Fréttablaðið - 13.11.2014, Side 20

Fréttablaðið - 13.11.2014, Side 20
13. nóvember 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR FJÖLSKYLDAN | 20 Börnum og unglingum sem koma til sjúkraþjálfara með stoðkerfis- vandamál fjölgar verulega. Hluti vandamálanna er mikil kyrrseta og notkun tölva, spjaldtölva og far- síma, að sögn Gauta Grétarssonar sjúkraþjálfara. „Ég hef séð tveggja til þriggja ára krakka með spjaldtölvu og far- síma. Þau venja sig á að vera með hálsinn langt fram fyrir bolinn þar sem þyngdarpunkturinn er. Sitji þau lengi í þessari stöðu veldur þetta höfuðverk, svefntruflunum og alls konar öðrum vandamálum. Það má búast við talsverðum stoð- kerfisvandamálum hjá þessum börnum eftir 10 til 15 ár verði ekki gripið í taumana,“ segir Gauti og bætir því við að foreldrar verði að setja reglur um tölvunotkun barnanna og aga sjálfa sig. „Foreldrar eru að kaupa sér tíma með því að rétta börnunum spjald- tölvurnar. Krakkarnir læra þetta af foreldrunum sem eru sjálfir alltaf í tölvunum. Við erum að fá til okkar fólk sem situr við tölvu átta klukkustundir á dag og er svo með tölvu í fanginu heima í kannski fjórar klukkustundir. Þetta eru kallaðar fartölvur en eru í rauninni fangtölvur. Foreldrar þurfa að leika við börnin í staðinn, fara með þeim út og kenna þeim leiki.“ Gauti tekur það fram að vissu- lega nái börn einbeitingu og færni í fínhreyfingum við tölvunotkun. „Þau fá hins vegar eingöngu færni í þessum fínhreyfingum. Þau nota mikið bara aðra höndina og hin er farþegi. Höfuðið er fyrir framan bolinn og mikið í hangandi stöðu. Við sem eru eldri náðum færni í fínhreyfingum og einbeitingu með því að vera í til dæmis dúkkulísu- leik og smíði flugvélamódela. Við notuðum báðar hendurnar við þessa leiki og við fórum ekki með þetta út í bíl. Við vorum ekki í þessu allan daginn heldur vorum við mikið í leikjum úti.“ Að sögn Gauta missa börn sem eru mikið í tölvum færni í gróf- hreyfingum. „Þau ná ekki að þroska stoðkerfið og fá heldur ekki útrás fyrir spennu og streitu með því að þjálfa grófhreyfingar með útileikjum og íþróttaiðkun. Þeim eru bara gefin verkjalyf þegar þau verða óþekk og óvær og sofa illa vegna vegna verkja í stoðkerfinu. Foreldrar átta sig kannski ekki á því hvers vegna krakkarnir eru með höfuðverk og hvernig eigi að leysa vandann. Unglingarnir sem eru að koma til okkar í sjúkra- þjálfun núna eru þau sem byrjuðu að sitja við tölvur fyrir nokkrum árum. Það verður að takmarka þann tíma sem ung börn eru í tölv- um.“ ibs@frettabladid.is Æ fleiri börn þurfa meðferð vegna stoðkerfisvandamála Kyrrseta og notkun tölva og farsíma veldur höfuðverk, svefntruflunum og öðrum vandamálum hjá börnum og unglingum, segir Gauti Grétarsson sjúkraþjálfari. Hann segir börnin ekki ná að þroska stoðkerfi líkamans. Ný tómstundamiðstöð, Glætan, hefur verið opnuð að Auðbrekku 26 í Kópavogi fyrir börn og ungmenni sem eiga undir högg að sækja félagslega. Starfsemi Glætunnar er byggð á námskeiðum sem for- varnasamtökin Lífsýn hafa haldið undanfarin átta ár, að því er Elvar Bragason, framkvæmdastjóri Líf- sýnar og frumkvöðull verkefnis- ins, greinir frá. Elvar er jafnframt stjórnarmaður í Glætunni og for- varnaráðgjafi tómstundamiðstöðv- arinnar. Glætan býður upp á skapandi viðfangsefni sem ætlað er að opna þátttakendum nýja möguleika í líf- inu. „Við höfum hjálpað yfir 700 börnum á þessum átta árum,“ segir Elvar. Þátttakendur velja sér verkefni í svokölluðum smiðjum þar sem