Fréttablaðið - 13.11.2014, Síða 2

Fréttablaðið - 13.11.2014, Síða 2
13. nóvember 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 2 HJÁLPARSTARF „Þetta var mjög skemmtilegt og áhugavert, að sjá þetta athvarf sem Rauði kross- inn á Íslandi rekur þarna,“ segir Högni Egilsson söngvari, sem er á tónleikaferðlagi með hljómsveit- inni Gus Gus. Í vikunni heimsótti hann athvarf fyrir fólk með geð- raskanir í Minsk í Hvíta-Rússlandi sem rekið er með aðstoð frá Rauða krossinum á Íslandi. Athvarfið er ætlað fólki sem er að aðlagast daglegu lífi eftir spítalavist á geð- deild. Það var reist að fyrirmynd slíkra athvarfa sem eru rekin hér- lendis, meðal annars Vinjar við Hverfisgötu, Lautar á Akureyri og Dvalar í Kópavogi. Högni hefur sjálfur sagt frá því opinberlega að hann sé með geðhvarfasýki og gat því miðlað af reynslu sinni til þeirra sem sækja athvarfið. Mikil vanþekk- ing er á geðsjúkdómum í Hvíta- Rússlandi, að sögn Högna. Hann segir fólkið sem hann ræddi við margt hafa þurft að sæta miklum fordómum. „Það var skemmti- legt að koma þarna inn og eiga í samræðum við fólkið sem lend- ir á upp kant við samfélagið sitt vegna einhverrar greiningar. Það eru miklir fordómar og lítil vitn- eskja. Þarna hitti ég til dæmis stelpu sem var greind með geð- klofa þegar hún var 16-17 ára og í kjölfarið mætti hún lokuð- um dyrum alls staðar í umhverfi sínu. Hún mátti ekki fara í leik- fimi í skólanum og gat svo ekki farið í háskóla að læra hönnun eins og hana langaði. Þarna held- ur fólk oft á tíðum að geðklofa einstaklingar séu hættulegir enda vanþekkingin mikil.“ Hann segir að þó að vissulega sé þekkingin á geðsjúkdómum lengra á veg komin hérlendis þá séu samt fordómar til staðar. „Í kjölfarið á því að ég talaði opin- berlega um mína sögu þá hafa margir talað við mig og sagt mér sínar sögur eða einhverra sem tengjast þeim. Það eru margir hræddir við geðsjúkdóma og það þarf að sýna þessum einstakling- um stuðning og hlusta á þá til þess að gera þeim kleift að vera með í samfélaginu.“ Högni ræddi við fólkið í athvarfinu um þessi málefni og tók líka lagið. „Fólkið þarna var mjög innblásið. Það eiga allir rétt á sínum upplifunum. Það þarf að tala um verðmætin og þau gildi sem það felur í sér að eiga sér sögu, eiga sér þessa þrekraun og takast á við umhverfi sitt. Í því er fólgin ákveðin sorg og reynsla en um leið gerir það þig að dýpri manneskju fyrir vikið,“ segir hann. Högni segir það hafa verið afar áhugavert að heimsækja athvarf- ið og hitta fólk úr öðrum menn- ingarheimi sem er að kljást við geðsjúkdóma. „Þetta er eina svona athvarfið í þessari stóru borg. Það var ótrúlega gaman að fá tækifæri til þess að fara þang- að. Þetta er flott starf sem Rauði krossinn er að vinna þarna og mikilvægt fyrir okkur Íslendinga að taka þátt í svona.“ viktoria@frettabladid.is Heimsótti Minsk og fræddist um athvarf Högni Egilsson heimsótti athvarf fyrir fólk með geðraskanir í Hvíta-Rússlandi. Athvarfið er rekið með aðstoð Rauða krossins á Íslandi og er það eina í borginni Minsk. SKOÐAÐI ATHVARFIÐ Högni skoðaði athvarfið sem er rekið af Rauða krossinum á Íslandi. MYNDIR/ÞÓRIR GUÐMUNDSSON RÆDDU MÁLIN Högni ræddi við skjólstæðinga athvarfsins. Þarna heldur fólk oft á tíðum að geðklofa einstaklingar séu hættu- legir enda vanþekkingin mikil. REYKJAVÍK Nú stendur yfir sýning í Ráðhúsi Reykjavíkur um nýjar íbúðir í Reykjavík. Þar koma fram byggingaráætlanir fyrirtækja auk skipulagsáforma Reykjavík- urborgar. Hægt er að sjá hvar eigi að byggja, hver standi bak við framkvæmdina og hvenær áætlað sé að uppbyggingu ljúki. