust- ur-Evrópu hefur því á undanförnum árum haf- izt leit að nýjum aðferðum í stjórn efnahags- mála, sem betur hentuðu til að ná alhliða vexti efnahagslífsins og laga þann vöxt að þörfum 5
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Úr þjóðarbúskapnum

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Úr þjóðarbúskapnum
https://timarit.is/publication/1134

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.