Fréttablaðið - 13.11.2014, Side 72
13. nóvember 2014 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 52
Markéta Irglová heldur útgáfutón-
leika í Kaldalóni 19. nóvember til
að kynna sína aðra sólóplötu, Muna,
sem var tekin upp á Íslandi.
Markéta hefur tvisvar áður spil-
að hér á landi. Hún er annar helm-
ingur hljómsveitarinnar The Swell
Season á móti Glen Hansard.
Þau léku aðalhlutverkin og
sömdu tónlistina í myndinni Once.
Lagið Falling Slowly úr myndinni
færði þeim Óskarsverðlaunin og í
framhaldinu var gerð söngleikjaút-
færsla af Once sem hlaut m.a. átta
Tony-verðlaun og er enn sýnd fyrir
fullu húsi á Broadway og víðar.
„Ég kom til Íslands í fyrsta skipt-
ið með The Swell Season,“ segir
Markéta.
„Ég varð ástfangin af landinu þá
og varð sorgmædd við að kveðja
það, þrátt fyrir að ég vissi að ein-
hvern daginn myndi ég snúa aftur.
Víðáttan, öræfin og orkan sem
geislar af landinu veita mér inn-
blástur,“ segir hún.
Tónleikarnir í Kaldalóni verða
lokahnykkurinn á tveggja mánaða
tónleikaferð hennar um Norður-
Ameríku og Evrópu.
Svavar Knútur hitar upp en
miðasala er hafin. - fb
Ég varð ástfangin af
landinu þá og varð
sorgmædd við að kveðja
það, þrátt fyrir að ég
vissi að einhvern daginn
myndi ég snúa aftur.
Sótti innblástur sinn í íslenska víðáttu
Markéta Irglová úr hljómsveitinni The Swell Season heldur útgáfutónleika í Kaldalóni í næstu viku.
MARKÉTA IRGLOVÁ Tónlistarkonan
heldur útgáfutónleika í Kaldalóni 19.
nóvember.
Veitingastaðurinn Torfan hefur
nú verið opnaður á Amtmanns-
stíg 1 þar sem Humarhúsið var
áður.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
húsið hýsir veitingastað sem ber
nafnið Torfan, en árið 1981 var
opnaður veitingastaður í húsinu
með sama nafni. Nafngiftin er því
engin tilviljun.
„Það er ástæða fyrir nafninu.
Viss virðing fyrir fortíðinni og
við erum náttúrulega á Bernhöfts-
torfu. Þetta vinnur allt saman,“
segir Ívar Þórðarson yfirkokkur.
Húsið við Amtmannsstíg 1 var
byggt árið 1938 og er friðað. „Við
erum í rauninni ekki að breyta
neinu, þetta er allt upprunalegt.
Við settum bara nýja málningu
sem okkur þótti hæfa húsinu. Við
berum virðingu fyrir húsinu og
reynum að endurspegla það í þjón-
ustu og mat.“
Hin sögufrægu Torfusamtök
börðust fyrir tilvist húsanna á
Bernhöftstorfu en svæðið hefur
einnig þrisvar sinnum orðið eldi
að bráð.
„Það hefur alltaf sloppið fyrir
horn og aldrei brunnið til grunna.
Húsið er í rauninni í upprunalegri
mynd og við ætlum að halda því
alveg þannig.“ - gló
Opnuðu Torfuna í
stað Humarhússins
Veitingastaður með sama nafni var opnaður 1981.
YFIRKOKKUR
Amtmanns-
stígur 1 hýsir
í annað sinn
veitingastað
sem ber
nafnið Torfan.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VILHELM
„Andkristni er það að sætta sig
ekki við kúgun í skjóli trúar. Þetta
snýst um það að taka „sannleikann“
af sjálfskipuðum siðapostulum,
sem með fordómum og afturhalds-
hyggju þykjast eiga að ákveða hvað
aðrir mega og mega ekki,“ segir
Eyvindur Gauti Vilmundarson,
einn aðstandenda tónlistarhátíðar-
innar Andkristni sem haldin verð-
ur á Gamla Gauknum 21. desember.
Andkristni er langlífasta þunga-
rokkshátíð Íslands. „Hátíðin var í
byrjun óbeint svar við Kristnihátíð
sem haldin var á Þingvöllum árið
2000. Með henni vildu aðstandend-
ur Andkristnihátíðar koma skoðun
sinni á framfæri varðandi kostnað
og annað sem fylgdi þeirri hátíð,
sem kalla má svartan blett á sögu
þjóðar,“ segir Eyvindur.
Á tónleikunum koma fram svart-
málmssveitirnar Svartidauði,
Sinmara, Misþyrming, Abominor
og Mannvirki. „Það má benda á að
Íslendingar hafa nú hamrað svart-
málminn í hartnær 20 ár og því vel
við hæfi að gera hann sýnilegri og
að sem flestir kynnist honum.“
Þess má geta að í fréttatilkynn-
ingu frá Andkristni segjast aðstand-
endur hátíðar harma ummæli lista-
mannsins Snorra Ásmundssonar
um að sataníska orku legði af Fram-
sóknarflokknum. „Satanískri orku
yrði seint sóað í þann lýð. Satan er
líf, ljós og unaður, ólíkt Framsókn-
arflokknum,“ segir þar. - þij
Rokk og ról gegn
siðapostulum
Andkristni harmar ummæli Snorra Ásmundssonar um
„sataníska orku“ Framsóknar. Tónlistarhátíð í desember.