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri setti sýn- inguna með opnum fundi. Í máli borgarstjóra kom meðal annars fram sú stefna borgarinn- ar að tryggja úrræði fyrir þá sem ekki eiga kost á því að kaupa sér fasteign. Á nýjum uppbygging- arsvæðum er áætlað að minnsta kosti fjórðungur þeirra verði fyrir leigu- og búseturéttarhúsnæði. Meðal svæða, sem áætlað er að byggt verði upp á, má nefna að um 500 stúdentaíbúðir auk þéttingar háskólasvæðisins er í kortunum. Áætlaðar eru 350 starfsmanna- og nemendaíbúðir við Háskólann í Reykjavík og uppbygging nýs hverfis á Ártúnshöfða með tveim- ur grunnskólum. Áætlaðar íbúðir þar, til ársins 2030, eru um 3.200. Eldsvoðinn í Skeifunni 11 er sagður opna ýmsa möguleika á endurskipulagningu svæðisins en hugmyndir eru uppi um að þar rísi allt að 500 íbúðir. Auk versl- unar- og þjónustuhúsnæðis eru 170 íbúðir áætlaðar í Austurhöfn við Hörpu. Annar fundur með borgarstjóra fer fram í dag klukkan 17.30 og verður sýningin opin fram í miðja næstu viku. - joe Stefnt að eflingu leigu- og búseturéttarúrræða. Uppbygging 5.000 íbúða áætluð á næstu fjórum árum: Byggingaráætlanir til sýnis í Ráðhúsinu FJÖLMENNI Dagur B. Eggertsson kynnti uppbyggingaráform Reykjavíkur. Annar fundur fer fram í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/GUNNAR REYKJAVÍK Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur, felldi í Heiðmörk jólatré það sem fært verður Færeyingum að gjöf þessi jólin. Borgarstjórinn fékk viðeigandi kennslu og hlífðarbúnað og felldi að því loknu um tólf metra hátt, hálfrar aldar gamalt sitkagreni. Sóley Tómasdóttir, forseti borgarstjórnar, mun afhenda Þórshafn- arbúum tréð síðar í mánuðinum. Þetta er annað skiptið sem Reykja- víkurborg og Skógræktarfélag Reykjavíkur senda Færeyingum tré að gjöf. - joe Borgarstjóri felldi grenitré sem verður afhent Færeyingum: Reykjavík gefur Þórshöfn jólatré SKÓGARHÖGGSMAÐUR Það kom í hlut Dags B. Eggertssonar borgarstjóra að fella tréð. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Guðmundur, ertu í sárum yfir þessu? „Nei, okkur sárvantaði þetta.“ Lækningavörufyrirtækið Kerecis hefur fengið leyfi til að fara inn á Bandaríkjamarkað með vörur sínar. Guðmundur Fertram er framkvæmdastjóri Kerecis. ÍSAFJÖRÐUR Sjálfstæðismenn í bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar „hafa áhyggjur af þeim losara- brag sem virðist vera á fjármála- stjórn bæjarins“, að því er segir í bókun oddvita flokksins við umræður um fjárhagsáætlun á fundi bæjarstjórnar síðastliðinn fimmtudag. Daníel Jakobsson, oddviti Sjálf- stæðisflokksins, segir það sjást meðal annars á því að eigin- leg frumdrög að fjárhagsáætlun liggi ekki fyrir heldur í raun hug- myndalisti. Þar sé gert ráð fyrir 200 milljóna króna hallarekstri og stórauknum útgjöldum. - nej Bókun á fundi Ísafjarðarbæjar: Segir losarabrag á fjármálunum ÚKRAÍNA Úkraínustjórn býr sig undir aukin átök gegn uppreisn- armönnum og rússneskum stuðn- ingsmönnum þeirra í austur hluta landsins. Fregnir hafa borist þess efnis að skriðdrekar, vígamenn, vopn og vistir streymi yfir landamæri Úkraínu og Rússlands. Rússnesk- ir ráðamenn hafa ætíð neitað því að hergögn hafi borist til upp- reisnarmanna frá þeim. Yfirhershöfðingi NATO í land- inu hefur lýst yfir áhyggjum af stöðu mála og kallað eftir við- brögðum alþjóðasamfélagsins. - joe Uppreisnarmenn vígbúast: Hergögn berast frá Rússlandi SPURNING DAGSINS Kringlan 588 2300 Ný lína úr marmara Bretti 5.495 kr. Mortél 2.295 kr.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.