Úr þjóðarbúskapnum - 01.12.1966, Blaðsíða 40

Úr þjóðarbúskapnum - 01.12.1966, Blaðsíða 40
ÚR ÞJÓÐARBÚSKAPNUM inni, því breytingar á vinnuafli verka jafn- skjótt á vinnsluvirðið, en breytingar á fjár- magni og öðrum atriðum verka á löngum tíma á vinnsluvirðið. Línuritin yfir vinnuafls- breytingarnar ættu því að sýna í grófum drátt- um, í hvaða átt vinnsluvirðið hefur þróazt á hverjum tíma. Það sést líka, að vinnuaflsþró- unin 1950—1953 og 1953—1960 sýnir bæði í heild og í einstökum iðngreinum hliðstæða mynd og vinnsluvirðisþróunin gerir þessi tíma- bil. Hér verður þó ekki farið út í tölfræðilega útreikninga á fylgni vinnuafls og vinnsluvirðis. 6. Framleiðniþróunin 1950—1960. Almennt um framleiðni1). Aður en vikið er að því efni, sem er kjarni málsins í þessari ritgerð, er rétt að gera grein fyrir því, hversu mikils virði tölur þær eru, sem hugleiðingar þessarar ritgerðar um fram- leiðni byggjast á. Þegar hér er talað um framleiðni, er fyrst og fremst átt við framleiðni vinnunnar, — hve mikil verðmæti hver starfsmaður skapar á einu ári. Til þess að fá fyllri mynd af framleiðn- inni eru hér einnig reiknaðir út stofnfjárstuðl- ar, sem sýna hve margar fjármagnskrónur liggja að baki hverri árlegri vinnsluvirðiskrónu. í síðara tilfellinu er stuðullinn neikvæður og sýnir því meiri framleiðni, þ. e. miðað við fjármagn, sem hann er lægri. Formúlurnar eru þessar: Framleiðni vinnu = vinnsluvirði á föstu verðlagi deilt með vinnuárum. Stofnfjárstuðull = fjármagn á verðlagi hvers árs deilt með vinnsluvirði á verðlagi hvers árs. Svo sem getið er í töfluskýringum, geta ýms- ar aðstæður valdið skekkjum á tölulegu gildi þeirra hugtaka, sem ganga inn í framleiðni- formúlurnar. Verða skekkjuvaldarnir ekki rakt- ir hér, en bent á eftirfarandi: 1) Skekkjuvald- arnir vega hvern annan upp að nokkru leyti. 2) Þeir geta haft dálítil áhrif á gildi talnanna sem nefndra talna, þ. e. á tölulegt gildi þeirra hverrar um sig, en sáralítil áhrif á afstæð gildi talnanna. Þannig má ekki taka það bókstaflega, að hver starfsmaður í iðnaði hafi að meðaltali framleitt 94.000 krónur árið 1960, þótt það standa í töflu 6. Miklu meira mark er takandi á afstæðum tölum í þessari ritgerð, — þar sem gerður er samanburður milli iðngreina og milli ára. Ilér er reynt að nota slíkar tölur sem mest, en nefndar tölur eru einnig töluvert notaðar í samanburði við útlönd, en sá samanburður er óvissasti hluti ritgerðarinnar. Vemd-). Einn skekkjuvaldur er óræddur og það er verndin. Vinnsluvirði er hér reiknað eins og það kemur fyrirtækjum til tekna, þ. e. sölu- verðmæti framleiðslu þeirra hér innanlands er notað til ákvörðunar þess. Nú væri það al- gildari mælikvarði á vinnsluvirðið, hvert sölu- verðmæti framleiðslunnar væri á erlendum markaði í samkeppni við erlendar vörur, eða hvert söluverðmæti framleiðslunnar væri hér heima, ef framleiðsluna yrði að selja á sama verði og tollfrjáls erlend framleiðsla væri seld á. Hátt vinnsluvirði getur í ýmsum tilfellum stafað af vernd, ýmist af höftum, tollvernd eða fjarlægðarvemd. Hrein tollvernd er í mörgum greinum meiri hér en í iðnaðarlöndum heims. Er talið, að tollvernd og innflutningshömlur séu hér veru- legar í greinum, sem ráða alls yfir 15—16% af heildarmannafla iðnaðar. Það er fyrst og fremst fataiðnaðurinn, sem er mjög tollverndaður, meginhluti hans urn 55—85%. Um helmingur trésmíða (húsgögn) er tollverndaður um 65—75%. Um helmingur J) Heimildir þessa hluta 6. kafla eru aðallega nr. 3, 9, 14, 18 og 20. 2) Heimild þessa hluta 6. kafla er aðallega nr. 12 í heimildaskrá. 38
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Úr þjóðarbúskapnum

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Úr þjóðarbúskapnum
https://timarit.is/publication/1134

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.