Úr þjóðarbúskapnum - 01.12.1966, Qupperneq 51

Úr þjóðarbúskapnum - 01.12.1966, Qupperneq 51
IÐNÞRÓUN Á ÍSLANDI ins, sem telst myndaður í fyrirtækinu eða atvinnugreininni, þ. e. vinnsluvirðið. En á hinn bóginn svarar það til þeirra tekna, sem mynd- ast innan fj'rirtækisins í formi hvers kyns launa, vaxtagjalda umfram vaxtatekjurog brúttóhagn- aðar án tillits til þess, þótt hluti hans reiknist sem afskriftir fjármuna eða fari til greiðslu opinberra gjalda. Venjulega er vinnsluvirðið talið þannig í vergum skilningi, þ. e. án þess að mat á sliti og úreldingu fjármuna — afskriftir — sé dreg- ið frá, en ekkert er því til fyrirstöðu, og raunar nær kjarna málsins, að reiknað sé hreint vinnsluvirði með frádrætti afskrifta. En því fylgir sá annmarki, að afskriftirnar eru mats- atriði. Vinnsluvirði má einnig reikna ýmist á mark- aðsvirði eða tekjuvirði. í hinu fyrra felst, að framleiðsluvörurnar eða þjónustan er reiknuð á verði markaðsins að meðtöldum þeim óbeinu sköttum, sem á reksturinn leggjast, en án þeirra opinberu styrkja, sem kunna að renna til rekstr- arins. Tekjuvirðið útilokar aftur á móti upp- hæð óbeinu skattanna en innifelur opinbera styrki. Venjan er að miða vinnsluvirði ein- stakra atvinnugreina og þar með atvinnu- greinaskiptingu þjóðarframleiðslunnar við tekjuvirði, enda er torvelt að rekja óbeina skatta og styrki til atvinnugreina, svo óyggj- andi sé, og auk þess eru mikilvægir styrkir óbeinir, þ. e. koma fram í mynd þeirra verð- skilyrða, sem leiða af tollum á innflutningi. Iðnaðarskýrslur ársins 1960 fylgja ofan- greindri skilgreiningu, sýna tekjuvirði án frá- dráttar afskrifta. í Iðnaðarskýrslum 1950 og 1953 er skilgreining hugtaksins mun óhreinni, felur í sér ýmsa aðfengna þjónustu, sem ekki hefur verið dregin frá. Hér er stuðzt við skil- greiningu skýrslnanna 1960 og leitazt við að leiðrétta tölur hinna til samræmis. Iðnaðar- skýrslur 1953 innihalda nægar upplýsingar til að framkvæma leiðréttinguna með sæmilegu öryggi, en leiðréttingu skýrslnanna 1950 þarf að mestu að byggja á áætlun. Iðnaðarskýrslur Sameinuðu þjóðanna notast við skilgreiningu, sem gefur hærra vinnslu- virði en hin almenna skilgreining (sbr. heim- ildir nr. 21, síðari bók, bls. 143). Frá verðmæti vergrar framleiðslu er dregið verðmæti að- fenginnar vöru, orku og þjónustu iðnaðarlegs eðlis. Þar með er ýmis almenn þjónusta inni- falin í vinnsluvirðinu, þótt aðfengin sé, svo sem auglýsingar, lögfræðiþjónusta, o. s. frv. Gerir það alþjóðlegan samanburð í töflu 9 óhagstæðari fyrir ísland en raunverulega er. Hverju munar fer þó mjög eftir samræmi vinnuaflstalna við tilsvarandi vinnsluvirðis- tölur, en um það er örðugt að fullyrða. Vinnsluvirði hverrar greinar á að réttu lagi að færa til fasts verðlags eftir þeim verðbreyt- ingum, sem orðið hafa á framleiðslu og rekstr- arnauðsynjum viðkomandi greinar sérstaklega. Um þá þróun í hérlendum iðnaði skortir hins vegar allar heimildir. Varð því að notast við grófan verðmælikvarða, og varð verðvísitala tekjuvirðis þjóðarframleiðslunnar fyrir valinu, en Efnahagsstofnunin lét þá vísitölu í té. Með þessu móti má vænta þess, að niðurstöður um framleiðniþróun verði of óhagstæðár þeim iðngreinum, sem sízt hafa hækkað verð sín á áratugnum 1950 til 1960. Auk þess má yfirleitt gera ráð fyrir, að verðhækkun iðnaðarfram- leiðslunnar í heild sé minni en allrar þjóðar- framleiðslunnar, og þar með sé framleiðni- þróun iðnaðarins í heild eitthvað vanmetin. Við þessum annmörkum verður þó ekkert gert, heldur verður að nægja að vara við of strangri trú á samanburðargildi talnanna um vinnslu- virði og framleiðni á föstu verðlagi. Framleiðni vinnu er fundin með því að deila vinnuárafjölda í vinnsluvirði á föstu verðlagi. Þannig er allt vinnsluvirðið, eða aukning þess, tilfært sem árangur vinnunnar, svo sem venja er. Felst því ekkert endanlegt mat á gildi eða árangri atvinnugreinanna í þeim mælikvarða, og verður einnig að hafa hliðsjón af árangri miðað við notað fjármagn. Þar sem það vinnumagn, er felst í hverju 49
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Úr þjóðarbúskapnum

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úr þjóðarbúskapnum
https://timarit.is/publication/1134

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.