Fréttablaðið - 14.11.2014, Blaðsíða 1
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup apríl-júní 2014
Föstudagur
16
H in margverðlaunaða brúða Lottie er nú fáanleg í tólf mismunandi útgáfum, ásamt fötum og ýmsum fylgihlutum. Lottie er mótvægi við allri þeirri neikvæðu líkamsímynd sem við sjáum allt í kringum okkur og það að ungar stúlkur séu gerðar að kyntákni. Við hönnun á dúkkunni var unnið með virtum sérfræðingum á sviði næringar og heilsu til að dúkkan fengi þá líkamslögun sem er æskilegust miðað við aldur (þó er höfuðið undntekning þar sem það er hlutfallslega stærra en eðlilegt er). Með Lottie er í raun snúið aftur til gömlu góðu daganna þar sem börn eru skapandi og nýta sér hugmyndaflug sitt við leik.Lottie er eins og venjuleg stelpa í laginu og hefur mörg áhugamál og endurspegla föt hennar þau. Ólíkt öðrum dúkkum á markaðnum er Lottie ekki að herma eftir heimi fullorðinna. Hún er ekki á háum hælum, notar ekki farða, er ekki hlaðin skarti og hefur ekki húðflúr. Lottie er skemmtileg, þroskandi og eftirsóknar-verð. Henni finnst afar skemmtilegt að nota ímynd-unarafl sitt og taka þátt í ævintýrum, hún er ekki full-komin og gerir mistök sem hún lærir af. Lottie á mikið af klæðilegum fötum sem eru úr björtum og líflegum efnum sem gaman er að handfjatla. Hár hennar er úr saran-næloni en afar litlar líkur eru á að það flækist og er það einnig silkimjúkt.Lottie er stelpudúkka fyrir stelpur. Lottie er 18 cm á hæð, snotur með fallegt hár og auðvelt að taka hana með sér hverthvort sem
LOTTIE STUÐLAR AÐ JÁKVÆÐRI ÍMYNDATC KYNNIR Dúkkan Lottie er mótvægi við þá staðreynd að ungar stúlkur eru
gerðar að kyntákni. Hún er dúkka með eðlilega líkamslögun. Lottie-dúkkan er
áræðin, hugrökk og ófeimin við að vera hún sjálf.
LOTTIE Hún hefur fengið ö
Fæst í apótekum og heilsubúðum
Góð melting styrkir ónæmiskerfiðStjórnaðu bakteríu-flórunni með OptiBac
P
R
E
N
TU
N
.IS
Fæst í apótekum og heilsubúðum
P
R
E
N
T
U
N
.IS
For Womengegn sveppasýkingu,bakteríusýkinguog þvagfærasýkingu
KÓRLÖG SIGVALDAKór Langholtskirkju flytur nokkur af þekkt-ustu kórlögum Sigvalda Kaldalóns á tón-leikum í Langholtskirkju á sunnudaginn klukkan 17. Einnig verða frumfluttir sjö sálmar eftir Þorvald Gylfason.
SÓFAR
Með nýrri AquaClean tæknier nú hægt að hreinsa nánast alla bletti aðeins með vatni!
ÍSLENSKIR SÓFAR SNIÐNIR AÐ ÞÍNUM ÞÖRFUM
Erfiðir blettir eins og eftir tómatsósu, léttvín, kaffi, te, meira að
segja kúlupenna, nást á auðveldan hátt úr áklæðinu.
Lífi ð
FÖSTUDAGUR
Nanna Árnadóttir
íþróttafræðingur
VÖKVATAP OG
MIKILVÆGI
VATNSDRYKKJU 4
Rikka
10 BÆKUR
SEM AUKA Á
HAMINGJUNA 10
Guðrún Tara Sveinsdóttir
FATASKÁPUR
MYNDLISTAR-
KONU 14
14. NÓVEMBER 2014
2 SÉRBLÖÐ
Lífið | Fólk
Sími: 512 5000
14. nóvember 2014
268. tölublað 14. árgangur
Við erum
að ná ágætri
mynd á þetta
en rann-
sóknin er
svo sem enn
á frumstigi.
