Fréttablaðið - 13.11.2014, Blaðsíða 50

Fréttablaðið - 13.11.2014, Blaðsíða 50
FÓLK|TÍSKA Söngkonan Katy Perry er nú á tónleikaferðalagi um Ástralíu sem er hluti af Prismatic-tón- leikaför hennar um heiminn. Af því tilefni hefur verið opnuð söguleg pop up-verslun í Mel- bourne. Í versluninni er hægt að kaupa varning sem fæst hvergi annars staðar, boli, sólgler- augu, plaköt og jafnvel sígarettustubbahús. Aðalatriðið er þó að í versluninni eru til sýnis kjólar og búningar sem Katy Perry hefur klæðst á tón- leikum og sýn- ingum. Einnig má þar sjá leikmuni sem hafa verið notaðir á tónleika- ferðalögum söngkonunnar heimsfrægu. Verslunin iðar af lífi enda hefur Perry ýjað að því að hún muni sjálf birtast óvænt í búðinni ein- hvern daginn. Verslunin verður opin í Mel- bourne fram á þriðjudag. Síðan poppar hún upp aftur í Sydney þann 21. nóvember. POP UP-VERSLUN KATY PERRY Á FERÐALAGI Katy Perry er nú á tónleikaferða- lagi í Ástralíu. Sigdís Þóra Sigþórsdóttir og Ingvar Óskarsson, eigendur verslunar-innar Ljótar jólapeysur, hafa verið með samnefnda netverslun á Facebook síðan í fyrra. Þau selja vægast sagt skrautlegar jólapeys- ur og vesti. Sigdís segir verslunina mega rekja til þemapartís sem hún og vinur hennar stóðu fyrir í vinahópnum fyrir nokkrum árum. „Vinur minn stakk upp á því að við héldum ljótupeysu-jólapartí en þá kom á daginn að lítið var um slíkar peysur hér á landi. Ég tók því að mér að panta á netinu fyr- ir allan hópinn. Við héldum svo partí sem varð alveg hrikalega skemmti- legt eins og svona þemapartí eiga það til að verða.” Sigdís segir um að ræða ameríska hefð sem eigi rætur að rekja til átt- unda og níunda áratugarins. „Þá var fólk ekkert að grínast með þetta heldur var í alvöru verið að prjóna peysur með snjókörlum, glimmeri og dúskum. Upp úr 2000 fór að verða vart við þetta hér á landi og þá helst í tengslum við vina- eða vinnustaða grín.“ Þau Sigdís og Ingvar opnuðu Facebook-síðu með peysunum í fyrra. „Við vorum bara með þetta heima en ákváðum að slá til og opna litla verslun fyrir þessi jól, enda eftirspurnin sífellt að aukast. Þetta er þó mest til gamans gert,“ segir Sigdís en hún og Ingvar eru bæði í fullri vinnu auk þess sem Ingvar er í námi. Verslunin verður til að byrja með opin frá 17 til 18 virka daga. „Þegar nær dregur jólum stefnum við að því að vera með jóla peysu markað um helgar og bjóða upp á piparkökur, kakó og jólatónlist. Facebook-síðan, Ljótar jólapeysur, verður hins vegar áfram opin svo þeir sem komast ekki í búðina geta haft samband við okkur í gegnum hana.“ Peysurnar koma allar frá Bandaríkjunum. „Vinkona okkar sér um að velja og senda okkur. Það er því ávallt mikil spenna að opna sendingar,“ segir Sigdís. Peysurnar munu kosta á bilinu 5.900 til 6.900 krónur. „Sumar eru þó meira notaðar en aðrar. Við tökum þær til hliðar og seljum ódýrt.“ Í fyrra runnu 500 krónur af andvirði peysanna til jólapeysuátaks Barnaheilla, jolapeysan.is. „Við afhentum samtökunum 140.000 krónur eftir jólin í fyrra. Við höfum sama háttinn á í ár. Þeir sem kaupa jólapeysu eru því að styrkja gott málefni í leiðinni. Eins styrktum við samtökin með peysum í auglýsingaátakið þeirra í ár,“ upplýsir Sigdís. Þess má geta að öll áheit sem safnast í jólapeysuátaki Barnaheilla þetta árið renna til Vináttuverkefnis Barnaheilla en það er forvarnarverk- efni gegn einelti í leikskólum. Nánar á jolapeysan.is. ■ vera@365.is JÓLAPEYSUÆÐI Í UPPSIGLINGU MEST TIL GAMANS GERT Ljótar jólapeysur heitir glæný verslun sem var opnuð að Grænatúni 1 í Kópavogi á þriðjudag. Þar fæst ríkulegt úrval af vintage-jólapeysum sem eru tilvaldar í vinnustaða- og þemapartíin á aðventunni. FULLT AF „LJÓTUM” PEYSUM Fyrir nokkrum árum var mikill skortur á jólapeysum hér á landi. Þau Ingvar og Sigdís hafa aldeilis bætt úr því. MYND/ERNIR facebook.com/CommaIceland Skyrta Verð 9.990,- Buxur Verð 15.490,- Jakki Verð 23.490,- Smáralind Vorum að ta ka upp fullt af nýjum vöru m.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.