unnið er með tónlist, leiklist og fleiri listform auk þess sem útivist er stunduð. Í starfi smiðjanna er unnið með grundvallarmarkmið- in í starfinu, það er að byggja upp jákvæða sjálfs- mynd og sjálfs- virðingu þátttak- enda, efla traust, samskiptafærni og trú á eigin getu í skapandi og hvetjandi sam- skiptum. Börn og unglingar geta sjálf skráð sig á námskeið hjá Glætunni og eru leiðbeiningar um hvernig skráning fer fram á vefsíðunni glaetan.com. „Við erum einnig í samstarfi við námsráðgjafa í öllum grunnskólum á höfuðborgar- svæðinu. Þeir sjá hvaða krakkar þurfa á þessum námskeiðum að halda og vísa foreldrum þeirra til okkar,“ segir Elvar. Fyrsta námskeiðið hefst klukk- an 15.30 í dag og er enn hægt að skrá sig. - ibs Ný tómstundamiðstöð fyrir börn og unglinga: Sjálfsmyndin byggð upp í Glætunni N O RD ICPH O TO S/G ETTY Foreldrar átta sig kannski ekki á því hvers vegna krakkarnir eru með höfuðverk og hvernig eigi að leysa vandann. Ungling- arnir sem eru að koma til okkar í sjúkraþjálf- un núna eru þau sem byrjuðu að sitja við tölvur fyrir nokkrum árum. Gauti Grétarsson FJÖR Fyrsta námskeið Glætunnar hefst í dag og enn er hægt að skrá sig. ELVAR BRAGASON Næstkomandi laugardag verður norræni leikjadagurinn hald- inn hátíðlegur í bókasöfnum á Norðurlöndunum. Þennan dag beina almenningsbókasöfn kast- ljósinu að leikjum, borðspilum og tölvuleikjum í því skyni að sýna fram á að leikir séu efni sem eigi heima á bókasöfnum, nú sem endranær, að því er segir á vef Borgarbókasafnsins. Fjögur söfn Borgarbókasafns, aðalsafn, Kringlusafn, Gerðu- bergssafn og Sólheimasafn, taka í fyrsta sinn þátt í deginum. Boðið verður upp á alls konar borð spil, tölvuleikinn Icycle, og geta þátt- takendur í honum att kappi við aðra norræna keppendur, og létt- an ratleik. Spilavinir verða til aðstoðar í aðalsafni, Gerðubergssafni og Sólheimasafni. Þetta verður sem sagt fullur dagur af leik og gleði fyrir alla aldurshópa og eru allir velkomnir. Leikjadagur á bókasöfnum BORÐSPIL Á laugardaginn verður hægt að keppa í leikjum á bókasöfnum. MEÐ SPJALDTÖLVU Búast má við stoð- kerfisvandamálum hjá börnum sem sitja lengi með spjaldtölvur. Skoðaðu úrvalið á NOTADIR.BRIMBORG.IS Söludeildir eru opnar virka daga kl. 9-17 og laugardaga kl. 12-16 Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 6, sími 515 7030 Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 8, sími 515 7040 Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 515 7050 Notaðir bílar - Brimborg Tilboð: 4.640.000 kr. Volvo XC90 SE+ D5 AWD RRM19 Skráður ágúst 2008, 2,4Di dísil, sjálfskiptur Ekinn 133.000 km. Ásett verð: 4.990.000 kr. Tilboð: 3.490.000 kr. Volkswagen Passat Highline JKR84 Skráður mars 2012, 1,4i metan/bensín, sjálfsk. Ekinn 53.500 km. Ásett verð: 3.690.000 kr. 400.000 KR. FERÐAFJÖR FINNDU BÍLINN ÞINN Á NOTADIR.BRIMBORG.IS *Allir sem kaupa notaðan bíl af Brimborg á tímabilinu 1. nóvember 2014 til og með 22. desember 2014 fara í pott. Einn heppinn vinningshafi verður svo dreginn út 23. desember 2014 og fær hann 400.000 kr. gjafabréf frá WOW air. Athugið á ekki við um umboðssölubíla. Kauptu notaðan bíl af Brimborg og þú átt möguleika á að vinna * GJAFABRÉF FRÁ WOWair NOTAÐIR BÍLAR Vertu með! Hvert myndir þú fara? Tilboð: 1.890.000 kr. Ford Focus Trend Collection IVY39 Skráður júní 2010, 1,6i bensín, beinskiptur Ekinn 68.000 km. Ásett verð: 1.990.000 kr. Í MIKLU ÚRVALI

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.