Við munum fara í það í
rólegheitum næstu daga
að yfirheyra sakborninga
og vitni og gera rannsókn
á bifreiðinni sem brann.
Friðrik Smári Björgvinsson
yfirlögregluþjónn
SKOÐUN Ekki er þörf á sér-
stökum fjárframlögum til
RÚV, skrifar útvarpsstjóri. 18
MENNING Arnaldur
Indriða son er á kunnugleg-
um slóðum í Kamp Knox. 26
SPORT Fótboltalandsliðið
vinnur þegar það skiptir
máli undir stjórn Lars. 38
Listagyðjan kallaði
Söngkonan Sigga Eyrún sló rækilega í
gegn í Söngvakeppni sjónvarpsstöðva
með laginu Lífið kviknar á ný. Hún
ræðir við Lífið um nýja plötu, eftir-
minnilega reynslu úr leikhúsheim-
inum og biðina eftir barninu.
LÍFIÐ
FRÉTTIR
EINFALT
AÐ SKILA
EÐA SKIPTA
Opið allan sólarhringinn
í Engihjalla, Vesturbergi
og Arnarbakka
RAGNAR HEIÐAR Ræktar ostrusveppi
í plasthólkum með íslenskum hálmi og
hefur haft áhuga á ræktun frá því hann
var lítill polli. Hægt verður að smakka
ostrusveppina á matarmarkaði Búrsins
sem haldinn verður í Hörpu um helgina.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÓLK Ragnar Heiðar Guðjónsson
sveppabóndi ræktar ostrusveppi.
Hann byrjaði að rækta sveppina
vegna blöndu af áhuga á ræktun
og viðleitni til þess að skapa verð-
mæti úr aukaafurðum íslensks
landbúnaðar.
Ostrusveppir eru mikið notaðir í
asískri matargerð en Ragnar segir
erfitt að lýsa bragðinu. „Það er
mjög frábrugðið bragðinu sem er
af íslenskum kjörsveppum. Það er
svolítill anískeimur af lyktinni.“
Ragnar og ostrusveppirnir verða
á matarmarkaði Búrsins sem fer
fram í Hörpu um helgina.
- gló / sjá síðu 32
Anískeimur af lyktinni:
Ostrusveppir á
matarmarkaði
LÍFIÐ Heldur styrktartón-
leika eftir sviplegt dauðsfall
eiginkonunnar. 42
Bolungarvík 4° A 9
Akureyri 5° A 6
Egilsstaðir 7° A 7
Kirkjubæjarkl. 9° A 9
Reykjavík 9° A 10
VÆTA EYSTRA Í dag verða austan
5-13 m/s, hvassast SA- og NV-til. Dálítil
væta eystra og skúrir syðra en annars
úrkomulítið. Hiti 4-12 stig. 4
LÖGREGLUMÁL Þrír voru í gær-
kvöldi úrskurðaðir í gæsluvarð-
hald til miðvikudagsins í næstu
viku vegna tveggja árása á full-
trúa ákæruvaldsins á Akureyri.
Alls hafa fimm verið handteknir í
tengslum við málið.
Lögreglan á höfuðborgarsvæð-
inu hefur tekið við rannsókn máls-
ins þar sem lögreglan á Akureyri
hefur lýst sig vanhæfa vegna
tengsla við fulltrúann. Árásirn-
ar eru litnar mjög alvarlegum
augum.
Ráðist hefur verið í tvígang að
íbúðarhúsi fulltrúans. Annars
vegar þegar grímuklæddur maður
vopnaður hnífi bankaði upp á að
næturlagi með ógnandi tilburði
og stuttu síðar þegar kveikt var
í bifreið hans með svokölluðum
mólotovkokteil.
Friðrik Smári Björgvinsson,
yfirlögregluþjónn hjá lögregl-
unni á höfuðborgarsvæðinu, segir
atvikið litið alvarlegum augum.
„Við munum fara í það í róleg-
heitum næstu daga að yfirheyra
sakborninga og vitni og gera rann-
sókn á bifreiðinni sem brann,“
segir Friðrik Smári í samtali við
Fréttablaðið.