ABOMINOR Sveitin skrifaði nýlega undir samning hjá írsku plötuútgáfunni Invictus
Productions. MYND/KRISTINN GUÐMUNDSSON
➜ Ísland sigraðist á illskunni
Greinin „Why Iceland Should Be in The News But Isn’t“
birtist á suðurafrísku síðunni SACSIS árið 2011 og hefur
farið eins og eldur í sinu um netið undanfarin ár. Afleið-
ingar þessarar greinar á netinu urðu þær að lýðræðiselsk-
andi „clicktivistar“ um allan heim fengu þá hugmynd að
Íslendingar hefðu skipt um stjórnarskrá og varpað öllum
bankamönnunum í fangelsi, sem er auðvitað alrangt.
➜ Allir eru rithöfundar
Í fyrra birtist grein á BBC þar sem því er haldið fram
að einn af hverjum tíu Íslendingum muni gefa út
bók á lífstíð sinni. Þetta er fásinna og það frá ríkis-
fjölmiðli! Einn af hverjum tíu Íslendingum mun gefa
út einhvers konar texta á lífstíðinni en ekki heila
bók. Það gæti allt eins verið texti á mjólkurfernu en
ekki skáldsaga eða ljóðabók.
➜ Tortíming eftir Eyjafjallajökul
Árið 2010 sagði þáverandi framkvæmdastjóri Samtaka
ferðaþjónustunnar, Erna Hauksdóttur, í samtali við
Pressuna að ferðamönnum hefði fækkað eftir gosið í
Eyjafjallajökli. Þess vegna hafi verið ráðist í hið umdeilda
markaðsátak Inspired by Iceland. „Fólk heldur að ástandið
sé mjög slæmt, fólk heldur að hér sé landið bara þakið
ösku og sendir fyrirspurnir og spyr hvort það sleppi við
öskuna fari það til Vestfjarða. Þetta er náttúrlega bara
vanþekking. Við viljum gera allt sem við getum til að
koma í veg fyrir slæm áhrif hennar,“ sagði Erna.
➜ Björk á Elliðaey
Í fyrra birtust fjölmargar greinar á netinu, til dæmis á
virtu tónlistarsíðunni Complex, þar sem kom fram að
Ísland hefði gefið Björk Elliðaey í þakkarskyni fyrir fram-
lag hennar til lands og þjóðar. Þetta er auðvitað kolrangt.
Það var Davíð Oddsson, fyrrverandi forsætisráðherra,
sem sagðist árið 2000 vera reiðubúinn til að greiða fyrir
því að Björk fengi að reisa sér hús á Elliðaey og búa þar
leigulaust í þakklætisskyni fyrir menningarstörf hennar.
Hætt var við þessa hugmynd eftir fyrirspurn Steingríms J.
um hvort rétt væri fyrir ríkið að selja náttúruperlur.
Arngrímur Jónsson lærði var prestur
og fræðimaður sem fæddist árið
1568 og hlaut sérstaka eftirtekt
fyrir rit sín um Ísland svo sem Brevis
commentarius de Islandia, varnarrit
þar sem Arngrímur gagnrýnir ummæli
ýmissa lærðra erlendra manna um
íslenska þjóð og land, og Crymogæa,
fyrstu samfelldu Íslandssöguna sem
átti að leiðrétta ýmsar ranghugmyndir
útlendinga um Ísland.
Samkvæmt Wikipedia hefur reyndar
verið látið að því liggja að skrif Arn-
gríms gegn erlendum ritum um Ísland
hafi verið hluti af áróðri Danakonungs
gegn Hansakaupmönnum á þeim
tíma sem leiddi á endanum til verslunareinokunar Dana. Rit
Arngríms beindust nefnilega gegn skrifum manna sem komið
höfðu hingað í erindum Hansakaupmanna.
SVARAÐI RANGHUGMYNDUM
UM ÍSLAND FYRIR 400 ÁRUM
Ranghugmyndir um Ísland eru næstum
því jafn gamlar og landið sjálft. Á undan-
förnum árum, sérstaklega eftir efnahags-
hrunið, hefur miklu af misvísandi upplýs-
ingum um landið verið dreift um heiminn.
Oft og tíðum mála þessar „staðreyndir“
landsmenn upp sem framverði lýðræðis
og menningar í hinum vestræna heimi,
eða sem einhvers konar dulræn náttúru-
börn eins og haldið er til dæmis fram í
nýlegri ljósmyndaseríu af „skyggnu“ tví-
burunum Ernu og Hrefnu. Hvaða heil-
vita maður sem er getur auðvitað séð að
þetta er fjarri lagi. Það að sveipa lönd og
staði einhvers konar rómantík er auð-
vitað undirstaða allrar ferðamennsku en
Íslendingar sjálfir gerast líka oft sekir
um að dreifa þessum ranghugmyndum til
annarra sem og landa sinna.
Fréttablaðið hefur því tekið saman
nokkrar af helstu ranghugmyndunum um
land og þjóð sem komið hafa fram á und-
anförnum árum.
Ranghugmyndum um
Ísland dreift um netið
Fréttablaðið tekur saman nokkrar kolrangar hugmyndir um land og þjóð, sumar
sem komið hafa fram á undanförnum árum en aðrar sem eru enn eldri.
Þáttarstjórnandi Daily Show, Jon
Stewart, segir í viðtali við Roll-
ing Stone að sér þyki vænt um Bill
O’Reilly, hinn harðskeytta íhalds-
mann frá Fox News. „Það er ótrúleg
kynferðisleg spenna á milli okkar.
Hann minnir mig á alla sem ég
ólst upp með. Ég elska fæðingarbæ
minn þó að ég sé ósammála mörg-
um sem búa þar. Það hjálpar mér að
skilja að ég þarf að vera opinn fyrir
rökræðum,“ segir Stewart.
„Fólk spyr: „Af hverju færðu
hann í viðtal til þín? Hann er
illur!“ En ég held ekki að hann sé
illur. - þij
Þykir vænt um
Bill O’Reilly