Samkvæmt heimildum blaðsins
hafa íbúar í nágrenninu haft sam-
band við öryggisfyrirtæki til að
fá öryggiskerfi sett upp í íbúðum
sínum og hafa margir þeirra yfir-
farið læsingar á hurðum og glugg-
um.
- sa / sjá síðu 2
Góðkunningjar lögreglunnar nyrðra réðust að fulltrúa ákæruvaldsins:
Þrír úrskurðaðir í gæsluvarðhald
Helmingur hefur atvinnu Atvinnu-
þátttaka blindra og sjónskertra er
mikil hér miðað við önnur lönd. 4
Engar bakvaktir borgaðar Á
veturna er viðbragðstími á Sauðár-
króksflugvelli tveir tímar, náist í
starfsmann. 8
Meðferð við ebólu Læknar án
landamæra hafa umsjón með fyrstu
formlegu rannsóknunum á meðferð
við ebólu. 12
ERTU SÁTT/UR VIÐ
SKULDALEIÐRÉTTINGU
RÍKISSTJÓRNARINNAR?
JÁ
56%
NEI
44%
STJÓRNMÁL Afar skiptar skoðanir
virðast vera á skuldaleiðréttingu
ríkisstjórnarinnar. Þetta má lesa
úr nýrri skoðanakönnun Frétta-
blaðsins.
Niðurstöðurnar sýna að 41 pró-
sent landsmanna er sátt við skulda-
leiðréttinguna, 32 prósent segjast
ekki vera sátt, 22 prósent segjast
vera óákveðin í afstöðu sinni og 5
prósent svara ekki.
Þegar einungis er tekið tillit til
þeirra sem tóku afstöðu í skoðana-
könnuninni segjast 56 prósent vera
sátt við skuldaleiðréttinguna en 44
prósent segjast ekki vera sátt við
hana.
Þegar svörin eru greind eftir
aldri sést að þeir sem eru eldri eru
mun jákvæðari gagnvart leiðrétt-
ingunni. Í aldursflokknum 50 ára
og eldri segjast 63 prósent vera
sátt við leiðréttinguna, en 37 pró-
sent segjast ekki vera sátt. Í ald-
ursflokknum 18 til 49 ára segjast
hins vegar 50 prósent vera sátt og
50 prósent segjast ekki vera sátt.
Það vekur líka athygli að ánægj-
an með leiðréttinguna virðist vera
minnst í Reykjavík. Þar segjast 47
prósent vera sátt við leiðréttinguna.
Í öllum öðrum kjördæmum eru
fleiri sáttir en ósáttir.
Það þarf ekki að koma á óvart að
ánægjan með skuldaleiðréttinguna
er langmest á meðal þeirra sem
segjast ætla að kjósa Framsóknar-
flokkinn í næstu kosningum. Níutíu
og fimm prósent þeirra segjast vera
sátt, en einungis 5 prósent ósátt.
Áttatíu og fjögur prósent sjálfstæð-
ismanna segjast vera sátt og 16 pró-
sent segjast ekki sátt. Ánægjan er
mun minni á meðal stuðningsmanna
stjórnarandstöðuflokkanna.
Niðurstöður skuldaleiðréttingar-
innar voru kynntar í Hörpu á mánu-
daginn og strax þá um miðnætti gat
fólk séð hver lækkunin á höfuðstól
lána yrði.
Skoðanakönnun Fréttablaðsins
var gerð 12. og 13. nóvember og
var hringt í 1.244 þar til náðist í 800
manns. Það er 64,3 prósenta svar-
hlutfall. Úrtakið er lagskipt slembi-
úrtak.
- jhh
Þjóðin klofin í afstöðu til
skuldaleiðréttingarinnar
Rúmlega helmingur þjóðarinnar er sáttur við skuldaleiðréttinguna. Þetta sýna niðurstöður skoðanakönnunar
Fréttablaðsins. Fólk yfir fimmtugu er sáttara en þeir sem yngri eru. Höfuðborgarbúar eru síst sáttir.